Sunddeild Fjölnis

Sunddeild Fjölnis

Share

Sunddeild Fjölnis heldur úti öflugu og flottu starfi

16/04/2026

Aðalfundur Fjölnis verður haldinn 28 apríl n.k. í félagsaðstöðu félagsins í Egilshöll og hefst kl. 17.30.

Við hvetjum allt Fjölnisfólk og þá sem hafa áhuga á starfi félagsins til að mæta á fundinn.

Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/04/16/adalfundur-fjolnis-5/

06/01/2026

Hvetjum alla til að skoða þessi námskeið!

06/08/2024

Sunddeild Fjölnis leitar að metnaðarfullum þjálfara fyrir keppnishópa deildarinnar 🏊Mikið uppbyggingarstarf er hjá deildinni þar sem megin markmið eru að fjölga iðkendum og bjóða upp á fyrsta flokks æfingaumhverfi fyrir það unga og efnilega sundfólk sem æfir hjá sunddeild Fjölnis 💦
Æft er á primetime í Laugardalslaug og í einhverjum tilfellum Grafarvogslaug.

Starfslýsing þjálfara
Helstu verkefni þjálfara eru að:
•Þjálfun Hópa A til D.
•Samskipti við foreldra og stjórn.
•Viðvera á mótum.
•Taka virkan þátt í uppbyggingu deildarinnar, afla sér faglegrar þekkingar og styðja sundfólkið í að ná framförum í sinni íþrótt
Hæfniskröfur:
•Reynsla af þjálfun sundmanna
•Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
•Metnaður og frumkvæði
•Góð íslenskukunnátta
•Hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar hjá Formanni Sunddeildar, [email protected] eða í síma 7750407

Senda skal umsóknir ásamt menntunar- og ferilskrá á netfangið [email protected] fyrir 14 ágúst. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 23. ágúst nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

31/01/2024

Vilt þú taka þátt í stjórnarstörfum innan Fjölnis? 💛💙

Aðalfundir deilda fara fram í febrúar. Við hvetjum alla áhugasama til að gefa kost á sér og taka þátt í að byggja upp frábæra starfið okkar! 🤩

Tillögur að formanni og stjórnarmönnum þurfa að berast til [email protected] ekki seinna en 5 dögum fyrir aðalfund Fjölnis. Nánari upplýsingar um tímasetningar koma á næstu dögum.

https://fjolnir.is/2024/01/31/kosningar-i-stjornir-adalfundir-deilda-2/

💛💙

03/11/2023

Mælum með að foreldrar allra keppenda sæki þetta námskeið og nái sér í réttindi.

Dómaranámskeið á haustönn 2023

Næsta dómaranámskeið á vegum dómaranefndar SSÍ verður haldið þann

22. nóvember kl. 18:00 – 21:00 í Fundarsal á 2.hæð Laugardalslaug, Reykjavík

Þetta námskeið verður staðnámskeið og einnig í Teams fjarfundi fyrir landsbyggðina.

Skráning á dómaranámskeið sendist á [email protected] með upplýsingum um

nafn, kennitölu, síma og hvaða sundfélagi/deild viðkomandi er tengdur.

22/09/2023

Vegna lokunar í Grafarvogslaug falla æfingar í sundskóla niður mánudaginn 25 september.

Kristinn lætur vita með æfingar hjá A-D hópum í útilaug.

04/09/2023
Sumarnámskeið 2023 – Ungmennafélagið Fjölnir – fjolnir.is 30/05/2023

Það er tilvalið að viðhalda sundhæfninni í sumar ☀️
Svo er auðvitað tilvalið að byrja hér ef barnið þitt er að byrja í 1. bekk í haust og þarf að æfa sig að fara í gegnum klefann og vera öruggara í vatni 💛💧💙 það eru líka námskeið í boði í ágúst 👏🏻

Sumarnámskeið 2023 – Ungmennafélagið Fjölnir – fjolnir.is Fjölnir býður upp á fjölbreytt úrval námskeiða í allt sumar. Hægt er að velja eitt námskeið fyrir hádegi og annað eftir hádegi með eða án heitrar máltíðar. Sumarámskeiðin eru fyrir börn fædd 2013-2016. Fjölgreinanámskeiðin eru fyrir börn fædd 2014-2017, á því fá b....

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Dalhús/Egilshöll
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00