Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ, Sports Event, Engjavegur 6, Reykjavík.

11/08/2022

Frá því að fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið fyrir rúmum 30 árum hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrsta hlaupið fór fram árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ og var markmiðið með hlaupinu að hvetja konur til að gefa sér tíma fyrir sig, hreyfa sig meira og huga að heilsu sinni. Þessi tilteknu markmið hafa sannarlega náðst á síðustu árum og gott betur.

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ hefur sameinað samveru og hreyfingu kvenna á landsvísu með farsælum árangri. Kvennahlaupið hefur verið nýtt til að minna á mikilvægi þess að allir hreyfi sig á sínum forsendum, samstöðu og ánægjulega samverustund á hlaupadag. Hlaupið hefur verið árviss viðburður hjá mörg þúsund manns um allt land, sem og erlendis. Það er fyrst og fremst þátttakendum og þeim fjölmörgu framkvæmdaraðilum sem hafa haldið utan um hlaupið að þakka að árangurinn hefur orðið eins góður og raun ber vitni.

Allt hefur sinn tíma og í ljósi þess að tíðarandinn hefur breyst frá því hlaupið var fyrst haldið og upphaflegum markmiðum þess hefur verið náð hefur nú verið tekin ákvörðun um að leggja hlaupið niður.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Sjóvá þakka framkvæmdaraðilum og þeim fjölmörgu sem hafa tekið þátt í hlaupinu í gegnum tíðina kærlega fyrir samfylgdina og virka þátttöku þeirra í að efla heilsu kvenna og samstöðu. Um leið eru landsmenn hvattir til reglubundinnar hreyfingar og til þess að hlúa vel að líkamlegri og andlegri heilsu, til dæmis með því að taka þátt í þeim fjölmörgu skipulögðu hlaupum sem í dag eru í boði um allt land. Munum að öll hreyfing skiptir máli.

Við göngum sátt og stolt frá verkefninu og munum áfram vinna ötullega að því að jafna möguleika allra einstaklinga á landinu til heilsu og hreyfingar. Áframhaldandi vinna í þá átt verður byggð á grunni þess glæsilega árangurs sem samstilltar konur hafa unnið í nafni hlaupsins í meira en þrjá áratugi, konur sem létu ekkert stoppa sig og efldu markvisst lýðheilsu íslenskra kvenna.

24/06/2022

Skrifstofa ÍSÍ fékk skemmtilega heimsókn í dag frá Margret Thorlakson Kernested og frænku hennar Söndru Forbes frá Gimli, Kanada.
Ástæða heimsóknarinnar var að Margaret og systir hennar Marlene Forbes hafa haldið Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ frá árinu 2007 í Gimli og þær komu til að kaupa boli frá 2021.
Eftir miklar og góðar samræður færðu þær okkur þennan flotta fána sem Íslendingafélagið í Gimli lét útbúa. Til gamans má geta að Gimli er stundum kallað „Höfuðstaður Nýja Íslands“. Íslendingar fluttu þangað fyrst 21. október 1875, en þangað fluttist stór hópur Íslendinga sem eru kallaðir Vesturfarar.
ÍSÍ þakkar þeim systrum fyrir góða gjöf.
Á myndinni, talið frá vinstri, Linda Laufdal verkefnastjóri, Hrönn Guðmundsdóttir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Margret Kernested og Sandra Forbes.

06/04/2022

Ágætu Kvennahlauparar!
Verið er að skoða tímasetningu og framkvæmd Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ 🏃‍♀️
Nánari upplýsingar munu liggja fyrir innan skamms svo fylgist endilega vel með.
Með kvennahlaupskveðju
ÍSÍ og Sjóvá

Kvennahlaupsbolir í leikhúsi 15/12/2021

Kvennahlaupsbolir í Borgarleikhúsinu :)
Slembilukka

Kvennahlaupsbolir í leikhúsi Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands varð þess heiðurs aðnjótandi að fá leikkonur úr sviðslistahópnum Slembilukku í heimsókn á dögunum. Þær höfðu áhuga á að fá Kvennahlaupsboli lánaða til að nota í sýninguna Á vísum stað sem sýnd er í Borgarleikhúsinu.

11/09/2021

N4 Sjónvarp fjölluðu um Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ Föstudagsþættinum 😊

„Geisluðu af orku“ í Kvennahlaupinu 11/09/2021

Kærar þakkir til ykkar sem tókuð þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ í dag

„Geisluðu af orku“ í Kvennahlaupinu Kvennahlaup Sjóvá og Íþróttabandalags Íslands fór fram í dag um allt land í 32. sinn. Veðrið var frábært og þátttaka með ágætum, að því er fram kemur í tilkynningu.

10/09/2021

Okkur þætti vænt um að vera merkt með myllumerkinu eða á instagram, þá getum við deilt stuðinu frá öllum þeim stöðum sem taka þátt, innan og utanlands :)

Sjóvá kvennahlaupið fer fram á laugardaginn 10/09/2021

Hlökkum til :)

Sjóvá kvennahlaupið fer fram á laugardaginn Sjóvá kvennahlaup ÍSÍ mun fara fram í 32. sinn á laugardaginn, 11. september, á hátt í 70 stöðum víða um landið. Skipuleggjendur hlaupsins hvetja alla til að taka þátt, óháð aldri, þjóðerni eða kyni.

10/09/2021

Það er enn hægt að kaupa Kvennahlaupsbol og þátttöku á Tix https://tix.is/is/event/11930/sjova-kvennahlaup-isi/

Hér er hægt að ná í boli :)
-Garðabær: Ísbúðin Garðabæ, Litlatún 3, föstudaginn 10. september frá kl. 11:00-23:30. Einnig hægt að kaupa boli hér, posi á staðnum.
-Mosfellsbær: Lágafellslaug, fimmtudag,10. september milli kl. 16:00 og 19:00.
-Selfoss: í Tíbrá á hlaupadag

ATH: Takmarkað magn verður til afhendingar á hverjum stað fyrir sig. Ekki hægt að lofa að allar stærðir verði til.

Sjóvá veitir Barnaheillum styrk 09/09/2021

Sjóvá veitir Barnaheillum styrk Sjóvá veitti Barnaheillum 800.000 króna styrk til Haustsöfnunar Barnaheilla, Lína okkar tíma, sem styður vernd stúlkna gegn ofbeldi í Síerra Leóne. Styrkur

09/09/2021

ATH! Hér er hægt að ná í boli sem hafa verið keyptir á TIX, einnig er hægt að fá bol á staðnum og greiða í gegnum TIX

-Garðabær: Ísbúðin Garðabæ, Litlatún 3, föstudaginn 10. september frá kl. 11:00-23:30, hér er einnig hægt að kaupa bol, posi á staðnum

-Mosfellsbær: Lágafellslaug, fimmtudag og föstudag, 9. og 10. september milli kl. 16:00 og 19:00

-Akureyri: Skrifstofa ÍSÍ, Íþróttahöllinni, 600 Ak. virka daga milli 08:30 og 16:00

-Reykjavík: Skrifstofa ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Rvk. virka daga milli 08:30 og 16:00, hér er einnig hægt að kaupa bol, posi á staðnum.

Hlaupum saman!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Engjavegur 6
Reykjavík
104