07/08/2025
Úr Morgunblaðinu 7.8.2025.
Svifflugfélag Íslands var stofnað 1936 og er með starfsemi sína á Sandskeiði.
Við tökum vel á móti þeim sem heimsækja okkur til að skoða svifflugurnar eða að fara í kynnisflug. Það er flogið öll kvöld og helgar yfir sumarið þegar veður leyfir. Svifflugur félagsins (Club gliders operating) :
1 Diamond Hk-36TTC - Super Dimona (Touring Motor Glider/TMG)
1 Duo Discus T
1 ASK-21 (Trainer and Aerobatic)
1 Ls 8
2 Ls 4
Togflugvél (Tow plane): PA-25 Pawnee B - 235,
Spil (Winch)
07/08/2025
Úr Morgunblaðinu 7.8.2025.
01/08/2025
Kæra svifflugfólk og annað áhugafólk um svifflug
Í gær, 31 júlí flaug Aron Bjarki Helgason sitt fyrsta einflug. Hann flaug tvö flug og tókust þau með ágætum enda ekki við öðru að búast. Viðstödd voru bæði móðir hans og afi en þau hafa bæði flogið svifflug. Það þótti vel viðeigandi að afinn nældi fluglinum (A-prófs merkið) í barm hans eftir flugið.
Síðasta myndin er af Aroni með Daníel Stefánssyni, svifflugkennara sem leiddi Aron í gegnum síðustu skrefin fyrir áfangann en Aron er annar nemandinn sem lýkur einflugsprófi í sumar.
Við Óskum Aroni innilega til hamingju með áfangann og vonumst til að þetta sé upphafið að farsælum flugferli.
05/07/2025
Í dag var fyrsta sóló sumarsins þegar Alexander Tryggvi flaug sitt fyrsta sóló. Hann gerði þetta eins vel og mögulegt er enda ekki við öðru að búast af þessum efnilega og áhugasama strák. Baldur Jónsson aldursforseti félagsins afhenti honum A-prófs merkið.
04/07/2025
Falleg kvöld stund á Sandskeiði. Meðalaldur svifflug manna hefur lækkað umtalsvert með hjálp frá nokkrum ungum og áhugasömum strákum.
Spil start TF SAC ASK21 flugmaður Alexander
Sigmundur og Daníel Duo Discus TF-SAS
TF-SAC