02/06/2026
Okkar maður, Anton Haukur sem vinnur hjá okkur í KR varð nýlega heimsmeistari í bekkpressu í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Varsjá í Póllandi 💪
Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá - Vísir
Anton Haukur Þórlindsson varði í dag heimsmeistari í bekkpressu í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Varsjá í Póllandi.
20/05/2026
Það styttist í Kvennakvöldið!!🪩
Það var þvílík stemning í fyrra, við erum farin að telja dagana niður!
Tryggið ykkur miða hér👇
https://stubb.is/events/nL6AWo
KVENNAKVÖLD KR 22.MAÍ!🪩
Það verður þvílík veisla í félagsheimili KR á föstudaginn! Húsið opnar kl. 18:30, Happy Hour til 19:30🥂
Kristín Þóra veislustýrir og Sóli Hólm skemmtir!
🎟️ Tryggðu þér miða á Stubb!
https://stubb.is/events/nL6AWo
16/05/2026
KR búðin opnar aftur eftir endurbætur, stútfull af flottum vörum!
Opnar kl.16 á morgun þegar mfl.kk tekur á móti Fram í Bestu deildinni👊
Hlökkum til að sjá ykkur, áfram KR🖤🤍
12/05/2026
Kæru foreldrar, forráðamenn og knattspyrnufólk.
Vegna framkvæmda á KR svæðinu, þar sem verið er að grafa fyrir nýju fjölnota íþróttahúsi á milli aðalavallarins okkar og æfinga gervigrassins, biðjum við ykkur um að fara alls ekki inn fyrir girðinguna og inn á vinnusvæði til þess að sækja bolta sem fara þangað yfir.
Við viljum reyna að hafa fyrirkomulagið þannig að starfsfólk KR safnar saman boltum sem fara yfir girðinguna og passar upp á þá þangað til eigendur koma og sækja þá til okkar í afgreiðslu KR.
Þetta er að sjálfsögðu í þeim eina tilgangi að hindra slys á svæðinu og við viljum auðvitað ekki loka æfingavellinum okkar fyrir þeim sem vilja fara út í fótbolta eða æfa aukalega. Það eru stórar og þungar vinnuvélar að störfum og því gríðarlega mikilvægt að engin sé að hlaupa inn á vinnusvæðið. Það er einnig búið að moka mikið á svæðinu og það er slysahætta þó svo að vinnuvélar séu ekki að störfum.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er hægt að senda póst á undirritaðan á [email protected]
Með KR kveðju og von um skilning og góða samvinnu😊
Pálmi Rafn Pálmason
Framkvæmdastjóri KR
07/05/2026
Á morgun er seinasti dagur til að sækja um starf sumarliða!
Skemmtilegt og fjölbreytt starf fyrir fólk á aldrinum 17-25 ára.
Ert þú á aldrinum 17-25 ára og vilt vinna í KR í sumar?
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
06/05/2026
Það er margt að gerast hjá okkur þessa dagana!
Vinna er hafin við að skipta um gervigras á Battavellinum okkar og svo eru Steini og Jere að gera klárt fyrir nýjan glervegg í KR búðina 🫱🏽🫲🏻💪🏽
Við erum KR 🖤🤍
05/05/2026
Þórir og Rebekka eru íþróttafólk KR 2026!
Þórir var fyrirliði KR liðsins á tímabilinu sem leið á sínu öðru tímabili í KR eftir að hann snéri heim eftir dvöl í háskólaboltanum og atvinnumennsku erlendis. Þórir átti vægast sagt frábært tímabil með KR og var hann valinn á lokahófi KKÍ besti leikmaður Bónus deildar karla auk þess að vera í úrvalsliði deildarinnar.
Rebekka Rut sem er einungis 17 ára gömul leiddi KR liðið á þeirra fyrsta tímabili í efstu deild síðan 2021. Á lokahófi KKÍ var Rebekka valin besti ungi leikmaður Bónus deildar kvenna ásamt því að vera í úrvalsliði deildarinnar. Rebekka lék einnig sína fyrstu leiki með A-landsliði kvenna og vakti þar verðskuldaða athygli og var okkur KR-ingum til sóma.
Til hamingu Þórir og Rebekka!
Íþróttamaður & íþróttakona KR
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
05/05/2026
KR búðin verður því miður lokuð í dag, þriðjudaginn 5. maí, vegna framkvæmda.
Spennandi breytingar í gangi 🖤🤍
Búðin er þó alltaf opin á
KR
Miðasala
06/04/2024
KR hlaðvarpið fékk stórmeistarann Pálma Rafn Pálmason í spjall og hitaði upp fyrir Bestu deild karla í fótbolta karla en KR hefur leik með því að mæta Fylki í Árbænum sunnudaginn 7. apríl klukkan 19.15.
https://open.spotify.com/episode/7AIdxt4Jh3MxVKd7RbC6LK?si=F5_t4WkORky_-nUJMW5GQw&context=spotify%3Ashow%3A760sO0TPTweNh9tiVDk9uU
Þátturinn er kominn á Spotify og ætti að birtast fljótlega á Apple og öllum helstu streymisveitum.
Áfram KR!
Pálmi og veislan að hefjast
Útvarp KR · Episode