Knattspyrnufélag Reykjavíkur

Knattspyrnufélag Reykjavíkur

Share

Þessi síða er fyrir félagið í heild, þvert á deildir.

Anton Haukur heims­meistari í Var­sjá - Vísir 02/06/2026

Okkar maður, Anton Haukur sem vinnur hjá okkur í KR varð nýlega heimsmeistari í bekkpressu í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Varsjá í Póllandi 💪

Anton Haukur heims­meistari í Var­sjá - Vísir Anton Haukur Þórlindsson varði í dag heimsmeistari í bekkpressu í sínum flokki á heimsmeistaramótinu í Varsjá í Póllandi.

20/05/2026

Það styttist í Kvennakvöldið!!🪩
Það var þvílík stemning í fyrra, við erum farin að telja dagana niður!

Tryggið ykkur miða hér👇
https://stubb.is/events/nL6AWo

KVENNAKVÖLD KR 22.MAÍ!🪩

Það verður þvílík veisla í félagsheimili KR á föstudaginn! Húsið opnar kl. 18:30, Happy Hour til 19:30🥂

Kristín Þóra veislustýrir og Sóli Hólm skemmtir!

🎟️ Tryggðu þér miða á Stubb!

https://stubb.is/events/nL6AWo

16/05/2026

KR búðin opnar aftur eftir endurbætur, stútfull af flottum vörum!

Opnar kl.16 á morgun þegar mfl.kk tekur á móti Fram í Bestu deildinni👊

Hlökkum til að sjá ykkur, áfram KR🖤🤍

12/05/2026

Kæru foreldrar, forráðamenn og knattspyrnufólk.

Vegna framkvæmda á KR svæðinu, þar sem verið er að grafa fyrir nýju fjölnota íþróttahúsi á milli aðalavallarins okkar og æfinga gervigrassins, biðjum við ykkur um að fara alls ekki inn fyrir girðinguna og inn á vinnusvæði til þess að sækja bolta sem fara þangað yfir.

Við viljum reyna að hafa fyrirkomulagið þannig að starfsfólk KR safnar saman boltum sem fara yfir girðinguna og passar upp á þá þangað til eigendur koma og sækja þá til okkar í afgreiðslu KR.

Þetta er að sjálfsögðu í þeim eina tilgangi að hindra slys á svæðinu og við viljum auðvitað ekki loka æfingavellinum okkar fyrir þeim sem vilja fara út í fótbolta eða æfa aukalega. Það eru stórar og þungar vinnuvélar að störfum og því gríðarlega mikilvægt að engin sé að hlaupa inn á vinnusvæðið. Það er einnig búið að moka mikið á svæðinu og það er slysahætta þó svo að vinnuvélar séu ekki að störfum.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er hægt að senda póst á undirritaðan á [email protected]



Með KR kveðju og von um skilning og góða samvinnu😊

Pálmi Rafn Pálmason
Framkvæmdastjóri KR

Photos from Knattspyrnufélag Reykjavíkur's post 06/05/2026

Það er margt að gerast hjá okkur þessa dagana!

Vinna er hafin við að skipta um gervigras á Battavellinum okkar og svo eru Steini og Jere að gera klárt fyrir nýjan glervegg í KR búðina 🫱🏽‍🫲🏻💪🏽

Við erum KR 🖤🤍

05/05/2026
Íþróttamaður & íþróttakona KR 05/05/2026

Þórir og Rebekka eru íþróttafólk KR 2026!

Þórir var fyrirliði KR liðsins á tímabilinu sem leið á sínu öðru tímabili í KR eftir að hann snéri heim eftir dvöl í háskólaboltanum og atvinnumennsku erlendis. Þórir átti vægast sagt frábært tímabil með KR og var hann valinn á lokahófi KKÍ besti leikmaður Bónus deildar karla auk þess að vera í úrvalsliði deildarinnar.

Rebekka Rut sem er einungis 17 ára gömul leiddi KR liðið á þeirra fyrsta tímabili í efstu deild síðan 2021. Á lokahófi KKÍ var Rebekka valin besti ungi leikmaður Bónus deildar kvenna ásamt því að vera í úrvalsliði deildarinnar. Rebekka lék einnig sína fyrstu leiki með A-landsliði kvenna og vakti þar verðskuldaða athygli og var okkur KR-ingum til sóma.

Til hamingu Þórir og Rebekka!

Íþróttamaður & íþróttakona KR Knattspyrnufélag Reykjavíkur

KR 05/05/2026

KR búðin verður því miður lokuð í dag, þriðjudaginn 5. maí, vegna framkvæmda.
Spennandi breytingar í gangi 🖤🤍

Búðin er þó alltaf opin á

KR Miðasala

Pálmi og veislan að hefjast 06/04/2024

KR hlaðvarpið fékk stórmeistarann Pálma Rafn Pálmason í spjall og hitaði upp fyrir Bestu deild karla í fótbolta karla en KR hefur leik með því að mæta Fylki í Árbænum sunnudaginn 7. apríl klukkan 19.15.

https://open.spotify.com/episode/7AIdxt4Jh3MxVKd7RbC6LK?si=F5_t4WkORky_-nUJMW5GQw&context=spotify%3Ashow%3A760sO0TPTweNh9tiVDk9uU

Þátturinn er kominn á Spotify og ætti að birtast fljótlega á Apple og öllum helstu streymisveitum.

Áfram KR!

Pálmi og veislan að hefjast Útvarp KR · Episode

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Reykjavík
107