Pilates is about , strength, stretch, flow, breath, control, concentration and lot more Með Pilates viðheldur þú sveigjanleika og mýkt líkamans. Betri öndun
6.
Pilates lofar árangri
Að æfa Pilates er skynsamleg fjárfesting fyrir framtíð líkama þíns, huga og sálar. Hægt er að taka dýnutíma (8 -12 manns) eða einkatíma. Margir velja að gera hvoru tveggja. Hver og einn Pilates iðkandi sem stundar hið upprunalega Pilates kerfi mun alla jafna styrkjast í 10 mikilvægum þáttum er snerta sál og líkama, þ.e:
1. Stjórn og samhæfing hreyfinga
2. Meðvitund um mið
ju líkamans
3. Betri einbeiting
4. Nákvæmni æfinga sem miða að jafnvægi líkamans
5. Bætt blóðrás
7. Stöðugleiki og liðleiki liða
8. Mýkt og styrkur vöðva
9. Aukin orka
10. Aukið sjálfstraust
Hvað er Pilates æfingakerfi? Jósef Pilates (1880-1967) er frumkvöðull þessa æfingakerfis. Hann var lengi að þróa þetta einstaka kerfi sem hugsað er fyrir allan líkamann og lagði hann einkum áherslu á jafnvægið á milli styrks og sveigjanleika. Æfingarnar eru unnar út frá hinu svokallaða orkuhúsi (Powerhouse) sem er magi, kviðvöðvar, mjóbak og rassvöðvar. Meðvitund um vel þjálfað orkuhús leyfir öðrum hlutum líkamans að hreyfast frjálst og eðlilega.
Það má segja að Pilates kerfið sé skynsamlegt æfingakerfi. Líkamsæfingarnar byggjast á afar öguðum hreyfingum þar sem gæði og nákvæmi eru höfð í fyrirrúmi. Hver æfing er ekki endurtekin mjög oft heldur lögð áhersla á hún sé gerð rétt og í réttu samhengi. Átakið er innan frá og út og krefst mikillar einbeitingar. Fyrir utan að Pilates hannaði röð af ákveðnum hreyfingum eða æfingum sem gerðar eru á dýnu þá bjó hann til sérstakt æfingakerfi fyrir sértilbúin tæki sem hafa hæfilega mótstöðu fyrir alla vöðvavinnu. Aðal tækið sem notað er í Pilates einkatímum, kallast “Reformer” eða endurmótari. Þetta er pallur sem lítur út eins og rúm með sleða sem rennur fram og aftur í braut. Til að efla enn frekar sveigjanleika líkamans þá eru þeir líkamshlutar sem þurfa á því að halda styrktir á tækjum sem kallast Cadillac, Barrels, Wunda Chair og High Chair. Æfingar sem gerðar eru liggjandi á dýnu og miða að því að styrkja Powerhous, nota mótstöðu sem líkaminn býr til sjálfur. Þessar æfingar er boðið uppá í hóptímum fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir. Dýnuæfingar Pilates teygja, styrkja og lengja vöðva líkamans. Þessar æfingar eru grunnur Pilates kerfisns. Þú uppgötvar powerhouse þitt og hvaða gildi það hefur á alhliða heilbrigði. Sterkt powerhouse er grundvöllur góðrar heilsu. Þú þroskar með þér jákvætt hugarfar á meðan þú styrkir og teygir vöðva. Pilates leiðir þig inn á veg heilbrigðis og krafts. Pilates kerfið hefur sýnt og sannað að það er öruggt og árangursríkt æfingakerfi fyrir líkamann og þá sér í lagi þegar það er kennt og iðkað á réttan hátt. Nafnið Pilates hefur fyrir löngu fest sig í sessi og verið frjálst til notkunar. Milljórnir manna og líkamsræktarstofnanna hafa gert út á Pilates nafnið og eru afleiðingarnar oft villandi upplýsingar um hvað Pilates í raun og veru er, hvernig það vinnur og eftir hverju er að sækjast hjá Pilates þjálfara. Pilates er etv. bara eitthvert merkingarlaust orð í hugum margra, en með þjálfun þessa æfingakerfis öðlast þú fljótt góða stjórn á líkamanum og öll meðvitund um líkamsbeitingu eykst. Með jöfnum endurtekningum á æfingum kemst smátt og smátt eðlilegur taktur og samhæfing í hreyfingar sem jafnframt tengjast andlegum og ómeðvituðum athöfnum þínum. Pilates kerfið er hannað til að gefa þér aukinn sveigjanleika, náttúrlegan þokka og eiginleika sem munu með tímanum koma fram í því hvernig þú berð þig í starfi og leik. Þú munt þróa djúpan vöðva styrk sem endist vel til mikillar vinnu, á göngu, hlaupum eða á löngum ferðalögum, kemur í veg fyrir ótímabæra líkams þreytu og léttir lund. Hver hefur gagn af Pilates kerfinu? Pilates er fjölbreytt og hentar jafnt, ungum sem öldnum, íþróttafólki, skrifstofufólki, dönsurum, tónlistarfólki - í raun hverjum sem er. Pilates er fyrir hvern þann sem vill efla styrk sinn og teygjanleika án þess að auka vöðvamassa. Ef æfingarnar eru gerðar reglulega þá fyrirbyggir Pilates vöðvameiðsli og ör á vefjum. Þegar sjúkraþjálfarar og kírópraktorar uppgötvuðu kerfið, kom í ljós að það nýttist sérstaklega vel og gaf góðan árangur í endurhæfingu sjúklinga. Aukin krafa um heilsufarsmeðvitund fólks og svo í kjölfarið leitin að öruggu og árangursríku æfingakerfi, hefur orðið til þess að fólk um allan heim hefur gert Pilates að sínu aðal æfingakerfi. Hver var Jósef Pilates? Jósef H. Pilates fæddist í þýskalandi árið 1880. Hann var mikið veikur sem barn, þjáðist af astma, beinkröm og gigt en það er meginástæðan fyrir að hann helgaði líf sitt líkamsrækt. Pilates stundaði ungur líkamsþjálfun og íþróttir en 14 ára gamall þótti hann nógu góður til að sitja fyrir á “anatomy” plakati. Árið 1912 flutti hann til Englands og vann fyrir sér sem boxari, sýndi í sirkus og var auk þess sjálfsvarnarþjálfari. Í fyrri heimsstyrjöldinni varð hann innlyksa ásamt öðrum þýskum ríkisborgurum í búðum nálægt Lancaster þar sem hann kenndi fólki líkamsæfingar sínar. Það var þá sem hinar eiginlegu og sönnu Pilates æfingar tóku á sig núverandi mynd. Eftir stríð flutti hann til Bandaríkjanna. Á skipi til USA kynntist hann Klöru,verðandi eiginkonu sinni. Þau stofnuðu eigið studio og þar leiðbeindu þau nemendum fram yfir 1960. Kerfi Pilates sem hann og Klara kölluðu upphaflega “Contrology”, vakti fljótlega athygli og áhuga innan dansheimsins og listageirans almennt. Frá þeirra sjónarmiði, var “Contrology” fullkomin heildræn samhæfing fyrir líkama, huga og anda. Þekktir dansarar eins og George Balanshine og Martha Graham aðhylltust Pilates kerfið og sendu nemendur til þjálfunar hjá þeim hjónum. Pilates stundaði sjálfur eingöngu sitt eigið kerfi og lifði löngu og heilbrigðu lífi en dó 1967, 87 ára gamall. Í dag er Pilates kerfið stundað um gjörvallan heim, jafnt af íþróttamönum, dönsurum sem og öðru fólki sem lætur sér annt um heilbrigði sitt. Jósef Pilates var snillingur og á undan sinni samtíð. Hann þróaði ekki bara fullkomið æfingakerfi sem samsett er af um 500 líkamsæfingum heldur fann hann líka upp öll tækin, aðferðina og allt það sem þarf til að kenna Pilates kerfið og ná árangri. Það er enginn vafi á því að hans upprunalega prógram getur gert kraftaverk þegar því er stýrt af lærðum kennara sem skilur hvernig á að þróa og kenna hið upprunalega Pilates, með líkamann þinn og möguleika hans að leiðarljósi. Þegar æfingarnar eru framkvæmdar rétt þá líturðu vel út, þér líður betur og þú beitir líkamanum réttar.
Þættir um árangur
Daglegar athafnir eins og sitja, standa, hlaupa, iðka íþróttir, dansa eða þjálfun í tækjasölum rækta suma vöðva betur en skilja aðra eftir óþjálfaða. Afleiðingar af vanþjálfun sumra vöðva líkamans eru yfirleitt ekki ígrundaðar fyrir fram en geta verið ástæða fyrir þreytu, óþægindum, verkjum og stirðleika.
Þeir sem sem iðka hið sanna Pílates kerfi uppgötva að þeir ómeðvitað sitja og ganga í réttari líkamsstöðu, hreyfa sig tignarlegar, sofa betur og þróa styrkari vöðva. Jósef Pilates eyddi yfir 50 árum ævi sinnar í að vinna að einkar sérstöku æfingarkerfi sem tekur tillit til huga og vöðvakerfis í þeim tilgangi að öðlast andlegt og líkamlegt jafnvægi.
08/04/2026
Örfá pláss laus🌿🫶🌿
07/04/2026
Ný 6 vikna námskeið hefjast í næstu viku🌿🫶🌿örfá pláss laus í hádeginu kl 12 og síðdeginu kl 17 45