04/06/2026
Rafholtsmóti 2 lauk í gær og er virkilega gaman að sjá hve duglegir félagsmenn eru að mæta á viðburði klúbbsins😀⛳️
Bjarni Benediktsson átti frábæran hring, kom inn á 69 höggum og vinnur verðlaunin fyrir besta skor, Vel gert Bjarni og til hamingju 👏👏 Bjarni var einnig í 2. sæti í punktakeppninni svo að þá færast 3. og 4. sætið upp um eitt sæti.
Besta skor: Bjarni Benediktsson, 69 högg
Punktakeppni:
1. Ásgrímur Pálsson, 44 pkt
2. Ísleifur Jón Lárusson, 39 pkt
3. Atli Már Ragnarsson, 39 pkt
Nándarverðlaun:
2. hola: Jóel Freyr
17. hola: Ásgrímur Pálsson
Vinningshafar geta sótt verðlaunin sín í klúbbhúsið.
02/06/2026
🏆Bikarkeppnin 🏆
1. umferð í Bikarkeppninni er lokið og eru leikir annarrar umferðar þessir. Miðað er við að þessum leikjum verði lokið 20. júní.
Hægt er að fylgjast með framvindunni á Golfbox ⛳️
01/06/2026
Texas scramble skemmtimót ⛳️🏌️
Síðastliðinn föstudag fór fram skemmtilegt tveggja manna Texas Scramble-mót þar sem GSG kylfingar komu saman í góðu veðri og enn betra skapi. Stemningin var frábær í alla staði og greinilegt að þessi skemmtimót eru að falla vel í kramið hjá meðlimum.
Sigurvegarar kvöldsins voru Þröstur Ástþórsson og Jón Ingi Ægisson en nokkur lið kepptust um annað sætið og úrslit lágu ekki fyrir fyrr en að lokinni vippkeppni - sem allir höfðu gaman af.
Við erum strax farin að hlakka til næsta móts 😊⛳️🕺💃
29/05/2026
Rafholtsmótaröðin
Fyrsta stigamót klúbbsins fór fram í síðustu viku og í efstu sætunum að þessu sinni voru eftirfarandi keppendur:
Besta skor: Annel Jón Þorkelsson
Punktakeppni:
1. Jóhann Sveinbjörn Hannesson
2. Ásgrímur Pálsson
3. Róbert Pálsson
Vinningshafar geta nálgast verðlaunin í klúbbhúsinu.
Næsta mót í Rafholtsmótaröðinni verður svo næsta miðvikudag, 3. júní og hvetjum við alla til að skrá sig sem fyrst í mótið og ekki gleyma að skrá ykkur einnig á sama tíma á venjulegan rástíma.
Mótanefnd
29/05/2026
Þessi kylfa fannst á 17. braut í gær, fimmtudag. Eigandi getur haft samband við afgreiðsluna fyrir nánari upplýsingar.
28/05/2026
Maímánuður ekki búinn og nú þegar búið að fara holu í höggi á Kirkjubólsvelli ⛳️
Það var Ingiþór Arnar Sigurgíslason sem átti draumahöggið sitt á 17. holu í gærkvöldi.
Til hamingju Ingiþór! 👏
Ingiþór fór holu í höggi
Ingiþór Arnar Sigurgíslason gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 17. holu í gær, 27. maí 2026 - fyrsti ásinn á árinu á Kirkjubólsvelli.
23/05/2026
⛳️ SKEMMTIMÓT NÆSTA FÖSTUDAG ⛳️
Þá er komið að fyrsta innanfélags skemmtimótinu í sumar 😀 en það verður haldið næsta föstudag og er skráning hafin á Golfbox.
Við hvetjum alla félagsmenn til að vera með - vana, óvana, konur og karla 😀🏌️
Mótanefnd.
18/05/2026
Hvetjum alla til að skrá sig og vera með! ⛳️😊
6 mót haldin í sumar, 4 telja ⛳️
16/05/2026
GSÍ móti dagsins var aflýst vegna veðurs en völlurinn er í toppstandi þrátt fyrir vind. Við erum búin að opna fyrir skráningar á golfbox og því um að gera að skella sér 🏌️♂️
14/05/2026
Kæru félagar,
Á laugardaginn fer GSÍ mót fram á vellinum okkar og við viljum hafa allt í toppstandi. Til þess að glompurnar verði í sem bestu ástandi og til fyrirmyndar vantar okkur hóp af hressu fólki til að hjálpa okkur að raka þær.
Hvenær? Á morgun, föstudag (15. maí) kl. 18:00.
Hvar: Mæting við vélaskemmu.
Við klárum þetta hratt og örugglega ef við erum mörg! 😀
Með kveðju og fyrirfram þökk fyrir hjálpina.
Vallarnefnd