U.M.F. Tindastóll

U.M.F. Tindastóll

Share

Tilgangur félagsins er að standa fyrir iðkun íþrótta á Sauðárkróki meðal félagsmanna sinna.

11/03/2026
09/03/2026

Aðalstjórn Tindastóls leitar að öflugu fólki sem hefur áhuga á að leggja félaginu lið og taka sæti í aðalstjórn.

Tindastóll er eitt öflugasta íþróttafélag landsins og gegnir lykilhlutverki í samfélaginu okkar. Með því að taka þátt í starfi aðalstjórnar getur þú haft bein áhrif á þróun félagsins, styrkt starfið fyrir börn og ungmenni og hjálpað til við að gera okkar góða félag enn öflugra.

Við leitum að fólki með áhuga, hugmyndir og vilja til að leggja sitt af mörkum fyrir íþróttastarfið í Skagafirði.

Ef þú hefur áhuga eða vilt vita meira, endilega hafðu samband.

Áfram Tindastóll!

Photos from U.M.F. Tindastóll's post 05/01/2026

Íþróttamaður Tindastóls árið 2025 er Emma Katrín Helgadóttir. Við óskum Emmu innilega til hamingju 🥳

Emma Katrín vann á árinu þrjá Íslandsmeistaratitla, þar á meðal tvöfalda Íslandsmeistaratitla í 1. deild fullorðinna í einliða- og tvíliðaleik. Hún er Íslandsmeistari unglinga í tvíliðaleik og er í dag í 6. sæti styrkleikalista kvenna í einliðaleik.

Emma er í afrekshópi Badmintonambands Íslands, hefur keppt fyrir hönd Íslands á alþjóðlegu móti og tekið þátt í norrænum æfingabúðum í Noregi. Hún hefur jafnframt hafið þjálfaraferil sinn, lokið Þjálfaramenntun 1A hjá ÍSÍ og starfar í vetur sem þjálfari hjá Badmintondeild Tindastóls. Emma er metnaðarfull, samviskusöm og afar góð fyrirmynd annarra iðkenda.

04/01/2026

Tilnefningar til Íþróttamanns Tindastóls 2025

Aðalstjórn UMF Tindastóll tilkynnir að mánudaginn 5. janúar verður kynntur Íþróttamaður Tindastóls fyrir árið 2025. Að þessu sinni eiga fimm framúrskarandi íþróttamenn og -konur sameiginlegt að hafa náð frábærum árangri á árinu og verið félaginu og samfélaginu til mikils sóma.

Tilnefndir íþróttamenn eru eftirfarandi:

---

Sigtryggur Arnar Björnsson – Körfuknattleikur

Körfuknattleiksdeild Tindastóls

Körfuknattleiksdeild Tindastóls tilnefnir Sigtrygg Arnar Björnsson sem íþróttamann ársins 2025.
Arnar var og er einn af máttarstólpum liðsins sem varð deildarmeistari í körfuknattleik vorið 2025. Jafnframt spilaði hann síðastliðið sumar með landsliði Íslands á lokamóti EuroBasket og hefur verið fastamaður landsliðsins undanfarin misseri.

Kraftur hans, leikgleði og óbilandi vinnusemi á báðum endum vallarins skipa honum í fremstu röð íslenskra körfuknattleiksmanna. Arnar leggur hart að sér, æfir mikið og býr yfir miklum metnaði – bæði fyrir sjálfan sig og liðið. Hann er liðsfélögum sínum og yngri iðkendum mikil fyrirmynd og sannur liðsmaður jafnt innan sem utan vallar.

---

Freyr Hugi Herbertsson – Júdó

Júdódeild Tindastóls

Júdódeild Tindastóls tilnefnir Freyr Huga Herbertsson sem íþróttamann ársins 2025.
Freyr hefur æft júdó hjá deildinni í um fimm ár og á þeim tíma sýnt einstaka elju, aga og jákvæðni. Hann er ávallt vingjarnlegur og hjálpsamur, gefur sitt besta í æfingum, mótum og verkefnum og er frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur.

Freyr hefur náð framúrskarandi árangri í júdó kata. Sextán ára gamall varð hann í öðru sæti á Íslandsmeistaramóti í fullorðinsflokki. Á árinu 2025, 18 ára gamall, varð hann ásamt félaga sínum Jóhönnu Maríu Grétarsdóttur Noack Norðurlandameistari í A júdó kata í Svíþjóð, þar sem þau sigruðu eldri og hærra gráðuð pör. Þetta er ekki aðeins besti árangur Freys heldur einnig besti árangur Júdódeildar Tindastóls hingað til.

---

Sveinbjörn Óli Svavarsson – Frjálsíþróttir

Frjálsíþróttadeild Tindastóls

Frjálsíþróttadeild Tindastóls tilnefnir Sveinbjörn Óla Svavarsson sem íþróttamann ársins 2025.
Sveinbjörn hafnaði í öðru sæti í 100 metra hlaupi á Meistaramóti Íslands og var jafnframt valinn til að keppa fyrir hönd Íslands í boðhlaupi á Evrópubikarkeppni í 3. deild.

Þar sigraði boðhlaupssveitin keppnina og tryggði Íslandi bæði sigur og sæti í 2. deild. Árangur Sveinbjörns er til marks um mikla hæfileika, vinnusemi og sterka liðsheild.

---

David Bercedo – Knattspyrna

Knattspyrnudeild Tindastóls

Knattspyrnudeild Tindastóls tilnefnir David Bercedo sem íþróttamann ársins 2025.
David er einn af máttarstólpum liðsins og var kosinn Besti leikmaður meistaraflokks karla á síðasta tímabili.

Hann hefur einnig komið sér einstaklega vel fyrir í samfélaginu á Sauðárkróki, starfar á leikskóla bæjarins og sem þjálfari yngri flokka hjá félaginu. David er fyrirmynd jafnt innan sem utan vallar og hefur haft afar jákvæð áhrif á starfsemi deildarinnar.

---

Emma Katrín Helgadóttir – Badminton

Badmintondeild Tindastóls

Badmintondeild Tindastóls tilnefnir Emmu Katrínu Helgadóttur sem íþróttamann ársins 2025.
Emma Katrín vann á árinu þrjá Íslandsmeistaratitla, þar á meðal tvöfalda Íslandsmeistaratitla í 1. deild fullorðinna í einliða- og tvíliðaleik. Hún er Íslandsmeistari unglinga í tvíliðaleik og er í dag í 6. sæti styrkleikalista kvenna í einliðaleik.

Emma er í afrekshópi Badmintonambands Íslands, hefur keppt fyrir hönd Íslands á alþjóðlegu móti og tekið þátt í norrænum æfingabúðum í Noregi. Hún hefur jafnframt hafið þjálfaraferil sinn, lokið Þjálfaramenntun 1A hjá ÍSÍ og starfar í vetur sem þjálfari hjá Badmintondeild Tindastóls. Emma er metnaðarfull, samviskusöm og afar góð fyrirmynd annarra iðkenda.

Aðalstjórn Tindastóls óskar öllum tilnefndum innilega til hamingju með frábæran árangur og hlakkar til að tilkynna Íþróttamann Tindastóls 2025 við hátíðlega athöfn mánudaginn 5. janúar.

Framhaldsaðalfundur Knattspyrnudeildar 23/06/2025

Framhaldsaðalfundur Knattpsyrnudeildar Tindastóls verður haldinn 25. júní nk. kl. 20:00 í Vallarhúsinu. Allir velunnarar knattspyrnudeildar eru hvattir ti lað mæta.
Það eru spennandi tækifæri í knattspyrnudeildinni og mikilvægt að fá öfluga aðila til liðs við deildina. Bæði í stjórn og önnur störf. Vonumst til að sjá sem flesta.

Framhaldsaðalfundur Knattspyrnudeildar Framhaldsaðalfundur Knattpsyrnudeildar Tindastóls verður haldinn 25. júní nk. kl. 20:00 í Vallarhúsinu. Allir velunnarar knattspyrnudeildar eru hvattir ti

05/05/2025

Opið þakkarbréf til FISK Seafood frá Aðalstjórn Tindastóls.

31/03/2025

Við minnum á aðalfund Aðalstjórnar Tindastóls í dag í Húsi frítímans kl. 17:00.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Sauðárkrókur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sauðárkrókur