12/06/2026
Samhliða Króksmóti ÓB er boðið upp á mót fyrir 8. flokk. Leikið er í þriggja manna liðum og hægt er að skrá bæði lið og einstaklinga sem við sjáum um að raða í lið ⚽️
Mótið er tilvalið fyrir t.d. yngri systkini sem vilja líka fá að spreyta sig á vellinu og fara heim með medalíu 🏅
Skráning og frekari upplýsingar hér: https://kroksmot.is/8fl/
20/04/2026
Hlökkum til að sjá ykkur í sumar. Skráning er hafin á www.kroksmot.is ⚽️
12/01/2026
Skráning fyrir árið 2026 er hafin 🥳⚽️🥳
Skráning á Króksmót 2026
Opið er fyrir skráningu á Króksmót Tindastóls sumarið 2026. Skráninguna má finna hér í haus síðunnar eða hér að neðan: Króksmót stúlkna Króksmót drengja
25/06/2025
TikTok · Tindastóll FC
Check out Tindastóll FC’s video.
22/06/2025
Takk fyrir komuna á Króksmót ÓB 2025 🥳
Veðrið lék heldur betur við okkur þessa helgina og vonum við að stelpurnar hafi notið sín.
🏆 Sigurvegarar helgarinnar voru:
Drangey 1: FH Ída Marín
Drangey 2: KA Portúgal
Málmey 1: FH Arna
Málmey 2: Tindastóll X
Þórðarhöfði 1: FH Aldís
Þórðarhöfði 2: Breiðablik Telma Ívars
Lundey 1: Stjarnan gular
Lundey 2: Haukar lauf
Stjarnan hlaut svo háttvísisverðlaun KSÍ en keppendur gerðu okkur í mótsstjórninni erfitt fyrir í ár með valið enda voru stelpurnar allar til fyrirmyndar á mótinu
22/06/2025
Töluvert er af óskilamunum í Árskóla. Endilega kíkið á það.
22/06/2025
Við minnum á að verðlaunaafhending er við vallarhúsið. Fyrsta sætið í hverjum riðli fær afhentan bikar þegar úrslit úr riðlakeppni er ljós.
22/06/2025
Góðan daginn kæru mótsgestir
Hér eru nokkrir punktar inn í daginn:
⚽️ 8. flokks mótið - mæting kl. 10:00 á efsta svæðið næst íþróttahúsinu. Þar verður kynnt hvernig raðast í lið.
Yngri hópur KVK og eldri hópur KK og KVK spila einfalda umferð en yngri hópur KK spila tvöfalda umferð.
🏆 Verðlaunaafhending fer fram við vallarhúsið hjá ÓB-fánunum á milli vallarsvæða. ATH. lið í 1. sæti í hverjum riðli sem merktir eru 1-8 og 9-16 fá bikar.
😴 Rýma skal stofurnar fyrir kl. 11:00 á sunnudagsmorgni og við hvetjum liðin og forráðamenn þeirra til að ganga vel frá stofum og setja rusl út í gáma.