AUKAVIKA - vika 10
Ákveðið hefur verið að bæta við viku 10 í Sumar-TÍM og er búið að opna fyrir skráningar inná Sportabler. ATH að staðsetning verður í Húsi frítímans, Sæmundargötu 7b.
Sumar Tím
Sumar - TÍM stendur fyrir tómstundir, íþróttir og menningu.
Fjölbreytt starf er í boði, má þar nefna Grallara, Litla listamanninn, Eldhússnillinga, fótbolta, körfubolta, golf og margt fleira.
Á morgun í föstudags fjörinu veður víð niðri í húsfrítímans, þeir sem eru í morgun gæslu meiga mæta þangað kl 8:00 og restin kl 9:00
Hlökkum til að sjá ykkur😊
25/07/2025
27/06/2025
Hér að finna dagskrá næstu fjögurra vikna.
19/06/2025
Föstudagsfjörið á morgun verður bíó í HúsFrítímans
Endilega komið með krakkana í Húsfrítímans og eins þegar þið sækið þau, það verður lokað upp í skóla vegna fótbolta mótsins.
Hlökkum til að sjá ykkur :)
12/06/2025
Hæhæ, Á morgun í föstudagsfjörinu verður farið í Litlaskóg!!!!
Krakkarnir eiga að mæta niður í skóla kl 9:00! (þeir sem eru í morgungæslu mæta bara kl 8:00)
02/06/2025
Góðan dag
Hér að finna dagskrá sumarsins.
Hlekkur á skráningu er hér: https://www.abler.io/shop/skagafjordur/6/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTk0MzQ=
Skráningar á íþróttaæfingar hjá Tindastól fara fram í gegnum þennan hlekk: https://www.abler.io/shop/tindastoll
Skráningar á golfnámskeið GSS fara fram í gegnum þennan hlekk: https://www.abler.io/shop/gss/1
Sumar - TÍM er fyrir börn fædd 2019 - 2013 og hefst í 10. júní og stendur til föstudagsins 8. ágúst. Höfuðstöð okkar er í Árskóla B – álmu (þar sem 1. og 2. bekkur gengur inn).
Börn þurfa ekki að hafa fasta búsetu í Skagafirði til þess að geta sótt Sumar - TÍM.
Börn í 1.- 4. bekk geta sótt samfellt starf frá kl. 08:00 – 16:00 mán-fim og 8-12 á fös. Einnig er boðið upp á gæslu í hádeginu með þeim skilyrðum að börnin hafi með sér nesti og útbúnað að heiman sem til þarf yfir daginn.
Fyrirkomulag gæslunnar verður þannig að hún byrjar kl. 12:00 þegar flest öll námskeið eru búin og stendur til kl. 13:00 þegar næstu námskeið byrja. Þar geta krakkarnir borðað nestið sitt og síðan leikið aðeins áður en að næsta námskeið byrjar.
Skráning fyrir hvert og eitt námskeið lýkur ALLTAF fimmtudeginum í vikunni áður en að námskeiðin byrja.
Við viljum vekja athygli á því að börn þurfa líka sumarfrí frá skipulögðu starfi og því biðlum við til ykkar kæru forsjáraðilar að taka sumarfrí með börnunum ykkar. Ekki verður í boði að skrá börn á námskeið allar vikurnar hjá okkur. Eins og segir í Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna þurfum við að hugsa hvað það er sem er barninu fyrir bestu og öll börn þurfa sína hvíld.
Hafi barnið þitt einhverjar sérþarfir væri gott að láta starfsfólk Sumar - TÍM vita.
Við erum einnig dugleg að taka myndir af starfinu og setja inn á Facebook síðuna okkar. Við biðjum börnin alltaf um leyfi en viljum einnig ykkar leyfi. Ef þið eruð mótfallin því að myndir af barninu ykkar fari inn á síðuna, hafið þá samband.
Börn fædd 2019 og eru að ljúka við leikskólastig verður boðið að taka þátt í Sumar - TÍM frá 7. júlí - 8. ágúst. Þeim er boðið að koma til okkar og mæta á stök námskeið. Þau hafa ekki kost á því að vera í samfelldu starfi frá 8:00 – 16:00
Hlökkum til sumarsins með ykkur!
Starfsfólk Sumar-TÍM
[email protected]
Starfsfólk:
Svend Emil Busk 861-3848
Birta Líf Hauksdóttir
Jóhann Friðrik Ellertsson
Snæfríður Eva Eiríksdóttir
Kolbeinn Tumi Sveinsson
Saga Ísey Þorsteinsdóttir
Opnað verður fyrir skráningar mánudaginn 2. júní.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Address
Sauðárkrókur
550