11/06/2026
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla með Karli Agústi , verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins.
Ráðningin er liður í áframhaldandi uppbyggingu körfuknattleiksstarfs Tindastóls, sem hefur aukist verulega að umfangi á undanförnum árum. Deildin byggir á öflugu framlagi sjálfboðaliða sem hafa um árabil lagt grunn að því sterka starfi sem nú fer fram innan félagsins. Samhliða auknum umsvifum er hins vegar ljóst að hluta verkefnanna þarf að festa betur í sessi með skilgreindum hlutverkum og auknu faglegu utanumhaldi, enda er ekki sjálfbært til lengri tíma að dagleg og umfangsmikil verkefni hvíli alfarið á sjálfboðavinnu.
Ísak lýsir yfir mikilli ánægju með komandi tíma í Skagafirði og hlakkar til að takast á við nýjar áskoranir: „Ég er mjög spenntur að flytja í Skagafjörðinn og taka þátt í þessum skemmtilegu verkefnum sem fylgja því að þjálfa Tindastól. Mín stuttu kynni af starfinu hingað til hafa verið mjög góð og er mikil eftirvænting að mæta á svæðið og kynnast öllum í kringum félagið betur,“ segir Ísak Máni sem kemur til starfa af fullum krafti um miðjan ágúst.
Dagur Þór Baldvinsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls, segir ráðninguna mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar: „Með ráðningu Ísaks er markmiðið að styrkja daglegt skipulag deildarinnar, efla þjálfunarumhverfi yngri flokka og styðja enn frekar við starf meistaraflokks karla. Ráðningin er jafnframt mikilvægur liður í því að skapa traustari grunn undir áframhaldandi uppbyggingu körfuboltans á Sauðárkróki og tryggja að verkefnum deildarinnar sé sinnt með faglegum og sjálfbærum hætti.“
Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður Ísak Mána innilega velkominn til starfa. Ljóst er að kraftar hans munu nýtast vel í þeim fjölmörgu verkefnum sem fram undan eru hjá deildinni. Velkominn í Síkið, Ísak.
10/06/2026
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili. Kolbrún María kemur til Tindastóls eftir að hafa leikið í Þýskalandi, auk þess sem hún á að baki glæsilegan feril með yngri landsliðum Íslands.
Israel Martin þjálfari liðsins segir komu Kolbrúnar mikilvæga fyrir áframhaldandi uppbyggingu kvennaliðins. „Á okkar þriðja tímabili í Bónus deildinni er mikilvægt að styrkja liðið með leikmanni eins og Kolbrúnu sem kemur með kraft og seiglu. Vonandi mun það líka hvetja aðra leikmenn að skoða það að ganga til liðs við okkur, Tindastóll er frábært félag og gott að vera hluti af þessu körfuboltasamfélagi hér á Sauðárkróki. Við höldum áfram að vinna að uppbyggingu kvennaliðsins og hlökkum mikið til að vinna með Kolbrúnu á næsta tímabili.“
Kolbrún María segist spennt að koma á Krókinn og ganga til liðs við Tindastóls. „Mér líst mjög vel á félagið, metnaðinn og umhverfið í kringum liðið. Ég hlakka mikið til að kynnast öllum og verða hluti af hópnum. Markmiðið fyrir tímabilið er að hjálpa liðinu að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur saman, ná eins góðum árangri og mögulegt er. Ég hlakka mikið til að byrja!“
Það er mikill fengur fyrir Tindastól að fá Kolbrúnu í sínar raðir, hún er fjölhæfur leikmaður og mikill leiðtogi á vellinum Við hlökkum til að sjá Kollu á parketinu og bjóðum hana hjartanlega velkomna í Síkið!
03/06/2026
Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Tindastóls verður haldinn kl 20:00 fimmtudaginn 18. júní í Húsi Frítímans.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf
28/05/2026
Ert þú eða einhver sem þú þekkir með áhuga á körfubolta eða jafnvel grjótharður stúkudómari sem dreymir um að komast á gólfið með flautuna? 🏀
Nú er tækifærið fyrir öll þau sem vilja kafa dýpra í körfuboltareglurnar að sækja sér dómararéttindi til dómgæslu á vegum KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands
Í haust verður boðið upp á 2 eininga áfanga í körfuboltadómgæslu í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra í samstarfi við KKÍ.
Skráning á skrifstofu skólans
Ert þú eða einhver sem þú þekkir með áhuga á körfubolta eða jafnvel grjótharður stúkudómari sem dreymir um að komast á gólfið með flautuna? 🏀
Nú er tækifærið fyrir öll þau sem vilja kafa dýpra í körfuboltareglurnar að sækja sér dómararéttindi til dómgæslu á vegum KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands
Í haust verður boðið upp á 2 eininga áfanga í körfuboltadómgæslu í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra í samstarfi við KKÍ.
Skráning á skrifstofu skólans.
21/05/2026
Vegna ákvörðunar Byggðaráðs um að veita ekki undanþágu og ætlanir um að rukka Körfuknattleiksdeildina um fullt verð fyrir íþróttahúsið sjáum við okkur ekki fært að vera þar og færum því Lokahófið í Ljósheima.
Ræðumaður kvöldsins verður Rúnar Birgir Gíslason!
Takmarkað miðaframboð - tryggið ykkur miða!
Áfram Tindastóll!
19/05/2026
🤠🏀LOKAHÓF 🏀🥳
📆 Föstudaginn 22.maí
📍Ljósheimar
⌚Húsið opnar kl 19
🎟️Miðasala á Stubb: https://stubb.is/events/oapaRy
🍽 Veislumatur frá Eið
🎸 Magni heldur uppi stuðinu
🤠 Veislustjóri er Ágúst Ingi og biðjum við alla sem vilja stíga á svið að hafa samband við hann fyrir föstudag
Fögnum góðum vetri í góðum félagsskap!
ÁFRAM TINDASTÓLL!
18/05/2026
Við minnum á að þegar húsið opnar verða aðeins inngangar vestan megin opnaðir (af bílastæði við vistina).
Grindvíkingar ganga inn norðan megin (einnig af bílastæði við vistina).
16/05/2026
Svipmyndir úr Grindavík.
Grindavík v Tindastóll, Leikur 3.
Leikur 4 fer fram í Síkinu á Mánudaginn klukkan 19:15
Sæþór Már hitar upp í tjaldinu frá 16:30
Almenn miðasala á Stubb hefst 13:00 á Sunnudag.
Áfram Tindastóll!