Molduxar

Molduxar

Share

Körfubolti
Körfuboltafélag LÖG ÍÞRÓTTAFÉLAGSINS MOLDUXA

1. grein. Félagið heitir Molduxar. Heimili þess og varnarþing er á Sauðárkróki.

2. tvisvar í viku hverri.

Tilgangur félagsins og félagsmanna er að iðka körfuknattleik af meira kappi en forsjá. Enn fremur að auka samheldni liðsmanna jafnt innan vallar sem utan.

3. Aðalfundur skal haldinn árlega í marsmánuði. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins og kýs forseta félagsins. Hann velur sér meðstjórnendur eftir eigin geðþótta. Forseti félagsins fer með málefni þess á milli aðalfunda. Forsetinn

05/04/2026

Molduxarnir sakna þessa fána sem síðast var í notkun í úrslitakeppninni Síkinu í fyrra. Ef einhver hefur hann undir höndum eða veit hvar hann er, þá óskum við eftir því að fánanum verði skilað aftur í íþróttahúsið.

24/03/2026

Þátttökulisti Páskamóts 2026

8 M.I.G.A. Baldur Haraldsson
7 Bjarmaland Guðmar Freyr Magnússon
6 Fíarnir Kristín Þorsteins
5 Góðir vinir Helgi Sæmundur
4 Kúrekar Norðursins Sindri Snær Ægisson
3 Uppsteypa Brynjar Hjaltason
2 Molduxar Ingólfur Jón Geirsson
1 Molduxar Sveinn Brynjar

19/03/2026

MÓTIÐ HEFST KLUKKAN 11

Ertu maður eða mús?
Skráning er hafin á Páskamótið.

27/12/2025

Árni Björn Björnsson hlaut Samfélagsviðurkenningu Molduxa
Við setningu Jólamóts Molduxa hefur frá árinu 2015 verið veitt Samfélagsviðurkenning Molduxa en hana hlýtur einstaklingur sem innt hefur af hendi dugmikið og óeigingjarnt starf til heilla samfélaginu í Skagafirði. Í ár var ákveðið að hana ætti skilið Árni Björn Björnsson, jafnan kenndur við veitingastað sinn Hard Wok.
Árni hefur af sinni einstöku framtakssemi sýnt mikinn velvilja þegar eitthvað bjátar á hjá samborgurum sínum og er óþreytandi við að leggja hönd á plóg þegar þess er þörf. Hefur hann m.a. komið að stofnun góðgerðarfélaginu Englum Skagafjarðar sem ætlað er að safna í sjóð sem yrði notaður til að aðstoða fólk sem á þurfa að halda.
Eftirfarandi er setningarræða mótsstjóra þegar Árna var afhentur blómvöndur ásamt skjali til staðfestingar viðurkenningunni:

Góðir gestir ... velkomnir í Síkið!
Við hefjum okkar árlega jólamót á því að upplýsa hver hefur hlotið hin eftirsóttu Samfélagsviðurkenningu Molduxa en þau hafa verið veitt frá árinu 2015.
Sá sem hlýtur viðurkenninguna í ár er ekki aðeins körfuboltafólki að góðu kunnur heldur samfélaginu öllu. Hann hefur sýnt mikinn velvilja þegar eitthvað bjátar á hjá samborgurum og er óþreytandi við að leggja hönd á plóg þegar þess er þörf og hefur m.a. komið að stofnun góðgerðarfélaginu Englum Skagafjarðar. Mig langar til að fá Árna Björn Björnsson hingað upp til okkar og þiggja smá viðurkenningu frá okkur Molduxum.
Árni kemur í Skagafjörðinn 2007 þegar þau skötuhjú, hann og Ragnheiður fluttu á Hofsós úr Grindavík. Hann segist hafa átt frumkvæðið af því að flytja, ekki Skagfirðingurinn konan hans.
Fyrst við erum hér í Síkinu í dag að leika körfubolta er ekki úr vegi að nefna að Árni stundaði sjálfur íþróttir, júdó, smá fótbolta en aðalega körfubolta. Lék hann með yngri flokkum Grindavíkur og segist vera ægilega montinn af því að hafa verið valinn 14 ára í 50 manna hóp stráka til að fara á landsliðsæfingu á Selfossi. Þar voru strákar eins og Halli Leifs, Kalli Jóns og bræðurnir Eyjólfur og Sverrir Sverrissynir héðan úr Firðinum fagra.
Árni er eðlilega oftast spyrtur við veitingastaðinn sinn Hard Wok sem opnaði 1. maí 2011 og það nafn kemur einnig upp í hugann þegar samfélagshjálp ber á góma. Þau hjónin hafa vakið athygli í samfélaginu þegar kemur að því að styrkja og styðja við fólk sem hefur staðið frammi fyrir erfiðum aðstæðum í lífinu.
Kveikjan að því telur Árni að sé trúin og þau félagslegu gildi sem henni tengjast. Hann segir að þau hjón hafi persónulega lent í pínu ponsu brekkum áður og eftir að þau kynntumst og einhvern veginn hafi alltaf poppað upp englar til aðstoða. Hann segir: „Það sama á við þegar við Ragga höfum vegna aðstöðu okkar á Wok ákveðið að leggja sveitungum okkar lið þá hafa alltaf sprottið upp englar til að aðstoða og þessir dagar eru þeir sem maður á alltaf eftir að muna.“

Hann segist lengi hafa velt því fyrir sér hvernig hægt væri að hjálpa áfram, af því að hann mun ekki verða til eilífðar með Wok, og sú hugmynd komið upp að stofna félag sem varð að veruleika í maí sl.
„Draumurinn minn með Engla Skagafjarðar er sá að 500 til 2000 mans leggi fram mánaðarlega 500 til 1000 kr. þannig að myndarlegur sjóður myndist sem yrði svo notaður til að grípa sveitunga okkar í þeim brekkum sem þeir kunna að lenda í,“, segir Árni og við tökum undir það og bendum fólki á að til eru FB og Instagram síða þar sem hægt er að fylgjast með.
Þar með segi ég 32. Jólamót Molduxa sett!

Photos from Molduxar's post 27/12/2025

Molduxar sigurvegarar Jólamóts 2025
Jólamót Molduxa fór fram í gær, á öðrum degi jóla, þar sem 13 lið öttu kappi í körfubolta af mikilli fegurð og yfirvegun. Það var stuttbuxnadeild Molduxa sem bar sigur úr bítum í úrslitaleik gegn ungum og sprækum piltum í liði Hágæða dráttarvéla en Hús Frítímans fékk flest stigin í B flokki.
Keppt var í tveimur riðlum í A flokki, alls átta lið, og einum riðli í B flokki. Keppt var um sæti í A flokknum þar sem efstu lið hvors riðils tókust á en eins og að framan greinir stóðu Molduxar uppi sem sigurvegarar. Forseti Molduxa, Sveinn Brynjar Pálmason, var spurður hver lykillinn væri að sigrinum: „Það var klárlega, liðstjórnin og innkoma Forsetans á vellinum. Vill svo til að hann var liðsstjóri líka. En það var samt ekkert eitt sem var lykillinn að öllu gamni slepptu. Margir spiluðu vel og lögðu í púkkið. Mögulega meiðsli Vals sem urðu til þess að hann spilaði ekki úrslitaleikinn, honum verður seint þakkað fyrir það og gerði það að verkun að Forsetinn spilaði meira og sigldi þessu heim.“
Líkt og áður sáu leikmenn meistaraflokks Tindastóls um dómgæslu og barna- og unglingaráð um ritaraborð enda rennur allur ágóði mótsins til þessara deilda.
Nokkrar myndir frá mótinu má sjá á mótssíðu Molduxa https://www.facebook.com/groups/1666271746983227

Photos from Molduxar's post 20/12/2025

Ertu nokkuð að gleyma þér?
Skráningu á Jólamótið lýkur í dag!

11/12/2025

Skráningar á Jólamót Molduxa 2025

13 Hús frítímans María Dögg
12 KFC Marín Lind Ágústsdóttir
11 Riddarar ísfjörðs Brynjar Hjaltason
10 Team Borg Halli Borg
9 LNV Birgir Knútur
8 Skagfirska Mafían Kristinn Briem
7 Dalli Splæsir Hlífar Óli
6 Hágæða dráttarvélar Atli Rafns
5 Molduxar VSOP Ingólfur Jón
4 Molduxar Sveinn Brynjar
3 Kúrekar Norðursins Jónas Atli
2 Filmbase Óli Björn Pétursson
1 Bastarðar Helga Rut Hjartardóttir

11/12/2025

Athugið þetta!

04/09/2025

UPPFÆRT!!!!

Við verðum því miður að aflýsa fyrirhugaðri móttöku á hóteli voru, þannig er að við erum alveg týndir, finnum ekki hvorn annan, hvað þá hótelið, gengur bara betur næst.
SKÁL Í BOÐINU!!
RESTIN Í HÁRIÐ!!
Molduxar hafa áhveðið í auðmýkt sinni að taka á móti gestum á hóteli sínu á milli kl:17:05 og 17:29 í dag. Molduxar biðla til fólks um að leyfa konum og börnum að ganga fyrir og ryðjast ekki og bera virðingu hvert fyrir öðru.
Mynd af 0,5 við undirbúning móttökunar.🇮🇸✌🏻

04/09/2025

0,5 að loknum samningaviðræðum um framleiðslu verðlaunagripa fyrir hönd Molduxa. 0,5 landaði samningum á 90 sekúndum, en við þurftum að afþakka fyrirtækið að gjöf að lokum, svo mikið lá þeim á að losna við kauða með öllum ráðum.

Photos from Molduxar's post 07/05/2025

Vor í lofti. Nýbyggingar rísa á Króknum.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Sauðárkrókur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Gilstún 12
Sauðárkrókur
550