Ungmennafélag Skeiðamanna

Ungmennafélag Skeiðamanna

Share

Ungmennafélag Skeiðamanna

03/06/2026

Leikjanámskeið í júní 🕺

Námskeiðið verður til húsa í gamla bókasafninu í Brautarholti.
Fyrir börn sem eru að klára 1-5.bekk.
Umsjónarmaður námskeiðsins er hún Hjördís Katla og henni til aðstoðar verða þau Aníta Mist og Magnús Veigar.

Hér koma nokkur orð frá Kötlu:

"Ég heiti Hjördís Katla og er hress og kát 19 ára stelpa frá Selfossi. Ég var að útskrifast úr ML í maí og draumur væri ef leiðin lægi að LHÍ í leikaranám. Ég er afar félagslynd, traust og finnst fátt skemmtilegra en að vera í góðra vina hópi. Það er sjaldan dauð stund í kring um mig og ég vil passa að öllum líði vel. Ég er mjög spennt að fá að kynnast öllum krökkunum yfir skemmtilegu spili, að mála mynd, í fótbolta og við að bralla eithvað skemmtilegt saman í sumar"

Hér er linkur á skráningu:
https://www.abler.io/.../product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTg1MzA=?

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda póst á [email protected]

Photos from Ungmennafélag Skeiðamanna's post 19/05/2026

Skráning er opin á leikjanámskeið í júní 🕺
Námskeiðið verður til húsa í gamla bókasafninu í Brautarholti.
Fyrir börn sem eru að klára 1-4.bekk.
Umsjónarmaður námskeiðsins er hún Hjördís Katla.
Hér koma nokkur orð frá henni:

"Ég heiti Hjördís Katla og er hress og kát 19 ára stelpa frá Selfossi. Ég er að útskrifast úr ML í maí og draumur væri ef leiðin lægi að LHÍ í leikaranám. Ég er afar félagslynd, traust og finnst fátt skemmtilegra en að vera í góðra vina hópi. Það er sjaldan dauð stund í kring um mig og ég vil passa að öllum líði vel. Ég er mjög spennt að fá að kynnast öllum krökkunum yfir skemmtilegu spili, að mála mynd, í fótbolta og við að bralla eithvað skemmtilegt saman í sumar"

Hér er linkur á skráningu:
https://www.abler.io/shop/heilsueflandiuppsveitir/umfskeidamanna/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTg1MzA=?

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda póst á [email protected]

20/04/2026

SUMARDAGURINN FYRSTI Í BRAUTARHOLTI ☀️
Við höldum daginn hátíðlegan eins og vanalega.

> Ærslabelgurinn formlega opnaður eftir vetrardvala
> Bjóðum upp á pizzu, drykki og sæta bita á meðan birgðir endast
> Höldum þríþrautaliðakeppni !!

Markmiðið er að hafa gaman og sprella saman.
Þríþrautakeppnin er hugsuð þannig að það séu 5 saman í liði, blandaður hópur af börnum, unglingum og fullorðnum.
Þraut eitt er að hlaupa hring í kring um Brautarholt, um 500 m. Besti tími liðsfélaga er skráður.
Liðin keppa á móti hvert öðru í reipitogi og enda svo keppni á hópmynd þar sem flottasta stellingin hjá liðinu er valin sigurvegari!

Verðlaun í boði fyrir sigur í hverri þraut fyrir sig!

Hlökkum til að sjá ykkur í Brautarholti á sumardaginn fyrsta þann 23.apríl 2026

09/04/2026

AÐALFUNDUR UMFSkeið
14.apríl kl 20:00
Gamla bókasafninu í Brautarholti

Photos from Ungmennafélag Skeiðamanna's post 25/02/2026

❤️♠️Fjórða og síðasta spilakvöldinu er þá lokið!♦️♣️

Spilað var á 7 borðum og voru nokkur ný andlit í hópnum. Samtals spiluðu 44 mismunandi spilarar þetta árið sem okkur þykir ofboðslega skemmtilegt.

Stigahæsta kona kvöldsins var Peta með glæsilega 143 slagi og stigahæsti karlinn var Tristan með 128 slagi. Þau fengu að sjálfsögðu skemmtileg borðspil í verðlaun.

Setuverðlaunin hlaut Guðrún, en hún sat hvorki meira né minna en 15 sinnum á borði 6! Það verður seint toppað 👏

Að loknum öllum fjórum kvöldunum voru það þrjú hæstu kvöld hvers spilara sem töldu til heildarstiga.

🥇 1. sæti: Peta
🥈 2. sæti: Freyja
🥉 3. sæti: Villi

Peta stóð uppi sem heildarsigurvegari og hlaut í verðlaun gistingu hjá
Heima Holiday Homes 🎉🏡

Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna, gleðina og frábæra stemningu á öllum fjórum kvöldunum !

Við hvetjum fólk til að æfa sig heima og kenna næstu kynslóðu listina að spila og sjáumst sem flest að ári!

Kveðja,
Spilanefndin, Aníta, Lára & Freyja❤️✨

24/02/2026

Síðasta kvöldið í kvöld! Láttu þig ekki vanta! Glæsilegir vinningar 🏆

Það er að koma að árlegu spilakvöldunum okkar aftur!
Nú er um að gera að taka dagsetningarnar frá og byrja að æfa sig!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Selfoss?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Brautarholt
Selfoss
804