Golfklúbbur Selfoss - Golfclub Selfoss, Iceland

Golfklúbbur Selfoss - Golfclub Selfoss, Iceland Svarfhólsvöllur er flottur 14 holu völlur við bakka Ölfusár í 35 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Allir áhugasamnir kylfingar velkomnir á völlinn.

22/09/2026
19/09/2026

Fyrsta höggið á verðandi 2.holu 😍

🔴 VESTUR SIGRAÐI BÆNDAGLÍMU GOS 2026! 🔴Úrslitin eru klár eftir frábæran dag á Svarfhólsvelli. Svanur Geir Bjarnason bónd...
19/09/2026

🔴 VESTUR SIGRAÐI BÆNDAGLÍMU GOS 2026! 🔴

Úrslitin eru klár eftir frábæran dag á Svarfhólsvelli. Svanur Geir Bjarnason bóndi leiddi Vesturliðið til sigurs gegn Austurliði Halldórs Morthens.

🏆 Lokastaðan: Vestur 23 – Austur 19

🔴 Sigrar Vesturs: 21
🔵 Sigrar Austurs: 17
🟣 Jafntefli: 4

Jafnteflin gáfu hvoru liði hálft stig og því lauk glímunni með fjögurra stiga sigri Vesturs.

Það var virkilega skemmtileg stemning og mikil spenna í leikjunum. Einnig voru skrifuð smá söguleg tímamót þegar Grímur Arnars sló fyrsta höggið á verðandi 2. holu vallarins. ⛳️👏

Innilega til hamingju, Svanur og Vesturliðið! ❤️

Takk allir keppendur fyrir frábæran dag og einstaklega skemmtilega leið til að ljúka mótatímabilinu hjá GOS. 🔴🔵

🔴 VESTUR gegn AUSTUR 🔵Viðureignirnar í Bændaglímu GOS 2026 eru klárar!Á laugardaginn, 19. september, mætast liðin í 42 h...
17/09/2026

🔴 VESTUR gegn AUSTUR 🔵
Viðureignirnar í Bændaglímu GOS 2026 eru klárar!

Á laugardaginn, 19. september, mætast liðin í 42 holukeppnisleikjum. Svanur Geir Bjarnason leiðir vesturliðið í rauðu og Halldór Morthens austurliðið í bláu.
Sjáðu á myndinni hverjum þú mætir og af hvaða teig þú byrjar! 👀⛳

Í ár spilum við 15 holur og fáum að prófa verðandi 2. holu í fyrsta og eina skiptið á þessu ári ( Hún verður spilum sem 14 hola í þessu móti). Grímur Arnarson Formaður GOS fær þann heiður að slá fyrsta höggið á holunni! 👏

🕙 Mæting kl. 10:00
🏌️ Ræst af öllum teigum kl. 10:30
👕 Mætið í lit ykkar liðs! MJÖG MIKILVÆGT

Leikin verður holukeppni með vallarforgjöf, að hámarki einu höggi á holu.
Dæmi: Jón er með 10 í forgjöf og Páll 20 þá fær Páll 10 högg í forgjöf, eitt á 10 erfiðustu holunar
Liðið sem vinnur fleiri leiki sigrar Bændaglímuna.
Ef liðin verða jöfn skera bændurnir úr í bráðabana.

Við hlökkum til að slútta golftímabilinu með ykkur — sjáumst á laugardaginn! 🔥

Síðasta Footjoy mótið var haldið í vikunni. það var Footjoy Pylsuvagnsmótið. Guðbjörg Guðmundsdóttir sigraði það með 29 ...
11/09/2026

Síðasta Footjoy mótið var haldið í vikunni. það var Footjoy Pylsuvagnsmótið.

Guðbjörg Guðmundsdóttir sigraði það með 29 punkta. Við óskum henni til hamingju með það. Hægt er að vitja verðlauna í golfskálanum.

Úrslit mótaraðarinnar verða svo gerð kunn hér á Facebook síðunni um eða eftir helgi, það er samt hægt er að sjá stöðuna á Golfbox.

Við þökkum Footjoy kærlega fyrir samstarfið í sumar ásamt öllum þeim sunnlensku fyrirtækum sem veittu verðlaun.

Fjórtánda og næstsíðasta Footjoy mótinu lauk í síðustu viku. Betra er seint en aldrei að upplýsa um úrslitin í því móti....
08/09/2026

Fjórtánda og næstsíðasta Footjoy mótinu lauk í síðustu viku. Betra er seint en aldrei að upplýsa um úrslitin í því móti. Um var að ræða Footioy Fjöruborðsmótið.

Það var Ársæll Ársælsson sem sigraði með 28 punktum og við óskum honum til hamingju með það. Hægt er að nálgast verðlaun í golfskálanum.

Í þessari viku klárast svo Footjoy mótaröðin.

02/09/2026

⛳ Fréttir af æfingarsvæði og Golfskála GOS

Grassvæði æfingarsvæðisins lokað

Gríðarleg nýting hefur verið á grassvæðinu á æfingarsvæði GOS í sumar og álagið eftir því. Félagsmenn og gestir hafa greinilega verið duglegir að æfa sem er auðvitað frábært! 👏🏌️‍♂️

Nú er hins vegar komið að því að gefa grasinu smá hvíld og hefur því verið lokað fyrir slátt af grasi á æfingarsvæðinu frá og með deginum í dag.

Pitchsvæðið verður áfram opið að einhverju leyti.

Við biðjum félagsmenn um að hjálpa okkur að passa upp á að kylfingar séu ekki að slá af grassvæðinu eftir lokun. Þetta er jú okkar sameign, eins og annað á svæðinu, og með góðri umgengni hjálpumst við að við að halda svæðinu sem bestu. 💚

Æfingaskýlið verður áfram opið frá birtingu til kl. 22:00 og við erum búin að kveikja á flóðlýsingunum fyrir haustið. 💡⛳

🍔 Veitingasalan og Golfskálinn

Nú eru stelpurnar okkar byrjaðar aftur í skólanum og því verður þjónustan aðeins minni næstu vikurnar.

Á virkum dögum:
• Veitingasalan opnar kl. 10:00 fyrir almenna afgreiðslu
• Grillið opnar kl. 15:00
• Lokað kl. 20:00

Golfskálinn verður opinn á virkum dögum til 21. september.

Síðan líður hægt og rólega að lokum sumarsins hjá okkur og stefnt er að því að Golfskálinn loki fyrir veturinn í fyrstu vikunni í október.

Takk fyrir frábært sumar hingað til og takk fyrir að ganga vel um svæðið okkar. 💚⛳

Áfram GOS!

⛳️ BÆNDAGLÍMA GOS 2026 – 15 HOLUR! 🔴🔵Bændaglíma GOS verður haldin laugardaginn 19. september og í ár ætlum við að gera e...
01/09/2026

⛳️ BÆNDAGLÍMA GOS 2026 – 15 HOLUR! 🔴🔵

Bændaglíma GOS verður haldin laugardaginn 19. september og í ár ætlum við að gera eitthvað alveg sérstakt!

Spilaðar verða 15 holur – já, við ætlum að bæta við einni holu! 🎉

Leikið verður inn á verðandi 2. holu, sem er ein af þeim fjórum nýju holum sem við stefnum á að opna á næsta ári. Þetta verður í eina skiptið á þessu ári sem kylfingar fá að spreyta sig á holunni – spennandi forsýning á því sem koma skal! 👀⛳️

Fyrirkomulag

🔹 Mæting kl. 10:00
🔹 Ræst af öllum teigum stundvíslega kl. 10:30
🔹 Spilaðar verða 15 holur
🔹 Fjórir leikmenn verða saman í hverju holli
🔹 Spiluð verður holukeppni með forgjöf
🔹 Notuð er forgjafarregla úr Holukeppni GOS – hámark eitt högg á holu
🔹 Það lið sem vinnur fleiri leiki samanlagt sigrar Bændaglímuna
🔹 Verði liðin jöfn munu bændurnir sjálfir spila bráðabana!

Bændurnir, með aðstoð mótstjóra, skipta þátttakendum í liðin. Skiptingin miðast við austur og vestur Tryggvagötu.

🔵 Austurliðið – blátt
Bóndi: Halldór Morthens

🔴 Vesturliðið – rautt
Bóndi: Svanur Geir Bjarnason

🎨 Munið litina!
Leikmenn eru eindregið hvattir til að mæta í lit síns liðs og sýna strax hvoru megin þeir standa!

Skráning

Skráning fer fram í GolfBox og lýkur fimmtudaginn 17. september kl. 10:00.

Þátttökugjald er 2.500 kr.

Hámarksfjöldi er 80 þátttakendur – 40 í hvoru liði, svo það borgar sig að skrá sig tímanlega!

Halldór og Svanur hittast á föstudeginum og raða þátttakendum niður í leikina.

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur og slútta þessu frábæra golftímabili saman með alvöru Bændaglímu! ⛳️🔴🔵

Opna Úrval/útsýn mótið var haldið um helgina. Um var að ræða Texas Scramble mót og um 200 kylfingar tóku þátt.Úrslit vor...
31/08/2026

Opna Úrval/útsýn mótið var haldið um helgina. Um var að ræða Texas Scramble mót og um 200 kylfingar tóku þátt.

Úrslit voru eftirfarandi:
1. sæti = Baby Slice - Arnór Tjörvi Þórsson og Einar Bjarni Helgason -13
2. sæti = 1-2 og Negla - Kristín Þóra Möller og Örn Ævar Hjartarson -11
3. sæti = Erlingur Björn Pétursson - Erlingur Örn Birgison og Máni Páll Eiríksson -10

Nándarverðlaun voru eftirfarandi:
2. hola = Valdemar Gestur Valdemarsson 27cm
7. hola = Karl Eiríksson 138cm
10. hola = Ragnar Helgi Ragnarsson 284cm
12. hola = Guðjón Öfjörð 7cm

Hægt er að vitja vinninga í golskálanum.

Við þökkum öllum kylfingum fyrir að koma og taka þátt. Við þökkum líka Úrval/útsýn kærlega fyrir að halda mótið með okkur.

Address

Svarfhólsvöllur
Selfoss
803

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Golfklúbbur Selfoss - Golfclub Selfoss, Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category