24/05/2026
Hlökkum til að fá þig á einn skemmtilegasta völl landsins 🏌️♀️🏌️⛳️
The game of golf
24/05/2026
Hlökkum til að fá þig á einn skemmtilegasta völl landsins 🏌️♀️🏌️⛳️
05/05/2026
Hægt að kaupa “stakt” félagsgjald á aðeins kr. 16.000.- og gefur rétt á aðild að G*Y, skráningu í golfbox GSÍ ásamt 3 hringjum á Haukadalsvelli í sumar.
04/05/2026
Árgjald 2026:
• Einstaklingur – 29.900 kr. (ótakmarkað golf )
• Hjón – 50.400 kr.
• 17 ára og yngri – 21.200 kr.
Einnig hægt að kaupa “stakt” félagsgjald á aðeins kr. 16.000.- og gefur rétt á aðild að G*Y og GSÍ ásamt 3 hringjum á vellinum í sumar.
Allar frekari upplýsingar um klúbbinn og árgjöld veitir gjaldkeri golfklúbbsins Gunnar Skúlason. Tölvupóstur sendist a [email protected]
Við hlökkum til að taka á móti ykkur sumarið 2026.
Gjafaleikur Golfklúbbsins Geysis
Við ætlum að gefa einum heppnum vinningi sem er fullkominn fyrir golf- og dekurhelgi í Haukadal.
Í vinning er:
Nótt á Hótel Geysi fyrir tvo, dýrindis kvöldverður, morgunverður og 18 holur á einum fallegasta golfvelli landsins — Haukadalsvelli.
Til að taka þátt:
Fylgdu Golfklúbbnum Geysi á Instagram og Facebook og skrifaðu í athugasemd hvern þú myndir vilja bjóða með þér og endilega deila líka ✅
Við hlökkum til að sjá ykkur á vellinum í sumar.
Árgjaldið hjá Golfklúbbnum Geysi er aðeins 29.900 kr.
Hjónagjald er 50.400 kr.
Einnig er hægt að vera aukameðlimur og fá 3 hringi á aðeins 16.000 kr.
Sjáumst í Haukadal í sumar.
(Dregið verður 15 maí)
10/04/2026
⛳️🏌️♀️🏌️🏌️♂️
Skráning og frekari upplýsingar:
📩 [email protected]
Við hlökkum til að sjá þig á vellinum í sumar⛳
Um síðastliðna helgi var Hótel Geysir open, texas scramble golfmót á Haukadalsvelli við Geysi og voru 60 keppendur skráðir til leiks.
Völlurinn skartaði sínu fegursta og veðurguðirnir voru keppendum hliðhollir, bjart, hægur vindur, yfir 20 stiga hiti.
Verðlaunin voru ekki af verri endanum, gistingar, kvöldverðir á Hótel Geysir, gjafapokar frá Geysir Verslun ásamt gjafabréfum í golf.
Veitt voru verðlaun fyrir efstu 3.sætin og nándarverðlaun á par 3 brautum vallarins.
1.verðlaun á -8 höggum
Gistingar, morgun-og kvöldverðir á Hótel Geysir,
ásamt gjafapoka frá Geysir Verslun og gjafabréf í golf
Halturleiðirblindann
Arnar þór Gíslason GR
Pálmi Hlöðversson G*Y
2.verðlaun á -7 höggum
Gistingar á Hótel Geysir með morgunverði,
gjafapoki frá Geysir Verslun og gjafabréf í golf
Skríplarnir
Kristinn Þór Guðlaugsson GSE
Júlíus Freyr Valgeirsson GSE
3.verðlaun á -6 höggum
Gjafapoki frá Geysir Verslun og gjafabréf í golf
BS5 Holding
Hjálmar Tumi Þorkelsson Diego GR
Benedikt Stefánsson GR
Nándarverðlaun á 5/14 holu
Gjafapoki frá Geysir Verslun og gjafabréf í golf
Lárus Petersen Golfklúbbur Reykjavíkur 76cm
Nándarverðlaun á 7/16 holu
Gjafapoki frá Geysir Verslun og gjafabréf í golf
Arnór Ingi Hlíðdal GOS 167cm
Þökkum Hótel Geysi fyrir afar rausnarleg verðlaun og þátttakendum fyrir frábæran dag á Haukadalsvelli