Judofelag Sudurlands

Judofelag Sudurlands

Share

We are the Icelanders Judoka

27/05/2025

JUDO - BUDO NORD CUP 2025
Agla Ósk Ólafsdóttir Judofélagi Suðurlands er á leið til Lundar í Svíþjóð þar sem hún mun keppa í Judo á BUDO NORD CUP fimmtudaginn 29. maí. Þetta er fyrsta erlenda mót Öglu og verður spennandi að sjá hvernig henni gengur.
Agla mun keppa í flokki undir 18 ára, hún hefur á stuttum ferli náð ótrúlegum framförum í íþróttinni og til alls líkleg.
Með Öglu fer Sara N. Ingólfsdóttir sem farastjóri og þjálfari en Sara á stóran þátt í undirbúningi og þjálfun Öglu.
Mynd : Sara N. Ingólfsdóttir og Agla Ósk Ólafsdóttir

27/05/2025

Böðvar Arnarsson valinn í landslið á Smáþjóðaleikunum í judo

Það eru þau Kjartan Hreiðarsson (-100 kg) Aðalsteinn Karl Björnsson og Skarphéðinn Hjaltason (-90 kg), Böðvar Arnarsson, úr Judofélagi Selfoss, og Mikael Ísaksson (-81 kg) Gylfi Jónsson (-73 kg) Helena Bjarnadóttir (-63 kg), Weronika Komendera (-57 kg) og Eyja Viborg (-52 kg). Með þeim í för er Gísli Egilsson flokkstjóri og þjálfarar þeir Þormóður Árni Jónsson og Zaza Simonishvili.

12/05/2025

Arnar Helgi með silfur á Norðurlandmótinu í judo 2025

Tveir keppendur frá JS (Judofélagi Suðurlands) Arnar Helgi Arnarsson og Böðvar Arnarsson tóku þátt í Norðurlandamótinu í judo sem fór fram í Bröndby Danmörku um liðna helgi, þátttakendur í mótinu voru rúmlega 600.
Arnar Helgi sem er 17 ára og keppti á fyrsta ári í flokki undir 21 árs stóð sig frábærlega og náði öðru sæti, sigraði hann 2 andstæðinga sína með nokkrum yfirburðum á fullnaðar sigri. Rasmus Strömstedt frá Svíþjóð var þó sterkari í þetta sinn og tók gullið.
Arnar Helgi keppti einnig í flokki fullorðinna og stóð sig með ágætum en varð að játa sig sigraðan fyrir eldri og reyndari mönnum.
Böðvar keppti í 81kg flokki fullorðinna en varð að láta í minni pokann fyrir andstæðingunum þennan daginn en keppnin mun skila reynslu fyrir komandi mót.

Mynd: Arnar Helgi Arnarsson silfur, Rasmus Strömstedt Svíþjóð gull og Jan Snarski Noregi bronz

08/05/2025

Böðvar og Arnar Helgi keppa á Norðurlandamótinu í Judo 2025

Norðurlandamótið í Judo verður í Bröndby Danmörku um helgina 9. – 11. maí.
Mikil þátttaka er á þessu móti og keppendur frá 8 löndum.

Að þessu sinni fara tveir keppendur frá Judofélagi Suðurlands þeir Böðvar Arnarsson sem keppir í 81kg flokki fullorðinna og Arnar Helgi Arnarsson sem mun keppa í 100kg í flokki yngri en 21 árs en einnig 100kg flokki fullorðinna en þess má geta að Arnar Helgi er aðeins 17 ára. Báðir hafa æft af kappi fyrir Norðurlandamótið og þau verkefni sem eru fram undan.
Á myndinni eru : Agla, Arnar Helgi, Sara, Íris, Böðvar og Arnar Freyr

22/04/2025

Agla Íslandsmeistari 2025

Íslandsmót Judosambands Íslands var haldið í sal Judodeilar Ármanns í Laugardal Reykjvík laugardaginn 12. apríl 2025 og var þátttaka mjög góð, keppendur 110 í hinum ýmsu aldurs- og þyngdarflokkum.
Tveir keppendur voru frá Judofélagi Suðurlands Agla Ólafsdóttir og Arnar Helgi Arnarsson og gekk þeim vel.
Agla Ólafsdóttir keppti í flokki undir átján ára og vann gullverðlaun og þar með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og örugglega ekki þann síðasta.
Þá keppti Agla upp fyrir sig í aldursflokki undir U21 og tók þar silfur verðlaun. Býsna góður dagur hjá Öglu.
Arnar Helgi Arnarsson keppti í þetta skipti í flokki + 100kg og náði 3.sæti.

07/04/2025

Stelpurnar í JS unnu 2 gullverðlaun

Vormót Judosambands Íslands í flokkum fullorðinna var haldið í sal judodeildar ÍR laugardaginn 5. apríl. Judofélag Suðurlands sendi 5 keppendur og hlaut 4 verðlaun. Sara N. Ingólfsdóttir sigraði sinn flokk með glæsibrag þannig að eftir var tekið og Agla Ólafsdóttir sem er aðeins 16 ára og að keppa upp fyrir sig í aldri stóð sig sóma og hlaut silfur. Íris Ragnarsdótttir missteig sig aðeins í byrjun en vann síðan örugglega gullverðlaun og ekki vafi á hver var bestur í hennar flokki þennan daginn.

Böðvar Arnarsson vann brons verðlaun en átti mikið meira inni þó ekki tækist að sýna það í þetta skiptið.

Sara N. Ingólfsdóttir, Íris Ragnarsdóttir og Agla Ólafsdóttir.

25/03/2025

Agla vann tvö gull og Arnar eitt
Vormót Judosambands Íslands var haldið á Akureyri laugardaginn 22. mars.
Tveir keppendur voru frá Judofélagi Suðurlands og gekk þeim vel.
Agla Ólafsdóttir keppti í sínum flokki undir átján ára og vann þar gull og gerði sér svo lítið fyrir og vann einnig gullverðlaun í flokki undir 21 árs á einstaklega glæsilegan hátt er hún vann mun reyndari keppanda á hreinu kasti eftir stutta viðureign.
Arnar Helgi Arnarsson keppti í flokki undir 100kg og vann þann flokk nokkuð auðveldlega og Arnar kominn í hóp sterkestu judomanna Íslands

19/02/2025

Arnar Helgi og Heiða í Judofélagi Suðurlands hafa verið valin í landsliðið í Judo og munu keppa á Matsumae Cup í Vejle Danmörku 15. – 16. febrúar og í framhaldinu fara í æfingabúðir 17. – 18. febrúar. Efnilegir judomenn þarna á ferðinn.
Matsumae Cup er eitt stærsta judomót norðulanda með keppendur frá mörgum löndum svo sem Japan, Bretlandi, Þýskalandi, Tekklandi, Póllandi, Canada, Írlandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, og Íslandi. Fjöldi keppenda er um 700 og keppt á 4 völlum í tvo daga.

Arnar Helgi og Heiða keppa á Matsumae Cup Judo

19/02/2025

Reykjavík Judo Open 2025
Alþjóðlegt mót (RIG) í JUDO fóru fram 25. janúar í Laugardalshöllinni í Reykjavík voru keppendur rúmlega 60 og þar af um helmingurinn erlendis frá. Judofélag Suðurlands átti 4 keppendur þau Böðvar Arnarsson, Söru Ingólfsdóttur, Írisi Ragnarsdóttur og Arnar Helga Arnarsson. Þá var Heiða Arnardóttir einnig skráð en fékk ekki keppni þar sem vantaði keppendur í hennar þyngdarflokki.
Arnar Helgi náði frábærum árangri eða silfur verlaunum. Vann í fyrstu viðureign Kjartan Hreiðarsson JR og í annarri viðureign Viktor Kristmundsson. Þar með hafði Arnar Helgi áunnið sér rétt til þess að berjast um gullið en varð að láta í minni poka fyrir norðmanninum Hans Leo og hreppti þar með silfur.
Böðvari, Söru og Írisi gekk ekki eins vel í þetta skiptið og má að hluta skrifa það á vöntun á meiri reynslu á alþjóðlegum mótum og æfingabúðum.

Arnar Helgi Arnarsson JS, Hans Leo Noregi, Viktor Kristmundsson JR og Heully Dantas JR

08/11/2024

Sæþór Jóhannsson
Haustmót Judosambands Íslands 2024 fór fram 5. október í Reykjanesbæ og keppti Sæþór Jóhannsson þar í fyrsta skipti á judomóti. Hann keppti í flokki drengja undir 13 ára.
Sæþór stóð sig með sóma og náði 3. sæti gæsilegur íþróttamaður þar.

08/11/2024

Svavar Bergmann Bjarnason
Afmælismót Judofélags Reykjavíkur 2024 fór fram 19. október hjá Judofélagi Reykjavíkur í aðstöðu JR og keppti Svavar þar í fyrsta skipti á judomóti. Hann keppti í flokki drengja undir 11 ára.
Svavar Bergmann stóð sig með sóma vann 2 glímur og keppti til úrslita um gullið en varð að játa sig sigraðann gegn reyndari keppenda en náði silfri. Sannalega efnilegur íþróttamaður á ferð

Photos from Judofelag Sudurlands's post 05/10/2024

Glæsilegur keppnisdagur í dag á Haustmóti JSÍ, Arnar Helgi með gull og Sara með silfur!
Takk fyrir okkur!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Selfoss?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Worldclass Tryggvagötu 15 Selfossi
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 16:00 - 21:00
Tuesday 16:00 - 21:00
Wednesday 16:00 - 21:00
Thursday 16:00 - 21:00
Friday 16:00 - 21:00