14/06/2021
Systkinin Sunna og Svalur frá Fellskoti fóru í ágætan kynbótadóm í síðustu viku og hlutu bæði 9.fyrir tölt og Svalur reyndar líka níu fyrir hægt tölt. Sunna er 6v. undan Spes frá Fellskoti og Sjóði frá Kirkjubæ. Hún var sýnd af Teiti Árnasyni og hlaut f. byggingu 8,20 hæfileika 8,28 og aðaleinkunn 8,26.
Svalur er 4v. undan Spes frá Fellskoti og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum og sýndur af Þorgeiri Ólafssyni. Hann fékk í byggingu 8,24 hæfileika 7,85 og aðaleinkunn 7,99.
Greinilega margt líkt með þessum systkinum sem voru snildarvel sýnd af Teiti og Þorgeiri og greinilegt að Spes er að gefa mjög skemmtileg hross, einstaklega geðgóð og hreyfingamikil.
10/05/2021
Hér er Þorgeir Ólafsson á Hetju frá Fellskoti. Viljug alhliða hryssa undan Hnotu gömlu.
06/05/2021
Það er löngu kominn tími á að setja inn myndir af hrossunum. Hér er Freisting frá Fellskoti 5 v. hryssa undan Hugmynd frá Fellskoti og Sjóði frá Kirkjubæ. Freisting er búin að vera í tamningu hjá Birgittu og Þorgeiri í vetur og hér er Þorgeir á Freistingu í góða veðrinu í gær.
09/06/2020
Fjörurra vetra folinn Hrynjandi frá Fellskoti fór í byggingadóm í Spretti í byrjun júní. Hann fékk 8,19 fyrir byggingu og þar af 8,5 fyrir höfuð, háls og herðar, bak og lend og samræmi og 9 fyrir prúðleika. Hæfileikadómur bíður næsta árs. Hann er síðasta afkvæmi Hnotu gömlu frá Fellskoti og faðirinn er Gaumur frá Auðsholtshjáleigu. Þorgeir og Birgitta hafa tamið hann í vetur og nú fer hann í frí til haustsins.
10/04/2020
Fórum í göngutúr og kíktum á stóðhestana. (Allir að hlýða Víði og fara í göngutúr.) Þeir eru bara tveir og hafa það gott í blíðunni. Þessi skjótti heitir Svalur frá Fellskoti og verður 3.v. í vor. Hann er undan Spes frá Fellskoti og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum. Í fyrrasumar reitti hann af sér allt fax en það er vaxið aftur sem betur fer. Á ekki videó af honum nema þegar hann var folald.
29/02/2020
Við fórum með tvö folöld á folaldasýningu Hrossaræktarfélags Biskupstungna s.l.laugardag. Þau stóðu sig bæði mjög vel og stóðu efst í sínum flokkum.
Snillingur frá Fellskoti móálóttur undan Spes frá Fellskoti og Gaumi frá Auðsholtshjáleigu stóð efstur í hestaflokki og hryssan Fylking frá Fellskoti jarpskjótt stóð efst í hryssuflokknum. Hún er undan Hugmynd frá Fellskoti og Hákoni frá Ragnheiðarstöðum.
We went with two foals at foal show Hrossaræktarfélags Biskupstungna last Saturday.They made a good trip and were in first place in their classes.
Snillingur from Fellskot mother Spes from Fellskot and father Gaumur from Auðsholtshjáleiga was in 1. place in horse group and the mare Fylking from Fellskot was in 1.place of the mare group.Her mother is Hugmynd from Fellskot and the father is Hákon from Ragnheiðarstaðir.
27/11/2019
Það vantar alveg moldótt hross í hópinn núna. S.l. föstudag felldum við Hnotu gömlu.. Hún var fædd 1994 og því orðin gömul og hætt að eignast folöld. Hún var undan Moldu frá Viðvík og Ófeigi frá Flugumýri. Síðasta folaldið fæddi hún dautt 2018. Hnota hefur gefið okkur 14 afkvæmi og þar af hafa 6 farið í fyrstu verðlaun og er Hnokki þar efstur.
Núna eru í tamningu 2 síðustu afkvæmi hennar Hetja 4 v. undan Ómi frá Kvistum og Hrynjandi 3 v. undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu. það verður gaman að fylgjast með þeim í vetur.