Allar upplýsingar um mótin okkar má finna inni á vefsíðunni selfossmotin.is
hlökkum til að sjá ykkur á Selfossi í sumar ♥️⚽️
JAKO mótið í knattspyrnu
Nýtt 5 á 5 mót fyrir 7. flokk karla þar sem spilað er eftir "bannað að negla" reglunni. Kennum leikmönnum að byggja upp spil frá aftasta manni
02/06/2022
Hér er mynd af svæðinu okkar ... https://jakomotid.torneopal.com/
02/06/2022
Nú styttist og styttist í mótið .. hér má sjá leikjaniðurröðun og aðrar upplýsingar
04/06/2021
Leikir, upplýsingar og vallarskipulag á nýrri mótasíðu Jakó mótsins. Hlökkum til að sjá ykkur 👏❤️⚽️
15/05/2020
Nú styttist í mótið í ár
Allar upplýsingar hafa verið sendar á þjálfara og skráning er með besta móti
Frítt verður í sund fyrir keppendur og verður grillveisla á hverju keppnissvæði fyrir sig í mótslok fyrir strákana
Hlökkum til að sjá ykkur á Selfossi
Nánari upplýsingar [email protected]
Nú styttist í áætlaðan tíma á Jakó mótinu á Selfossi
Okkur langar að upplýsa ykkur um stöðuna á mótinu okkar einsog staðan er í dag
Á þessum skrítnu tímum höfum við lagt í vinnu með verkfræðing í að skipuleggja mótin og vallarsvæðið þannig að þau geti farið fram með öryggi leikmanna, þjálfara og áhorfenda í fyrirrúmi.
Við leggjum mikið upp úr því að halda gæðum á mótinu og upplifun allra sem koma á mótið þó svo að við gætum þurft að breyta fyrirkomulaginu örlítið. Svæðinu okkar verður skipt upp í þrjú stök svæði, hvert með sitt bílastæði, snyrtiaðstöðu, veitingaaðstöðu og aðstöðu fyrir áhorfendur ef þess þarf. Leikmenn spila alla sína leiki innan síns svæðis og viðurkenningar verða veittar að leikjum loknum og því engar óþarfa hópamyndanir á svæðinu. Aðstaða fyrir handþvott og salernis aðstaða verður á öllum svæðum.
Okkur langar að halda okkur við upprunalegar dagssetningu en vitum að það gæti mögulega breyst. Ef við þurfum að færa mótið til munum við senda upplýsingar á öll lið með nýrri dagssetningu eins fljótt og auðið er.
Við stefnum á að senda ykkur öllum annan póst eftir fyrstu vikuna í maí með frekari upplýsingum
Hlökkum til að sjá ykkur á Selfossi í sumar
Við viljum minna alla á gómsæta pylsuveislu í mótslok sem engin má missa af. Einnig viljum við benda á að við hliðina á grillunum verður myndatökusvæði fyrir liðsmyndir og þar verður hægt að sækja þátttökuverðlaunin. Við mælumst til þess að öll liðin sæki þátttökuverðlaun, fari í myndatöku og endi svo í pylsuveislunni.
Að lokum óskum við Liverpool aðdáendum til hamingju með þann sjötta 🏆og munið að ganga hægt um gleðinnar dyr í kvöld, það eru mikilvægir leikir í morgunsárið 😀!
01/06/2019
Þökkum öllum fyrir frábæran dag að baki ☀️
Hér er leikjaplanið fyrir morgundaginn.
Njótið dagsins og hlökkum til að sjá ykkur á morgun 😎
31/05/2019
Hér er svo yfirlitsmynd fyrir alla keppnisvellina en einnig verða merkingar á svæðina til að auðvelda fólki að rata um svæðið.
31/05/2019
Bendum fólki á fullt af góðum bílastæðum við Fjölbrautaskóla Suðurlands (stór gul bygging) sem er við hliðina á gervigrasvellinum.
Þaðan er örstutt að labba á keppnisvellina.
Kort af Íslandi Skoðaðu kort af Íslandi með vegvísun og leit á Já.is
31/05/2019
Örlitlar breytingar hafa orðið á leikjaplaninu fyrir laugardaginn
Endilega fariði vel yfir leiki ykkar liðs
Leikjaplan fyrir sunnudaginn verður birt eftir mót á laugardag
Hlökkum til að sjá ykkur á Selfossi
23/05/2019
Nú er rétt rúm vika í að mótið og spennan að magnast. Hér að neðan er eru hagnýtar upplýsingar um mótið sem við hvetjum alla til að kynna sér.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Address
Engjavegur 50
Selfoss
800