02/09/2023
Haukur og Vikar frá Austurási 6.v mátuðu aðeins brautina um daginn og fór það vel af stað, hlutu 6.94 í tölti. Vikar er mjög spennandi Óperu og Sigurssonur með mikinn X factor og fótaburð. Hlökkum til næsta árs með þennan kappa💥💥
28/08/2023
Loftur Breki og hesturinn hans Hnöttur frá Austurási 6.v drifu sig á Suðurlandsmót yngri flokka um daginn og kepptu saman í 1. Skipti, í 4 gang unglinga. Ótrúlega flottir saman og frábær byrjun hjá þeim félögum😍best er að þeir hafa báðir einstaklega gaman hvor að öðrum🤩😍🥰
22/08/2023
List frá Austurási 5 v, Ae. 8.23
F: Draupnir frá Stuðlum. M: Spóla Syðri Gegnishólum Teitur snilli Árnason sýndi List frábærlega fyrir okkur í sumar( með dyggri aðstoð Eyrúnar😊) Hlökkum til komandi vetrar með þessa öflugu ungu hryssu🏆💥🏆
22/08/2023
Maísól frá Steinnesi 6.v F: Draupnir Stuðlum M: Sunna Steinnesi. Ae. 8.21,þ.a 9 vilja,fegurð og hægt stökk🤩💥🏆einstaklega léttstígur gæðingur, sýnd af snillingnum Aðalheiði Önnu❤️💥
17/08/2023
Fiðla frá Seljatungu (aðaleink.8.25) undan Spólu Syðri Gegnishólum og Álfarni S Gegnishólum er fengin við hinum frábæra Hrannarssyni Skugga-Sveini frá Austurhlíð(aðaleink8.44)en móðir hans er Ör frá Langstöðum💥💥erum mjög spennt fyrir þessari blöndu 🏆🏆
07/04/2023
Skemmtileg byrjun á páskunum, Anton Páll var með reiðtíma hjá okkur í gær og eins og venjulega eftir heimsóknir Tona þá voru allir alsælir 🤩🤩og bíðum spennt eftir næstu heimsókn Tona í Austurás🤩ljósm af Lillie á Ljónslöpp í djúpum pælingum með kennaranum🤩
25/03/2023
Frábært veður notað í heimsókn til Ástu og Lárusar í Stekkhólum/Árbæ og tekin út tamning á sameigninni okkar, Frama frá Austurási 4.v undan Flís frá Austurási og Útherja. Frábærlega vel taminn og flugefnilegur foli💥💥hlökkum til …
28/02/2023
Vikar frá Austurási og Haukur skemmtu sér vel í vetrarblíðunni á dögunum💥💥
21/02/2023
Breki snillingur frá Austurási🤩ekki leiðinlegt að rækta, ala upp og eiga svona meistara🤩
14/02/2023
Tíminn flýgur🤩allt í einu er fyrsta afkvæmi Flísar frá Austurási(8.26 5 verra)komið í tamningu! Faðir er Útherji frá Blesastöðum og heitir gripurinn Frami💥þennan myndarlega fola eigum við ásamt vinum okkar , Ástu Björns (sýnanda Flísar❤️)og Lárusi í Stekkhólum en Lárus sér um að temja gripinn🤩 bíðum spennt eftir framhaldinu hjá þeim🤩💥🤩