08/06/2026
8-liða úrslit í Mjólkurbikarnum á laugardaginn 🥛
Fjölmennum á völlinn og styðjum strákana til sigurs💥
Opinber Facebook síða Knattspyrnudeildar Gróttu.
08/06/2026
8-liða úrslit í Mjólkurbikarnum á laugardaginn 🥛
Fjölmennum á völlinn og styðjum strákana til sigurs💥
08/06/2026
Sjáumst á Vivaldi ☀️
04/06/2026
Knattspyrnuskóli Gróttu sumarið 2026 💙💛
Allir eru velkomnir í Knattspyrnuskóla Gróttu, jafnt iðkendur sem hafa æft lengi sem og krakkar sem hafa áhuga á að prófa fótbolta í fyrsta skipti. Knattspyrnuskólinn hefur verið starfræktur samfellt frá árinu 1986 og hlotið gæðavottun KSÍ ár eftir ár ⭐️
Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á Vivaldivellinum við Suðurströnd frá 09:00 – 12:00 alla virka daga.
Verð: kr. 12.900 (m.v 5 daga.)
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á Abler, á vefsíðu Gróttu eða með tölvupóst á netfangið [email protected]
https://www.abler.io/shop/grotta?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTczNjk=
02/06/2026
Frábær mæting á fyrstu útiæfingu Gelluboltans í sumar!
Fyrsta útiæfing sumarsins hjá Gellubolta Gróttu var haldin á Vivaldivellinum í gærkvöldi. 24 stelpur mættu á æfinguna á aldrinum 18 til 33 ára. Stelpurnar hafa verið með æfingar inni í vetur en eru mættar út og verða æfingar á Vivaldi í sumar, en æfingatíminn fer eftir leikjaskipulagi á vellinum o.fl.
Gaman var að sjá hvað margar mættu á æfingu í gær - áfram gellur! 🤩
31/05/2026
2-1 sigur í Njarðvík 🎊
Glæsilegur sigur hjá strákunum í dag. Frábær frammistaða og sturluð mörk 💥
⚽️ Grímur - 49’ mín
⚽️ Axel - 90’ mín
Næsti leikur hjá strákunum er laugardaginn 6.júní gegn Grindavík á Vivaldi 💙
31/05/2026
Leikdagur! ⭐️
Grótta mætir Njarðvík í 7.umferð Lengjudeild karla í dag sun 31.maí, kl 14:00! Leikurinn fer fram á JBÓ vellinum.
Við hvetjum Gróttufólk til að fjölmenna á völlinn og styðja okkar menn til sigurs! 💪🏻
ÁFRAM GRÓTTA! 💙💛
30/05/2026
Markaveisla á króknum 🎉
Gróttukonur unnu sterkan 5-0 sigur á Tindastól í dag.
⚽️ Díana
⚽️ Lovísa
⚽️ Nicole
⚽️ Nicole
⚽️ Nicole
Næsti leikur hjá stelpunum er laugardaginn 13.júní gegn Keflavík á Vivaldi 🙌🏻
30/05/2026
Leikdagur! 🎉
Grótta mætir Tindastól í 5.umferð Lengjudeild kvenna í dag lau 30.maí, kl 16:00 ! Leikurinn fer fram á Sauðárkróksvellinum 🏟️
Við hvetjum Gróttufólk til að fjölmenna á völlinn og styðja okkar konur til sigurs! 🙌🏻
ÁFRAM GRÓTTA! 💙💛
29/05/2026
Magnús hættir sem yfirmaður knattspyrnumála👋🏼
Magnús Örn Helgason mun í byrjun júní láta af störfum sem yfirmaður knattspyrnumála að eigin ósk. Magnús er eins og kunnugt er uppalinn Gróttumaður og þjálfaði hjá knattspyrnudeild frá haustinu 2007 til ársins 2021 þegar hann færði sig til KSÍ. Í febrúar 2024 sneri Magnús aftur á Nesið og tók við nýju starfi sem hefur hann hefur sinnt af kostgæfni síðan.
„Maggi hefur sinnt starfi sínu af metnaði, eldmóði og ástríðu fyrir Gróttu og átt stóran þátt í þeirri góðu vegferð sem knattspyrnudeildin er á. Við erum afar þakklát fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum alls hins besta í því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Helgi Héðinsson fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar Gróttu.
„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa aftur hjá uppeldisfélaginu mínu. Það var áskorun að byrja í glænýju starfi hjá deildinni en þessi tími var lærdómsríkur og ég mun búa að reynslunni alla tíð. Það er erfitt að kveðja enda skiptir Grótta mig miklu máli. En ég veit að það er gott fólk innan félagsins sem hefur metnað til að gera enn betur og mun halda vinnunni áfram. Það eru spennandi tímar framundan hjá bæði karla og kvennaliðunum og ég hlakka til að fylgjast með,” segir Magnús en hann og Sigrún kona hans eiga von á sínu öðru barni á næstu vikum.
29/05/2026
Útileikur hjá strákunum á sunnudaginn. ATH breyttur leiktími ! 14:00 🤘🏻