14/10/2026
Hversu hratt sækja liðin? ⏱️🤾
Nýtt á HBStatz Insider: Tempó í sókn. Hver einasta sókn er flokkuð eftir því hvernig hún þróast:
🟡 1. tempó: hraðaupphlaup
🔵 2. tempó: sótt hratt fram áður en vörnin er komin
🟢 Hröð miðja: keyrt af stað strax eftir mark á sig
🔴 3. tempó: uppstillt sókn gegn uppstilltri vörn
Í Olísdeild karla lýkur 39% sókna áður en vörnin nær að stilla sér upp. Fram sækir hraðast allra liða, 55% sókna þeirra eru hraðar. Valur blandar saman hraða og bestu uppstilltu sókn deildarinnar, 0.61 mörk á uppstillta sókn.
Skilin á milli hraðra og uppstilltra sókna eru engin ágiskun. Í yfir 170 þúsund sóknum úr eldri leikjum skiptist lengd sókna í tvo skýra hópa: hraðar sóknir taka um 11 til 14 sekúndur og uppstilltar um 38. Skilin á milli hópanna liggja við 21 sekúndu, jafnt hjá körlum og konum.
Sjáðu þítt lið á liðssíðunni, í liðasamanburði og í öllum leiksskýrslum á 👇
insider.hbstatz.is