27/10/2022
Námskeið á Siglufirði helgina 25. - 27. Nóvember, þar sem leitast er við að dýpka skilning og skerpa á grunn stöðum.
Upplifir þú einhvern tíma að þér finnst þú ekki ná nægilega góðum tökum á einni eða fleiri stöðum? Eða kannski finnst þér þú ekki ná þeirri slökun sem þú hafðir ímyndað þér? Hefur þú velt fyrir þér hver er munurinn á Yin, Vinyasa, Nidra og svo framvegis? Hvað þýðir Namaste og af hverju segjum við það? Hvað er núvitund og af hverju er hún svona eftirsóknarverð?
Á námskeiðinu gefst iðkendum tækifæri til þess að fræðast um sögu og tilurð yoga, og heimspekina sem liggur að baki, í stórum dráttum. Þar að auki munum við iðka saman og gefa okkur góðan tíma í að taka fyrir algengar yoga stöður, hvernig má gera þær betur og laga þær að hverjum og einum eftir líkamlegri getu. Að lokum komum við inn á huglæga þáttinn og kúnstina við að róa hugann.
Við komum til með að eyða einhverjum tíma utandyra ef veður leyfir, enda stutt að sækja í náttúruna á Siglufirði.
Fyrir hvern er námskeiðið?
Fyrir alla!
Byrjendur og lengra komna. Þá sem hafa lítið sem ekkert stundað yoga en langar að kynnast því betur.
Fyrir lengra komna, sem iðka reglulega en þyrstir í meira.
Námskeiðið hefst fös 25. kl: 19:30 og lýkur á sun 27. nóv kl: 10:45.
Kennarar:
Ása Sóley Svavarsdóttir, yoga kennari og meðeigandi Yoga & Heilsa
Erla Jóhannsdóttir, yoga kennari og eigandi Tadasana
Verð: 19.900
Skráning:
[email protected]
S: 8944052
06/01/2022
Kæru vinir og iðkendur
Nú er róðurinn hjá okkur að verða ansi þungur með hertum reglum. Við ákváðum að reyna að halda áfram, en eðlilega hefur mæting einnig snar minnkað í kjölfarið.
Því miður sjáum við okkur ekki annað fært en að loka stöðinni þar til við sjáum merki þess að ástandi fari batnandi.
Að sjálfsögðu verða öll kort fryst á meðan er lokað.
Við þiggjum og þökkum skilning og vonum innilega að brátt verði breytingar með nýju ári og hækkandi sól.
(Athugið að þetta á ekki við um nuddið)
Kveðja
Erla, Guðrún, Viktoría og Aga
19/12/2021
Finnið okkur á Instagram og takið þátt í gjafaleik!
Find us on Instagram and take part in the lottery!
09/12/2021
3. Sunnudagur í aðventu (12. des) kl: 16:00.
Yin yoga & gong hljóðheilun.
Hlúum að okkur á aðventunni!
09/11/2021
Thelma Björk Jónsdóttir, stofnandi ANDAÐU segir það afar mikilvægt að vökva sig og blessa. Thelma Björk sem er allt í senn fatahönnuður, móðir, jógakennari og listgreinakennari. Hún varð hugfangin af jóga og hugleiðslu á fyrstu meðgöngunni sinni árið 2010 og eftir það lá leiðin í kennaranám í kundalini jóga hjá Auði Bjarnadóttir í Jógasetrinu. Síðan þá hefur Thelma átt tvo drengi í viðbót og er stolt strákamamma.
“Jóga og hugleiðsla hefur breytt lífi mínu í alla staði. Það hefur gefið mér innri frið, sjálfstraust, kjark og úthald til að stíga inn í draumana mína og að trúa á sjálfa mig”.
Thelma Björk hefur verið virk í kennslu frá árinu 2014 og staðið á bakvið fjölda verkefna á borð við “Slökun í borg”, samstarfsverkefni systrasamlagsins og Reykjavíkurborgar, leiddi morgunhugleiðslu á Rás 1 og er jóga og textílkennari í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík. Hún lauk meistaranámi við Listaháskóla Íslands í listkennslufræðum árið 2017 þar sem hún var og er að vinna með tengslin milli handverks og hugleiðslu. Meðfram því að miðla reynslu sinni í gengum jóga og hugleiðslu kennir hún námskeiðin “Slaka” & “Skapa”þar sem hún blandar saman hugleiðslu við skapandi ferli hvers nemanda, en hún hefur sérhæft sig í því að starfa með börnum.
Við erum verulega spennt að bjóða Thelmu velkomna og eyða helginni með henni 💜
24/10/2021
Ekki nóg með það að hún Gudrun Helga Svansdóttir (Tara) mun halda fyrirlesturinn “Nútíma kvillar” fyrir þrjá hópa í vikunni framundan, sem og bjóða upp á nálastungur og nudd, heldur mun hún einnig leiða tvo yoga tíma.
Hún mun fyrst og fremst kenna Hatha og aðferðir Kundalini. Tímarnir verða mið 27. okt kl 16:30 og lau 30. kl 9:00.
Skráning á Mindbody eða í síma 8944052.
Klippikort gildir í yoga tímana.
Við hvetjum ykkur til þess að nýta tækifærið. Prufa nýtt. Læra nýtt.
15/10/2021
Tara Gudrun Helga Svansdóttir verður gestur hjá okkur vikuna 25. - 31. október og mun meðal annars bjóða uppá nálastungur á Snyrtistofu Hönnu Siggu.
Hún hefur nú opnað fyrir tíma bókanir á
[email protected] eða með SMS í síma 354-6950768.
Tara mun einnig vera með fyrirlestur um nútíma kvilla og hvernig við getum sjálf dregið úr þeim, bjóða upp á flot þerapíu fyrir þungaðar konur og kenna tvo yoga tíma í Tadasana á meðan dvöl hennar stendur.
Við hvetjum sem flesta til þess að nýta þetta frábæra tækifæri til sjálfs ræktar og til þess að dýpka þekkingu og skilning á eigin líkama.
21/09/2021
Við erum svo lánsöm að frá Guðrún Ósk Gestsdóttir til liðs við okkur. Tímarnir hennar “Heitur styrkur” hefjast þriðjudaginn 28. september.
Klippikortin veita aðgang en einnig er hægt að greiða fyrir stakan tíma.
Skráning er nú opin á Mindbody.
20/09/2021
Heitt og Djúpt flæði er í boði alla mánudaga kl 16:30 fram að áramótum. Í Heitu og Djúpu flæði er salurinn hitaður í 37 gráður og farið er í djúpar teygjur, sterkar stöður og jafnvægi. Í þessum tímum er svitnað mikið, fullkomið detox eftir helgina! Skráning í tíma á Mindbody. 🌱