Frances.is

Frances.is

Share

www.frances.is
Fluguverslun Dr. Jónasar á netinu - Online Flystore
Frí heimsending og flugubox með öllum pöntunum - Free shipping

www.frances.is er fluguverslun á netinu sem er í eigu Dr. Jónasar og fjölskyldu. Frances.is er með mesta úrval landsins á laxa- og silungaflugum. Við sérhæfum okkur í flugum við allar aðstæður. Frí heimsending og frí flugubox með öllum sendingum.

14/02/2019

Due to high number of orders there has been a slight delay in shipping. We are working as hard as we can and should all orders be shipped next week. Sorry for the inconvenience and we hope you understand.

Best regards,
The Frances family

14/02/2019

Vegna mikils fjölda pantana síðustu daga er því miður smá töf á afhendingu, þetta er allt í vinnslu hjá okkur og ættu pantanir vonandi að skila sér í næstu viku. Takk fyrir þolinmæðina og beðist er velvirðingar á þessu.

kv.
frá Francesfjölskyldunni

Photos from Frances.is's post 07/01/2019

!!! LOKA ÚTSALA !!! Allt á 50% afslætti, búðin lokar 31.janúar. Takk fyrir viðskiptin yfir árin.
!!! FINAL SALE !!! Everything 50% off, the store closes on January 31st. Thanks for the business over the years.
Tight lines.

Góð opnun í Vopnafirði 27/06/2016

Dr. Jónas með flottan lax úr opnunni í Hofsá sem tók Sunray Hitch.
Eigum fullt af laxa flugum - www.frances.is

Góð opnun í Vopnafirði Í morgun opnuðu Selá og Hofsá í Vopnafirði og eins og annars staðar á landinu fer veiði þar vel af stað.

Photos from Frances.is's post 08/05/2016

Frábær ferð til Skotlands.
Mér var boðið í síðustu viku að veiða í ánni Tay nánar tiltekið á svæðið Murthly. Ég veiddi tvo laxa annan á keilutúpuna Sjáandann og hinn þann 15 punda á litla Frances tungsten keilu. Þarna þurfti að Spay kasta og var gott að hafa litlu tungsten keilurnar á flotlínu með langan taum. Gaman að vera kominn í gang svo snemma og skemmtileg upplifun að veiða fyrsta lax sumarsins í apríl.

Mobile uploads 20/07/2015

Það var nú ekki amarlegt að veiða í Langá í síðustu viku og landa 18 löxum á þremur dögum. Einn af þessum löxum var 78 cm hrygna sem ég fékk í Krókódíl. Það er ekki sama hvernig maður veiðir þennan hyl því ef maður gengur of neðarlega fælir maður allan fiskinn. Annað hvort er að langrenna eða vippa flugunni yfir strenginn efst, láta sökkva og finna tökuna. Auðvitað var henni sleppt. Gaman að fá svona laxa sem eru þrisvar sinnum þyngri en normal Langárlax. Laxinn tók stærstu tungsten Frances keiluna sem sekkur hratt um leið og hún lendir.

Photos 24/05/2015

Í tilefni að sumrinu höfum við ákveðið að lækka verð á öllum silungaflugum í 190 krónur. Þetta nær yfir allar púpur, þurrflugur, votflugur og kúpur.
www.frances.is

Photos from Frances.is's post 13/04/2015

Sjóbirtingsveiðin er komin af stað og veiðisumarið formlega byrjað. Við hjá Frances.is erum með nokkrar nýjar flugur fyrir sumarið og þar á meðal nokkrar nýjar Leach flugur sem sjást hér. Leach flugur er hnýttar þannig að klippt er af strímer öngli bugurinn og annar krókur festur á með 30 punda baklínu. Flugan syndir ótrúlega líkt síli. Þessar flugur eru mikið notaðar í Argentínu og margir nota þær með góðum árangri hér heima.
Fleiri nýjar flugur má sjá hér: http://www.frances.is/default.aspx?modID=10

Photos from Frances.is's post 24/01/2015

Nú í lok janúar er ekki annað hægt er að hugsa til sumarsins. Um leið og sól hækkar í himni og daginn fer að lengja er ekki annað hægt. Nú styttist í silungsveiði sem maður stundar af krafti áður en laxveiðitíminn byrjar. Ég fer gjarnan á Þingvöll eins og þúsundir aðrir Íslendingar á vorin og byrjun sumars til að fá sér flotta bleikju í soðið og njóta þess að vera úti í náttúrunni og veiða.
Eins og mér í hugleikið þá kemur ekki á óvart að hugurinn reikar að flugum, hvað á að nota? Hver er besta flugan? Hvernig á að veiða. Mér finnst ein gömul silungafluga svolítið vanmetin eða gleymd. Það er Black Zulu. Þessa flugu nota ég mikið á vorin í silung. Hvort sem hún er með eða án kúlu og jafnvel í strímer fyrir veiðivötn. Oft nota ég „dropper“ þar sem ég nota Black Zulu með kúlu neðst og hef svo án kúlu ofar og oftar en ekki veiði ég betur á efri léttari fluguna.
Mér finnst skipta miklu máli hve hratt maður dregur og best er að vera eins nálægt botni og hægt er á Þingvöllum. Kasta eins langt og hægt er, láta sökkva, byrja draga, hægt, finna botninn, draga hraðar svo flugan festist ekki í botni, finna mun á botni og töku og hafa gaman.

Photos 14/12/2014

Fluga mánaðarins
Jæja nú eru jólin í nánd og inn á milli má hlakka til næsta sumars. Eitt af því sem gaman er að gera á veturna er að velta fyrir sér hvaða flugur maður á að útvega sér fyrir næsta sumar. Fyrsta val hjá okkur á frances.is að þessu sinni er hin klassíska þýska snælda hnýtt á tungsten túpu. Þessar túpur eru um tvöfalt þyngri en venjuleg eirtúpa og sekkur því mjög hratt. Þessi túpa er sennilega besta túpan í Blöndu. Síðastliðið sumar vildu gædarnir bara nota snældur frá okkur og sögðust hafa gert samanburð á okkar túpum og öðrum snældum sem eru á markaðinum og fundu greinilegan mun. Veiðimenn nota tungsten túpurnar allt sumarið þar sem virkilega þarf að sökkva túpunum hratt eins og í djúpum fosshyljum eða í straumhörðum hyljum. Það er vert að eiga nóg af þessum næsta sumar.
Endilega látið mig vita á [email protected] ef ykkur vantar hugmyndir af jólagjöfum
kveðja
dr Jónas

Photos from Frances.is's post 15/08/2014

Fjöskylduferð í Héðinsfjörðinn. Þessar tóku Black ghost og Heimasætu.

Photos from Frances.is's post 04/08/2014

Lúsugir laxar
Var að koma úr Þverá í gær og það sem bjargaði túrnum voru nýgengnir laxar sem skiluðu sér í siðasta stórstreymi. Við fengum 5 laxa á stöngina og tvö fallega sjóbirtinga. Myndin sýnir vel hve lúsugir fiskarnir voru, með hala sem þýðir að þeir voru bara búnir að vera nokkra klukkutíma í ánni. Við fengum mest á hitch túpur, frances túngsten keilur og collie dog örkeilur
Dr. Jónas

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Siglufjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Siglufjörður