Kvennahlaup ÍSÍ á Sigló

Kvennahlaup ÍSÍ á Sigló

Share

Þessi síða er notuð til að kynna og fjalla um Kvennahlaup ÍSÍ á Siglufirði

Photos from Kvennahlaup ÍSÍ á Sigló's post 09/08/2022

Kvennahlaupið lagt niður

Ungmennafélagið Glói hefur séð um framkvæmd Kvennahlaupsins á Siglufirði undanfarin 18 ár en nú er komið að leiðarlokum þessa hlaups samkvæmt ákvörðun hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ).

Í tilkynningu til forsvarsmanna hlaupsins segir m.a: Frá því að fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið fyrir rúmum 30 árum hefur margt vatn runnið til sjávar. En fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið árið 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ með það að markmiði að draga konur frá heimilisstörfunum og hvetja þær til að hreyfa sig meira og huga þannig að heilsu sinni.

Þessi markmið hafa náðst og gott betur, en jafnframt má sjá mikla aukningu í þátttöku kvenna í ýmsum störfum og stjórnum innan íþróttahreyfingarinnar hérlendis.

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ hefur í gegnum árin sameinað tvo mikilvæga þætti, samveru og hreyfingu, með farsælum árangri og á síðustu árum hefur Kvennahlaupið nýtt vettvang sinn til að minna á mikilvægi þess að allir hreyfi sig á sínum forsendum og að þátttakendur eigi ánægjulega samverustund á hlaupadag. Hlaupið hefur verið árviss viðburður hjá mörg þúsund manns um allt land sem og erlendis.

Nú er hins vegar komið að því að leggja Kvennahlaupið til hliðar og verður það því ekki haldið í ár.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Sjóvá hvetja hins vegar landsmenn til að huga að sinni daglegu hreyfingu fyrir betri líkamlega og andlega heilsu. Öll hreyfing skiptir máli.

Photos from Kvennahlaup ÍSÍ á Sigló's post 11/09/2021

Fámennt en góðmennt

Það voru kjöraðstæður til útiveru í dag þegar Kvennahlaupið fór fram. Þátttaka var þó sú minnsta sem verið hefur hér á Siglufirði en ýmsar skýringar eru á því t.d. ný tímasetning, ný útfærsla á bolasölu, göngur og réttir og stórt golfmót að ógleymdum Covid faraldrinum sem enn hefur sín áhrif á það að fólk sé tilbúið að koma saman.

Hvað um það, þær 15 sem mættu skemmtu sér vel og nutu útiverunnar til hins ýtrasta. Í lok hlaups beið svo hressandi Toppur, frískandi ávextir og grænmeti að ógleymdum ýmsum vörum frá Nivea.

07/09/2021

Kvennahlaupið er laugardaginn 11. sept.

Hlaupið frá Rauðkutorgi kl. 11.00 að venju.

Svo er gjafaleikur í gangi!

Sigurlaug Ingvarsdóttir var svo heppin að vera dregin út í gjafaleiknum og fór Kvennahlaupsbolinn 2021.
Í tilefni af Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ þann 11. september næst komandi, ætlum við að gefa heppnum einstaklingi nýja Kvennahlaupsbolinn.
Það sem þú þarft að gera til að eiga möguleika á að vinna er að:
- Líka við Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ (https://www.facebook.com/Sj%C3%B3v%C3%A1-Kvennahlaup-%C3%8DS%C3%8D-78367780793)
- Gaman væri líka að láta gamla Kvennahlaupsmynd fylgja með (en ekki nauðsynlegt).
Við drögum út miðvikudaginn 8. september 2021

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Photos from Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ's post 05/09/2021

Kvennahlaupið verður laugardaginn 11. sept.

Á Siglufirði verður hlaupið frá Rauðkutorgi kl. 11.00 líkt og síðustu ár.

Bolasala fer fram á tix.is eins og sjá má hér að neðan en einnig má mæta í eldri bolum og greiða þá aðeins þátttökugjald.

Vonumst til að sjá sem flestar taka þátt á laugardaginn.

13/08/2021

Jæja, enn eru breytingar!

Nú er enn og aftur búið að breyta dagsetningu Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ. Maraþon Íslandsbanka var fært og er núna 18. september og því var tekin sú ákvörðun að færa Kvennahlaupið til um helgi og halda það 11. september í ár. Þannig fá þeir sem vilja tækifæri til að taka þátt í báðum viðburðum og engir árekstrar 🙂

08/06/2021

Ath. búið að færa hlaupið fram um viku - Verður 18. sept.

Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands langar að vekja athygli á því Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ hefur verið fært fram í september og verður haldið víðs vegar um landið laugardaginn 18. september 2021. Að þessu sinni markar hlaupið upphafið að Íþróttaviku Evrópu, sem haldin verður í fimmta sinn á Íslandi í ár.

Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Allt frá því fyrsta Kvennahlaupið var haldið árið 1990 í Garðabæ hafa þúsundir kvenna um land allt notið þess að hreyfa sig saman og þannig sameinað tvo mikilvæga þætti lífsins, hreyfingu og samveru.

Í Kvennahlaupinu koma saman konur á öllum aldri og algengt er að margir ættliðir, vinkonur eða systur hlaupi saman. Hver kona tekur þátt í hlaupinu á sínum forsendum og áhersla er lögð á að allir fari á sínum hraða og með bros á vör.

Eftir að 30 ára afmæli Kvennahlaupsins var fagnað með pompi og prakt árið 2019 var ákveðið að gera breytingar á framkvæmd þess. Þær eru fyrst og fremst gerðar með tilliti til umhverfissjónarmiða, samhliða því að reyna að höfða til yngri kynslóða. ÍSÍ taldi ekki lengur ásættanlegt að bjóða upp á mörg þúsund boli sem hver og einn er pakkaður í plast og ekki með umhverfisvottaða framleiðsluhætti. Þá var einnig tekin ákvörðun um að sleppa verðlaunapeningunum þar sem mikið magn af þeim var afgangs ár hvert. Þessar breytingar eru gerðar með það í huga að gera hlaupið sem umhverfisvænast.

Kvennahlaup nútímans snýst um hreyfingu sem hentar hverjum og einum, samveru kynslóðanna, líkamsvirðingu, sanngirni, umhverfismeðvitund og valdeflingu. Einkunnarorð Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ 2021 eru líkt og áður „Hlaupum saman“.
Nánari upplýsingar um Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2021, m.a. um alla hlaupastaði og tímasetningar, verður hægt að nálgast á www.kvennahlaup.is þegar nær dregur.

Hlaupum saman laugardaginn 18. September.

Photos from Kvennahlaup ÍSÍ á Sigló's post 27/05/2021

Kvennahlaupið fært til haustsins

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið 25. september í ár. Vonandi leggst það vel í landsmenn og markar mögulega upphaf að nýjum tímum í okkar ástsæla Kvennahlaupi, segir í tilkynningu frá Almenningsíþróttaráði ÍSÍ.

Þar segir einnig að ástæðurnar fyrir þessari breytingu séu margar. En sú stærsta er að ákveðið hefur verið að færa hlaupið inn í Íþróttaviku Evrópu (European Week of Sport) sem haldin er árlega 23. – 30. september í yfir 30 Evrópulöndum. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Kvenna­hlaups­bol­ur­inn 2020 og 2021
Bol­ur­inn hefur verið ómiss­andi hluti af hlaup­inu und­an­farin ár en í fyrra var hugs­unin á bak við hann end­ur­skoðuð í takt við breytta tíma. Bolurinn er nú 100% end­urunn­inn, úr líf­rænni bóm­ull og end­urunnu plasti. Bol­ur­inn hentar bæði sem hlaupa- og æf­ingaflík en einnig við fleiri til­efni og því hægt að nýta hann enn betur en áður.

Sami bolur verður og var á síðasta ári og sömu verð. ÍSÍ sér um bolasöluna líkt og í fyrra.

Við vekjum athygli á því að hægt verður að kaupa miða í Kvennahlaupið án þess að kaupa bol. Þá er t.d. tilvalið að nýta gamlan Kvennahlaupsbol til að hlaupa í aftur.

Nánari upplýsingar um bolasöluna koma hér á síðunni þegar nær dregur hlaupi.

Photos from Kvennahlaup ÍSÍ á Sigló's post 13/06/2020

Góð stemning í kvennahlaupinu í morgun

Um 30 mættu til leiks að þessu sinni, um helmingi færri en í fyrra sem var mjög gott ár, og heldur færri en árin þar á undan.

Smá súld í upphafi en svo stytti upp og allir sáttir.

Létt upphitun fyrir hlaup og ávextir og grænmeti þegar komið var í mark auk snyrtivara frá Nivea og Toppurinn.

Takk fyrir þátttökuna í ár.

Myndir: Umf Glói og Brynhildur Baldursdóttir

13/06/2020

Minnum á Kvennahlaupið kl. 11.00 í dag
- Hlaupið frá Rauðkutorgi

Þær sem ekki hafa pantað nýju bolina á tix.is geta mætt í bol frá fyrri árum og greiða þá aðeins fyrir þátttöku. Gjaldið er 1500 kr fullorðin og 500 kr barn.

12/06/2020

Við minnum á að þær sem ekki hafa pantað nýju bolina á tix.is geta mætt í bol frá fyrri árum og greiða þá aðeins fyrir þátttöku. Gjaldið er 1500 kr fullorðin og 500 kr barn.

Vekjum einnig athygli á að ekki verða verðlaunapeningar í ár.

En það er glaðningur frá Nivea og hressandi Toppur auk okkar hefðbundna ávaxta- og grænmetishlaðborðs að loknu hlaupi.

Nýjar áherslur í takti við nýjar áherslur í umhverfismálum.

Sjáumst í fyrramálið á Rauðkutorgi
- Hlaupið verður af stað kl. 11.00.

09/06/2020

Kvennahlaupið 13. júní

Hið árlega Kvennahlaup verður þann 13. júní nk. og verður hlaupið frá Rauðkutorgi kl. 11.00 líkt og síðustu ár.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á umgjörð hlaupsins m.a. hvað varðar bolasölu.

Bolir eru eins og áður sagði seldir á tix.is og kosta 4.000 kr. fullorðinsstærðir og 1.500 barnastærðir. Bolir verða sendir út til þeirra sem hafa keypt boli um leið og þeir koma í hús en eins og fram hefur komið lentum við í covid seinkun sem lítið er við að gera. Bolirnir eru í stærðum: 4-6 ára, 7-8 ára, 9-10 ára, 11-12 ára, XS, S, M, L, XL, XXL, # # . Bolirnir henta öllum þar sem þeir eru ekki aðsniðnir. Flestir taka einni stærð minni en í hinum bolunum sem voru áður.

Einnig er hægt að mæta í Kvennahlaupsbolum frá fyrri árum og taka þátt en þá þarf að greiða 1.500 kr á tix.is og framvísa kvittun fyrir greiðslunni eða greiða á hlaupastaðnum. 1500 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 12 ára og yngri.

Allir þátttakendur fá glaðning frá Nivea og frískandi Topp að hlaupi loknu auk þess sem hjá okkur verður að venju ávaxta- og grænmetishlaðborð.

29/05/2020

Breyttar áherslur í Kvennahlaupi í takt við umhverfismálin
- Bolir ekki seldir á hlaupastöðum

Bolir eru aðeins seldir á tix.is og á skrifstofu ÍSÍ og kosta 4.000 kr. Glæsilegur og margnota bolur sem er 100% end­urunn­inn, úr end­urunn­inni líf­rænni bóm­ull og end­urunnu plasti. Bol­ur­inn hentar bæði sem hlaupa- og æf­ingaflík en einnig við fleiri til­efni.

Einnig má greiða þátttökugjald 1.500 kr og mæta í Kvennahlaupsbol frá fyrri árum.

Engir verðlaunapeningar verða en hressing í formi Kristals, ávaxta og grænmetis verða að vanda hjá okkur á Sigló og ýmiskonar glaðningur.

Nánari upplýsingar má sjá hér að neðan:

Kvennahlaupsbolurinn hefur verið ómiss­andi hluti af hlaup­inu und­an­farin ár en nú hefur hugs­unin á bak við hann verið end­ur­skoðuð í takt við breytta tíma.

Það er Linda Árna­dóttir fata­hönnuður og eig­andi Scintilla sem hannar bol­inn í ár en hann er 100% end­urunn­inn, úr end­urunn­inni líf­rænni bóm­ull og end­urunnu plasti. Bol­ur­inn hentar bæði sem hlaupa- og æf­ingaflík en einnig við fleiri til­efni og því hægt að nýta hann enn betur en áður.

Bol­ur­inn kemur í stærðum 4-6 ára, 7-8 ára, 9-10 ára, 11-12 ára, XS, S, M, L, XL, XXL og # # . Bolirnir henta öllum þar sem þeir eru ekki aðsniðnir.
Hægt er að panta bol á tix.is og fá hann annað hvort sendan í póst­kröfu eða sækja á skrif­stofu ÍSÍ.

Athugið að eingöngu verður hægt að kaupa bolinn í ár á tix.is en ekki á hlaupastöðunum.
Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu ÍSÍ í s.514 4000 og panta bolinn.

Við vekjum at­hygli á því að hægt er að kaupa miða í Kvenna­hlaupið á tix.is án þess að kaupa bol. Þá er t.d. til­valið að nýta gamlan Kvenna­hlaups­bol til að hlaupa í aftur.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Siglufjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Túngata 5
Siglufjörður