Ungmennafélagið Fram

Ungmennafélagið Fram

Share

Síða Ungmennafélagsins Fram á Skagaströnd þar sem helstu upplýsingum verður komið á framfæri.

13/05/2026

Æfingar í frjálsum íþróttum falla niður í dag.

Skagastrandarhlaupið - Hlaupáætlun 2026 10/05/2026

Jæja gott fólk. Nú styttist í Atwork Skagastrandarhlaupið og ekki seinna vænna að standa upp úr sófanum!
Hér er 10 vikna þjálfunaráætlun fyrir fólk á misjöfnu getustigi til að koma sér í stand fyrir 5 km og 10 km hlaupin eða Atwork Megatrail hlaupið í kringum Spákonufell. Hlaupið verður þann 19. júlí.

Skagastrandarhlaupið - Hlaupáætlun 2026

Skíðaskálinn í Spákonufelli; upphaf og bygging 09/05/2026

Skíðaskálinn okkar góði 🙂 Hér er smá umfjöllun um hann og það góða sjálboðaliðastarf sem var innt af hendi við byggingu hans. Allar myndir teknar af ljósmyndasafni Skagastrandar sem og textinn við þær.

Skíðaskálinn í Spákonufelli; upphaf og bygging Saga skíðaskálans í suðurhlíðum Spákonufells á Skagaströnd — frá fyrstu togbraut árið 1974, í gegnum sjálfboðaliðabygginguna 1984–85 og fram til vígslunnar 5. apríl 1985, og notkun hússins í gegnum árin.

09/05/2026

Skíðaskálinn okkar góði :) Hér er smá umfjöllun um hann og það góða sjálboðaliðastarf sem var innt af hendi við byggingu hans. Allar myndir teknar af ljósmyndasafni Skagastrandar sem og textinn við þær.

umf-fram.is

24/04/2026

Formsatriði fullnægt. Vefsíða fyrir ungmennafélagið komin á netið.

umf-fram.is

23/04/2026

Á næstu dögum munum við senda út greiðsluseðla til þeirra sem hafa mætt á æfingar á vorönn. Betra seint en aldrei.

Umsóknarfrestur vegna frístundakorta fyrir 2025 14/01/2026

Hvetjum sem flesta að nýta sér þetta! Umsóknarfrestur um frístundakort fyrir 2025 er til 31. janúar 2026.

Hægt að er að nálgast kvittanir í abler. Endilega hafið samband ef eitthvað er óljóst 😊

Umsóknarfrestur vegna frístundakorta fyrir 2025 Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 25 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Frístundakortin taka gildi 1. janúar ár hvert og gilda í eitt ár.

29/10/2025

Félagsgjöld
Á síðasta aðalfundi var tekin ákvörðun um að senda út félagsgjöld fyrir Ungmennafélagið Fram. Greiðsluseðlar fyrir félagsgjöldum eru komnir inn á heimabanka hjá skráðum félögum í félaginu. Gjöldin eru valgreiðslukröfur og því engin skylda að greiða en öll framlög eru vel þegin. ATH þó skráðir séu eindagi og gjalddagi á kröfurnar leggjast ekki dráttarvextir eða annar kostnaður á þær eftir eindaga.

Ungmennafélagið Fram heldur uppi öflugu starfi á Skagaströnd sem er ekki sjálfgefið í litlu samfélagi, takk fyrir ykkar framlag💙

Áfram Fram!

02/10/2025

📣📣 A.T.H 📣📣
Íþróttasprell fellur niður í dag (fimmtudaginn 2.okt)

29/09/2025

📢 FORELDRAFUNDUR – FÓTBOLTASAMSTARF VIÐ TINDASTÓL⚽

29/09/2025

Æfingar falla niður 30. september! Það er langur dagur í skólanum og krakkarnir því uppteknir á meðan á æfingatíma stendur.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Skagaströnd?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Skagaströnd