Íþróttafélagið LínBerg

Íþróttafélagið LínBerg

Share

Íþróttafélagið Línberg var stofnað árið 2010. Heldur árlega Litlu alþjóðaleikana í badminton™ á skírdag.

Photos 13/04/2012

Núuuu þættinum hefur borist vísa......

10/04/2012

Til að svala þorsta þeirra sem ekki sáu frú Bergþór spila í brúðarkjólnum er hér myndband af honum í aksjón! Á þessu myndbandi má einnig sjá einstaka dómarahæfileika Daða Heiðars, Adda Páls í fullu fjöri og Steinar Björnsson spila í snjógalla við hinn lesbíska Hjalta Kristins. Beina lýsingu annast svo Anna Margrét Ólafsdóttir og Sara Sædal Andrésdóttir

Litlu alþjóðaleikarnir í badminton 2012 06/04/2012
06/04/2012

Komnar inn myndir frá undirritun tímamótasamnings sem náðist við Daða Heiðar Sigurþórsson í gær!

Undirritun Daði "Spaði" Sigurþórs 06/04/2012

Loksins náðust samningar við Daða Heiðar um þátttöku hans í Litlu alþjóðaleikunum í badminton. Daði samdi um þátttöku í leiknum í ár og 2013 og að spila í fötum sem móðir hans Sigrún Þorvarðar geymir til afnota fyrir svona tækifæri! Gríðarlegat hagsmuna mál fyrir Íþróttafélagið LínBerg að landa þessum tímamótasamningi við Daða en hann er einn af þeim sem hefur tekið þátt frá upphafi og mikið hagsmunamál að hann haldi áfram þátttöku!

05/04/2012

LAB lokið í ár! Búningakeppnin hefur aldrei verið flottari en af öðrum ólöstuðum tók Beggi Smára þann vinning með sér heim í brúðarkjólnum af konunni sinni. Árni Ásgeirs fékk þann heiður að vera þreyttasti leikmaðurinn og fallegastur á velli og sá sem sýndi mest hold var Daði Sigurþórs!
Í fyrsta sæti í piltaflokki var svo tengdasonur Stykkishólms Kári Sædal, en hann rétt marði Egil Egils í úrslitaleiknum og í þriðja tók Daði vin sinn Adda Páls og kenndi honum einn tvo hluti og hirti af honum þriðja sætið! Hildur Sig kom í hólminn til að vinna titla og tók hún fyrsta sætið í stúlknaflokki, Helga Sveins samstarfskona hennar endaði því í öðru sæti sér til mikillar gremju en tók þó við verðlaununum með sæmd! Fulltrúi Dana í keppninni, Linda María Nielsen var svo í þriðja sæti en hún gerði sér ferð úr Grundarfirði (sem er ekki í Danmörku) til að taka þátt í þessu móti og gerði það með glæsibrag!
Myndir frá mótinu koma inn von bráðar!
Takk fyrir gott mót allir! Sjáumst að ári. Berglind og Elín

Photos 04/04/2012

Hér munu stóru börnin leika sér í fyrramálið! Ert þú klár K.Lár???

Photos 04/04/2012

Það er allt klárt!

Photos 03/04/2012
Photos 03/04/2012

Vinningarnir klárir fyrir LAB 2012!

02/04/2012

Ekki á morgun, ekki á hinn heldur HINN eru Litlu alþjóðaleikarnir í badminton!!

01/04/2012

Litlu alþjóðaleikarnir í badminton verða haldnir í íþróttamiðstöð Stykkishólms á skírdag þann 5. apríl. Leikarnir hefjast kl. 10:00 og er skráning á staðnum. Keppt verður í stúlku- og piltaflokki og hefst keppni í báðum flokkum á sama tíma. Aldurstakmark þáttakenda eru 18 ár. Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta til þriðja sæti í báðum flokkum, fallegasta leikmann á velli, flottasta búninginn og (ó)prúðasta leikmanninn. Þátttökugjald er kr. 1.000,- Verðlaunin eru að sjálfsögðu páskaegg og gullinn páskadrykkur!!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Stykkishólmur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Borgarbraut 4
Stykkishólmur
340