25/08/2026
Blandaði Hópur
Skráning: https://www.sportabler.com/shop/umfs/rafithrottir
Þjálfari: Gabríel Bergman
Æfingatími: Þriðjudaga kl. 16:30 - 18:00
Fimmtudagar kl. 16:30 - 18:00
Aldurshópar 4. - 7. Bekkur
Blandaði hópurinn er miðaður fyrir byrjendur í rafíþróttum. Í þeim hópi verður iðkendum kennt hvernig tölvur virka og hvernig á að stofna sinn eigin aðgang í flestum þeim miðlum sem verður farið í og prófað alla helstu leiki í heimi rafíþrótta. Dæmi um tölvuleiki: Fortnite, Rocket League, Marvel Rivals, Valorant, League of Legends, Minecraft, o.fl.
Æfingaskipulag: Hver æfing skiptist í oftast í tvo hluta, en getur verið í þremur hlutum þ.e.a.s. fyrsti hluti snýr að hreyfingu, svo fræðslu og síðasti hluti að æfingu í tölvu.
Í fyrri liðnum þá er byrjað á stuttum teygjum, svo er farið í skemmtilega upphitun sem felst í hreyfingu í leikjaformi sem gæti innifalið styrktaræfingar, þolæfingar og síðan liðleikaæfingar. Eftir það er farið í pásu og þar á eftir er farið í fræðslu og að henni lokinni fara iðkendur í tölvur og framkvæma æfingar, með stuttum pásum inni á milli. Þegar allir hafa klárað sinn hluta af æfingum, fara iðkendur að spila saman leik undir eftirliti og leiðbeiningum þjálfara.