Heilsulinda

Directions Contact the business

Heilsulinda Linda Björg byrjaði að þjálfa líkamsrækt í Dansrækt JSB sumarið 2012 en hafði þá verið fastagestur á stöðinni í um 10 ár. Bæði hóptímar og einkaþjálfun.

Hefur verið hóptímaþjálfari frá 2012 og einnig einkaþjálfari frá 2016.
Linda hefur stundað flestar íþróttir, allt frá skíðum, borðtennis, dans og handbolta yfir í GoKart kappakstur.
Hún hefur brennandi áhuga á hreyfingu og líkamsrækt.
Linda var einkaþjálfari hjá JSB og kenndi að auki fjölda hóptíma í opna kerfinu og TT námskeið í 8 ár.
Nú er hún sjálfstætt starfandi og rekur sína eigin líkamsrækt, Heilsulinda. Þar er í boði almenn líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri. Menntun og reynsla:
Stundar nú nám í heilsunuddi við Fjölbraut í Ármúla.
ÍAK Einkaþjálfari – 2016.
Kennsluréttindi í Foam Flex (Trigger punkta námskeið 1 og 2) – , 2016.
Kennari í JSB (Hóptímar og TT námskeið) – 2012 til 2020.
Sálfræði í HÍ – 2008 til 2010.
Stúdent frá Borgarholtsskóla – 2005.
Unglingalandsliðið á skíðum.

Síðasta helgi var virkilega fræðandi og skemmtileg! Bætti við mig mikilli þekkingu á sogæðanuddi og sjúkdómum tengdu sog...
31/10/2023

Síðasta helgi var virkilega fræðandi og skemmtileg! Bætti við mig mikilli þekkingu á sogæðanuddi og sjúkdómum tengdu sogæðakerfinu. Er mjög spennt fyrir því að þróa mig áfram á þessu sviði 👊🙌👍😁

Gleðilegt nýtt ár ! Nú förum við að byrja aftur eftir gott jólafrí og mikið verður gott að komast aftur í rútínuna. Það ...
03/01/2023

Gleðilegt nýtt ár !

Nú förum við að byrja aftur eftir gott jólafrí og mikið verður gott að komast aftur í rútínuna. Það er fullt í alla þrjá Heilsulind styrktar hóptímana ! 🤩🙌
En það eru nokkur laus pláss í Liðka og losa teygjutímana sem eru 45 mín. tímar þar sem er lögð megináhersla á ýmis konar teygjur, bæði með og án stuðnings. Einnig er farið vel í bandvefslosun með nuddrúllum og nuddboltum. Bandvefslosun örvar blóðflæði, losar um spennu og eykur vellíðan í líkamanum.

Teygjutímarnir eru kl. 6:10 og 7:10 á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum. Verðið er 13.500 kr. (8 skipti).

Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að prufa eða láttu jafnvel vinkonu vita sem gæti haft gott af þessum tímum :)🤸‍♀️🧘‍♀️

Einkaþjálfun (fjórar saman í hóp) Það er laust 1 pláss í einkaþjálfun í tækjasal á þriðjudögum og fimmtudögum kl.16:30. ...
28/10/2022

Einkaþjálfun (fjórar saman í hóp)
Það er laust 1 pláss í einkaþjálfun í tækjasal á þriðjudögum og fimmtudögum kl.16:30.
Langar þig að koma að æfa undir minni leiðsögn með þremur öðrum hressum konum ? Þá er þetta tækifærið 🤩💪💪
Næsta tímabil byrjar á þriðjudaginn 1.nóv.
Nánari upplýsingar í skilaboðum.

Nú förum við að byrja aftur eftir gott sumarfrí og ég er heldur betur spennt að fara af stað. Það er orðið fullt í alla ...
06/08/2022

Nú förum við að byrja aftur eftir gott sumarfrí og ég er heldur betur spennt að fara af stað. Það er orðið fullt í alla þrjá Heilsulind styrktar hóptímana ! 🤩🙌

En það eru nokkur laus pláss í Liðka og losa teygjutímana sem eru 45 mín. tímar þar sem er lögð megináhersla á ýmis konar teygjur, bæði með og án stuðnings. Einnig er farið vel í bandvefslosun með nuddrúllum og nuddboltum. Bandvefslosun örvar blóðflæði, losar um spennu og eykur vellíðan í líkamanum.

Teygjutímarnir eru kl. 6:10 og 7:10 á þriðjudögum og fimmtudögum. Verðið er 13.500 kr. (8 skipti).

Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að prufa eða láttu jafnvel vinkonu vita sem gæti haft gott af þessum tímum :)🤸‍♀️🧘‍♀️

Liðka og losa eru 45 mín. tímar þar sem er lögð megináhersla á ýmis konar teygjur, bæði með og án stuðnings. Einnig er f...
19/05/2022

Liðka og losa eru 45 mín. tímar þar sem er lögð megináhersla á ýmis konar teygjur, bæði með og án stuðnings. Einnig er farið vel í bandvefslosun með nuddrúllum og nuddboltum. Bandvefslosun örvar blóðflæði, losar um spennu og eykur vellíðan í líkamanum.
Ef þú ert með bólgur í líkamanum t.d. vöðvabólgu þá eru þetta tímar fyrir þig.
Er stífleiki og stirnun að hrjá þig, þá eru þetta tímar fyrir þig.
Ertu að stunda líkamsrækt og vilt flýta fyrir endurheimt, þá eru þetta tímar fyrir þig.

Laus pláss í tíma kl. 6:10 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að prófa :) 🙌

Heilsulinda Velkomin í heilsulindina mína. Ég býð upp á einkaþjálfun í glæsilegum nýjum tækjasal og persónulega hóptíma á neðri hæðinni á Hótel Íslandi. Sérhæfi mig í þjálfun kvenna á öllum aldri. Hvort sem þú ert byrjandi eða með reynslu þá finnum við æfingar vi...

Ný námskeið byrja eftir helgi ! Örfá laus pláss, endilega komdu og vertu með, þú sérð ekki eftir því :) Heilsulind hópur...
09/03/2022

Ný námskeið byrja eftir helgi ! Örfá laus pláss, endilega komdu og vertu með, þú sérð ekki eftir því :)
Heilsulind hópur #3 mán, mið og fös kl. 8:30. Alhliða líkamsrækt fyrir konur í frábærum hóp. Námskeið byrjar 14. mars (er 4 vikur). *2 laus pláss.
Liðka og losa hópur #2 þrið og fim kl. 7:10. Teygjur, nuddrúllur og nuddboltar, dásamlegir tímar sem gera öllum gott. Námskeiðið byrjar 15. mars (er 4 vikur).

Nánari upplýsingar hér: http://heilsulinda.is/

Rúmar 2 vikur liðnar á hreina mataræðinu.. mér líður ennþá vel en viðurkenni að mig er farið að langa í ýmislegt t.d ost...
07/02/2022

Rúmar 2 vikur liðnar á hreina mataræðinu.. mér líður ennþá vel en viðurkenni að mig er farið að langa í ýmislegt t.d osta.. Grímsbæjar brauð 😂

Ég hef verið að nota boost töluvert í þessar í viku.

Ég veiktist mikið í maganum einn dag, þurfti að drekka nokkra Gatorade og fékk mér smá brauðbita (eina sem ég hafði lyst á) 🥺 En mér leið svo mikið betur eftir nokkra Gatorade þannig að ég er aftur komin á gott skrið 👍

Hef ennþá minni áhuga á matartímunum þannig að ég hugsa minna um mat almennt yfir daginn en á sama tíma er meiri undirbúningur fyrir hverja máltíð.

Sakna lítið nammi og gos, sem kemur skemmtilega á óvart.
Kókoskúlurnar eru alveg að bjarga mér hinsvegar.. svoo góðar 😅

Áfram gakk 👊🤓

Smá update af mánaðarverkefninu. Það er rúm vika liðin núna af þessum 4 vikum í ströngu mataræði. Vikan gekk nokkuð vel ...
30/01/2022

Smá update af mánaðarverkefninu. Það er rúm vika liðin núna af þessum 4 vikum í ströngu mataræði. Vikan gekk nokkuð vel en ég var samt þreytt. Fann að ég var oft að borða svipað yfir daginn og viljandi reyndi ég að hafa þetta fáar máltíðir á dag (borða 3x) þá þarf ég ekki að hugsa eins mikið um mat allan daginn 🤣 En það er klárlega meiri undirbúningur og matarpælingar í gangi alla daga.

Er ekki að drekka alveg nóg af vatni hugsa ég og ætla að bæta úr því í næstu viku.
Tók þá ákvörðun að leyfa sætar kartöflur 3x í viku kvöldið fyrir kennslu. Hún talaði um að það væri í lagi spari. Fann að ég þurfti á þeim að halda. En hef líka aðeins verið að prófa grasker og þau nota ég á móti eins og sætu.

Kjúklingasalat er vinsælast á matseðlinum en ég þarf ennþá að mana mig upp í chia grautinn.. það er eitthvað við áferðina sem ég hef alltaf átt erfitt með en ég læt mig hafa það 😅👊

Átti erfitt moment á föstudagskvöldið.. til að gera langa sögu stutta þá endaði fullur blandari af sulli í niðurfallinu og ég súr og pirruð út í horni í góðar 10 mín 🥺🙈 Annars er ég vel stemmd fyrir vikunni og hlakka til að sjá hvernig gengur þessa viku 🙏💪

Over and out !

Samhliða hóptímaþjálfun og einkaþjálfun er ég í nuddnámi. Partur af einum áfanga er ákveðin sjálfsskoðun og heilsumarkþj...
23/01/2022

Samhliða hóptímaþjálfun og einkaþjálfun er ég í nuddnámi. Partur af einum áfanga er ákveðin sjálfsskoðun og heilsumarkþjálfun í 4 vikur. Þar erum við allur bekkurinn að fara í mjög hreint "clean" mataræði í 4 vikur. Samhliða því erum við með ákveðin persónuleg markmið sem geta tengst hverju sem er t.d. heilsu, svefn, samböndum, áhugamálum, fjármálum, sköpun o.m.fl. Við erum svo samhliða mataræðinu að vinna í þeim markmiðum sem við setjum okkur.
Mig langar að leyfa ykkur að fylgjast aðeins með næstu 4 vikur og sjá hvernig gengur.

Mataræðið hjá mér er í stuttu máli (ekki tæmandi listi):

✅ Borða - allt salat, flest grænmeti, ber, kókosmjólk, möndlumjólk,kókosolía, möndlusmjör, quinoa, avocado, egg, vandaða olíur, vatn, grænt te, grænmetissafar, hrein krydd, þorskur, ýsa, lax, túnfiskur, lamb, kjúklingur og kalkúnn.

⛔ Ekki í boði næstu 4 vikur - kartöflur, mais, rauðrófur, allir ávextir fyrir utan ber, engar mjólkurvörur, hveiti, hrísgrjón, spelt, hafrar, baunir og sojaafurðir, smjör, smjörlíki, kaffi, gos, ávaxtasafar, hvítur og brúnn sykur, hunang og unnin kjötvara.

Á þessum 4 vikum náum við að núllstilla okkur aðeins og vonandi koma jafnvægi á svefn, meltingu, orku ofl. Er núna á degi 3, var með höfuðverk í gær en líður vel í dag. 🤓👊

Einn dag í einu 💪

Gleðilegt ár kæru vinir. Allt of langt síðan ég kom hingað inn. Janúar varla byrjaður en samt kominn 12. janúar, alveg g...
12/01/2022

Gleðilegt ár kæru vinir. Allt of langt síðan ég kom hingað inn. Janúar varla byrjaður en samt kominn 12. janúar, alveg galið hvað tíminn líður hratt.

Nýárs heitið mitt er bara eitt.. það er að fara oftar í göngutúr með þessum. Það er nærandi fyrir líkama, sál og sambandið sjálft. Gefa sér smá tíma án áreitis og barna 😅 Þetta er gæða stund og við stefnum að töluvert fleiri svona stundum.

🚶‍♀️🚶‍♂️👌😇

Address


Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilsulinda posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Heilsulinda:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed gym/sports facility?

Share