15/03/2026
Dýr og list - Sumarnámskeið 2026
🌷🌸🐰🐶🐱🎨🐴🐥🐹🌸🌷
Nú er opið fyrir skráningu á vinsæla sumarnámskeiðið okkar í Dýr og list fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára. Námskeiðin verða daglega í eina viku og hægt er að velja um að vera annað hvort fyrir hádegið frá klukkan 9:00 til 12:00 eða eftir hádegið frá klukkan 13:00 til 16:00.
Aðalmarkmið námskeiðsins er að börnin skemmti sér, komist í snertingu við dýr og efli skapandi hugsun.
Börnunum verður kennt að umgangast dýrin, þrífa hjá þeim, gefa þeim að borða, veita þeim ást og hlýju og þeir sem vilja, fá að fara á hestbak.
Við munum vinna með skapandi hugsun, persónulega tjáningu og ímyndunaraflið í myndlistinni.
Það verða einungis 10 til 15 börn á hverju námskeiði og þeim verður skipt upp í litla tveggja til þriggja manna hópa.
Mikilvægt er að börnin klæði sig eftir veðri því við munum vera mikið úti og taki með sér hollt og gott nesti fyrir nestistímann.
Í lok námskeiðsins, sem er á föstudögum, grillum við og höfum gaman.
Skráning er hafin og hægt er að bóka á námskeið í gegnum netfangið [email protected] eða í gegnum facebook síðu námskeiðsins, Dýr og list.
Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar
🌸🐰🐶🐱🎨🐴🐥🐹🌸
Vika 1
15. júní - 19. júní
9:00 - 12:00 eða 13:00 - 16:00
Vika 2
22. júní - 26. júní
9:00 - 12:00 eða 13:00 - 16:00
Vika 3
29. júní - 3. júlí
9:00 - 12:00 eða 13:00 - 16:00
Vika 4
6. júlí - 10. júlí
9:00 - 12:00 eða 13:00 - 16:00
🌸🐰🐶🐱🎨🐴🐥🐹🌸🐰🐶🐱🎨🐴🐥🐹🌸