03/11/2026
Haustmótið í áhaldafimleikum fór fram 16-18. oktober og átti Fjölnir frábæran hóp keppenda á mótinu.
Nicole Hauksdóttir og Helena Hulda Olsen kepptu í 1. þrepi; Nicole hafnaði í 1. sæti á tvíslá og 3. sæti í stökki.
Elísa Ósk Elvarsdóttir, Helen Chi Linh Khong, Sara Björg Brynjarsdóttir og Helga María Þórólfsdóttir kepptu í 1. þrepi í fyrsta sinn. Þær stóðu sig með prýði og sýndu glæsileg æfingaprógröm. Helen Chi hafnaði í 3. sæti í stökki og Sara í 3. sæti á jafnvægisslá.
Sunneva Arney Gísladóttir, Rakel María Ragnarsdóttir, Kristín Emma Gunnarsdóttir og Helena Dís Kjartansdóttir kepptu í 2. þrepi. Sunneva sigraði í stökki og hafnaði í 3. sæti á gólfi, en Helena náði 3. sæti á jafnvægisslá. Rakel hafnaði í 2. sæti í fjölþraut, 3. sæti bæði í stökki og á tvíslá og 2. sæti á gólfi.
Í 3. þrepi KK, 12 ára og yngri, kepptu þeir Fáfnir Freyr Atlason Haldorsen, Lucas Gabriel Bentia og Jason Hauksson. Strákarnir stóðu sig frábærlega og sýndu glæsilegar æfingar. Fáfnir Freyr sigraði í fjölþraut og náði einnig 1. sæti á tvíslá, 2. sæti á gólfi og svifrá og 3. sæti á hringjum. Lucas Gabriel náði 1. sæti á svifrá og 2. sæti á hesti. Jason Hauksson hafnaði í 4. sæti á svifrá.
Í 3. þrepi KK, 13 ára og eldri, kepptu Ernir Gabriel Colodrero og Elvar Örn Gunnarsson. Ernir Gabriel sigraði í fjölþraut og náði einnig 1. sæti á hesti og svifrá. Elvar Örn hafnaði í 2. sæti í fjölþraut og náði 2. sæti á gólfi og svifrá.
Víkingur Þór Jörgensson, Kristófer Fannar Jónsson, Daníel Baring Ívarsson og Petur Hrafnsson kepptu á Haustmóti í Frjálsum æfingum. Þeir kepptu á fyrsta árinu í juniorflokki og stóðu sig vel á mótinu.
Bæði stúlkur og strákar stóðu sig með prýði og sýndu mikla einbeitingu, metnað og glæsilegar æfingar á mótinu. Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með þeim áfram! 💙💛