18/09/2026
Ég hef í gegnum tíðina farið til nokkurra aðila og prófað ýmislegt vegna verkja sem hafa stafa vegna vefjagigtar. Eftir að hafa farið til Bjödda verð ég að segja að hann er svolítið sérstakur. Þekkingin sem hann hefur á samspili líkamans, hreyfingu og næringu er eitthvað sem ég hef ekki upplifað áður. líklega er það áhuginn á því sem hann er að gera og pæla í. Hann afgreiðir mann ekki bara með nokkrum æfingum eða bætiefnum, heldur vill hann skilja hvað er í gangi. Eg hef þurft að stoppa hann og spyrja hann þegar hann kemst á flug, en það er það sem hann vill vegna þess að hann vill að maður spyrji. Maður finnur líka að honum er í alvörunni annt um að hjálpa manni og honum hefur tekist það betur en nokkur annar.
Gurrý