28/07/2024
Það ætla allir að verða atvinnumenn í sinni grein EN hverjir hafa það sem þarf?
Það er til ungt íþróttafólk sem er MJÖG gott í sinni grein en það eru líka til fasteignasalar sem unnu einu sinni markakóngstitil á N1 mótinu, það eru til hjúkrunarfræðingar sem unnu norðurlandamót í hástökki og endurskoðendur sem voru Scania King í körfubolta. Af öllum þessum drottningum og kóngum eru örfáir sem ná markmiðunum sínum, því miður. Þeir sem ná alla leið eru ekki bara MJÖG góðir í sinni íþrótt, ekki bara MJÖG líkamlega vel búnir heldur þurfa þessir einstaklingar að vera ANDLEGA mjög sterkir. Það þýðir að þú þarft að geta valið það sem hjálpar þér meira til lengri tíma og sleppt því sem er skemmtilegt NÚNA; sleppa ballinu og fara snemma að sofa, sleppa afmælinu og taka recovery æfingu, sleppa kósíkvöldinu og rúlla í staðin. Þetta snýst um að hafa viljann og þrautseigjuna (grit) til að velja það sem skilar þér árangri seinna.