ÍR Fótbolti

  • Home
  • ÍR Fótbolti
Call Directions Website Contact the business

ÍR Fótbolti Allar helstu upplýsingar um gang mála hjá knattspyrnudeild ÍR!⚪️🔵

Einar framlengir! ✍️Við færum ykkur þau gleðitíðindi að Einar hefur framlengt samning sinn við okkur sem aðstoðar- og ma...
04/11/2026

Einar framlengir! ✍️

Við færum ykkur þau gleðitíðindi að Einar hefur framlengt samning sinn við okkur sem aðstoðar- og markmannsþjálfari meistaraflokks kvenna út næsta tímabil.

Einar ætti að vera orðinn ÍR-ingum að góðu kunnur eftir starf undanfarinna ára. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og erum orðin spennt fyrir næsta tímabili!

Áfram ÍR!

Matur úr efstu hillu!🍽️Lux veitingar sjá um matinn í ár á karlakvöldinu líkt og áður. Kalkúnabringa og lambalæri verður ...
02/11/2026

Matur úr efstu hillu!🍽️

Lux veitingar sjá um matinn í ár á karlakvöldinu líkt og áður. Kalkúnabringa og lambalæri verður á borðstólnum og meðlæti úr efstu hillu🤌

Ennþá er hægt að kaupa heilt 10 manna borð eða staka miða með því að senda póst á [email protected] en liðinn kostar 11.900kr🤝

Þetta verður partý aldarinnar næsta laugardagskvöld í Seljaskóla, kvöld sem mun aldrei gleymast!🫵

Óliver Andri skrifar undir!✍️Það gleður okkur að tilkynna það að knattspyrnudeild ÍR og Óliver Andri Einarsson hafa skri...
29/10/2026

Óliver Andri skrifar undir!✍️

Það gleður okkur að tilkynna það að knattspyrnudeild ÍR og Óliver Andri Einarsson hafa skrifað undir nýjan samning út 2028🤝

Óliver Andri er orkumikill miðjumaður fæddur árið 2004 og uppalinn Keflvíkingur. Hann hefur spilað með ÍR seinustu tvö tímabil og steig heldur betur upp í hlutverkinu sínu í sumar👏

Knattspyrnudeildin fagnar því að sjá Óliver halda tryggð við félagið. Á sama tíma og við óskum Óliver til hamingju með samninginn óskum við honum góðs gengis🙏

ÁFRAM ÍR!🤍💙

Auka jólapeysur komnar í sölu - Styttist í Julevenner!🎅Það eru komnar fleiri jólapeysur til sölu í stærðum XXS, L, XL og...
26/10/2026

Auka jólapeysur komnar í sölu - Styttist í Julevenner!🎅

Það eru komnar fleiri jólapeysur til sölu í stærðum XXS, L, XL og XXL. Peysurnar má finna á verslun.ir.is og afhending verður um lok nóvember🙏

Þetta verður það seinasta sem við pöntum í bili af jólapeysum, aðeins takmarkað magn í boði!👕

Emmsjé Gauti var þess heiðurs aðnjótandi að taka við ÍR jólapeysunni í hádeginu í dag. Hann mun halda hina árlegu Julevenner tónleika í Skógarselinu rétt fyrir jól sem er skemmtilegasta partý ársins🎉

Miðar á Julevenner tónleikana má finna á tix.is 🎟️

ÁFRAM ÍR!🤍💙

Jóhann Birnir og Davíð Örvar skrifa undir!Það gleður okkur að tilkynna það að knattspyrnudeild ÍR hefur samið til næstu ...
22/10/2026

Jóhann Birnir og Davíð Örvar skrifa undir!

Það gleður okkur að tilkynna það að knattspyrnudeild ÍR hefur samið til næstu tveggja ára við Jóhann Birni Guðmundsson og Davíð Örvar Ólafsson um þjálfun á meistaraflokki karla.

Jóhann Birnir, aðalþjálfari liðsins, kom fyrst til félagsins undir lok árs 2022 og má segja að það hefur gífurlega margt jákvætt gerst á þessum fjórum árum eftir komu Jóa í ÍR. Komast upp um deild, fara í umspil um laust sæti í Lengjudeildinni og margt fleira. Jóhann Birnir hefur ætíð haldið í mikla tryggð við ÍR og næst leikjahæsti þjálfari í sögu knattspyrnudeildarinnar á eftir Arnari Þór Valssyni, Addó.

Davíð Örvar, aðstoðarþjálfari liðsins, var að klára sitt annað tímabil með félaginu núna í sumar. Það var gífurlega mikill happafengur fyrir ÍR að fá Davíð í sínar raðir fyrir sumarið 2025 og enn stærra fyrir okkur að hann haldi í tryggð við félagið. Faðir Davíðs, Óli Jóh, stýrði einnig ÍR á sínum tíma.

Það eru ekki til betri menn í verkefnið en Jóhann Birnir og Davíð Örvar. Stjórn knattspyrnudeildar ÍR fagnar því þessum fréttum líkt og allir aðrir ÍR-ingar gera.

Áfram ÍR!
📸 Sóldís Eva

18:00👀✍️
22/10/2026

18:00👀✍️

🩷 BLEIKUR DAGUR HJÁ ÍR! 🩷Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna mættu í bleiku á æfingu dagsins í tilefni af bleika de...
21/10/2026

🩷 BLEIKUR DAGUR HJÁ ÍR! 🩷

Stelpurnar okkar í meistaraflokki kvenna mættu í bleiku á æfingu dagsins í tilefni af bleika deginum og bleikum október!🎀

Með þessu vilja stelpurnar sýna samstöðu með þeim sem hafa greinst með krabbamein og minna á mikilvægi vitundarvakningar og stuðnings í baráttunni gegn krabbameini💕

Saman stöndum við sterkari!💙🩷

Fleiri efnilegar stelpur valdar í landsliðin! Þær Alda Björt og Arna Fanney voru valdar í u-16 landsliðshópinn sem kemur...
19/10/2026

Fleiri efnilegar stelpur valdar í landsliðin!

Þær Alda Björt og Arna Fanney voru valdar í u-16 landsliðshópinn sem kemur saman til æfinga 27.-29. október undir stjórn landsliðsþjálfarans Margrétar Magnúsdóttur.
Við óskum stelpunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum!
Áfram ÍR!

Rosalegar móttökur - Auka miðar til sölu!Við þökkum fyrir frábærar móttökur á karlakvöld ÍR 2026 en við höfum bætt við n...
19/10/2026

Rosalegar móttökur - Auka miðar til sölu!

Við þökkum fyrir frábærar móttökur á karlakvöld ÍR 2026 en við höfum bætt við nokkrum miðum og borðum til sölu!🎟️

Stakur miði kostar 11.900 kr. og alls eru 10 saman á borði. Við minnum á að það er hægt að kaupa staka miða líka og þarf því ekki að fylla heilt borð ef menn vilja koma á besta herrakvöld ársins!🍻

Miðasalan fer fram í skilaboðum eða í gegnum netfangið [email protected]✍️

Það styttist í þetta og því þarf að hafa hraðar hendur að klára að panta og tryggja sér sæti!🫵

Hólmfríður skrifar undir!⚪️🔵Það gleður okkur að tilkynna það að Hólmfríður Þrastardóttir hefur skrifað undir tveggja ára...
16/10/2026

Hólmfríður skrifar undir!⚪️🔵

Það gleður okkur að tilkynna það að Hólmfríður Þrastardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild ÍR🤝

Hólmfríður kom fyrst til félagsins fyrir seinasta tímabil og kom inn af krafti seinasta tímabil með frábærri frammistöðu innan sem utan vallar👏

Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir okkur ÍR-inga og stjórn óskar Hólmfríði bæði til hamingju með samninginn og góðs gengis🙏

ÁFRAM ÍR!🤍💙

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ÍR Fótbolti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ÍR Fótbolti:

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed gym/sports facility?

Share