Mýrdalshreppur

Mýrdalshreppur

Share

Á þessari síðu verða birt fréttir, tilkynningar, viðburðir og ýmislegt fleira jákvætt og skemmtilegt sem tengist öflugu lífi í Mýrdalshreppi.

Víkurskóli í Vík í Mýrdal leitar að metnaðarfullum og drífandi starfsfólki í eftirfarandi stöður 20/05/2026

Víkurskóli í Vík í Mýrdal leitar að metnaðarfullum og drífandi starfsfólki í eftirfarandi stöður (nánari upplýsingar um hvert starf og umsóknarferli er að finna á vef Mögnum):

- Sérkennari – Um 50% starf með möguleika á hærra hlutfalli með almennri kennslu. https://jobs.50skills.com/mognum/is/42669

- Umsjónarkennari – Um 80-100% starf. https://jobs.50skills.com/mognum/is/42668

- Íþróttakennari – Um 100% starf í afleysingu til eins árs. https://jobs.50skills.com/mognum/is/42665

- Grunnskólakennari – Um 60-100% starf. Ýmsar kennslugreinar koma til greina á mið- og unglingastigi. https://jobs.50skills.com/mognum/is/42666/

Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2026

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Ólafsdóttir; [email protected]
Telma Eiðsdóttir; [email protected]

https://www.vik.is/is/allar-frettir/vikurskoli-i-vik-i-myrdal-leitar-ad-metnadarfullum-og-drifandi-starfsfolki-i-eftirfarandi-stodur

Víkurskóli í Vík í Mýrdal leitar að metnaðarfullum og drífandi starfsfólki í eftirfarandi stöður Sérkennari, Umsjónarkennari, Íþróttakennari & Grunnskólakennari

Photos from Mýrdalshreppur's post 19/05/2026

Hörpusjóðurinn var stofnaður til minningar um Hörpu Elínu Haraldsdóttur sem var einörð talskona inngildingar nýrra íbúa Mýrdalshreppi. Harpa lést langt fyrir aldur fram en setti engu að síður stórt mark á samfélagið með óþrjótandi eldmóði við skipulagningu viðburða og verkefna sem höfðu þann tilgang að draga fram allt það sem sameinar og gleður á hverjum stað. Sjóðurinn er stofnaður af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga sem ber fjárhagslega ábyrgð á sjóðnum.

Markmið sjóðsins er að auka samheldni og gagnkvæman skilning milli nýrra og rótgróinna íbúa landshlutans.

Helstu upplýsingar:

- Styrkupphæð: 1.000.000 kr.
- Aðilar sem starfa án hagnaðarsjónarmiða á Suðurlandi geta sótt um.
- Verkefni sem stuðla að virkri þátttöku nýrra íbúa, tungumálanámi, menningarlæsi og eflingu félagslegs tengslanets njóta forgangs.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2026
Nánari upplýsingar og umsóknarform er að finna á sass.is

Stuðningsfulltrúar óskast við Víkurskóla, Vík í Mýrdal 18/05/2026

STUÐNINGSFULLTRÚAR ÓSKAST VIÐ VÍKURSKÓLA, VÍK Í MÝRDAL

Víkurskóli Vík í Mýrdal auglýsir eftirfarandi stöður lausa til umsóknar:

Tvær stöður, stuðningsfulltrúa

Um er að ræða stuðning inn í bekki, Dægradvöl Víkurskóla og önnur störf sem viðkomandi eru falin. Reynsla af vinnu með börnum er kostur. Lögð er áhersla á að umsækjandi sé sveigjanlegur og hafi góða samskiptahæfni og vilja til að taka þátt í samstarfi, teymisvinnu og vinna samkvæmt sýn skólans. Íslenskukunnátta er nauðsynleg- C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Stöðurnar eru lausar frá og með næsta skólaári.

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí n.k.

Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skulu sendast á netfangið [email protected]

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is

https://www.vik.is/is/allar-frettir/studningsfulltruar-oskast-vid-vikurskola-vik-i-myrdal

Stuðningsfulltrúar óskast við Víkurskóla, Vík í Mýrdal Tvær stöður, stuðningsfulltrúa

12/05/2026

Æskulýðsnefnd HMF Sindra kynnir: Reiðskóli 2026!
Þann 1-5. júní verður reiðskólinn haldinn í græna hesthúsinu í Vík ásamt sýningu laugardaginn 6. júní.

Skráning á Abler.io/shop/hfsindri

https://www.vik.is/is/frettir/reidskoli-hmf-sindra-2026

Gámur fyrir garðaúrgang 08/05/2026

Hægt er að losa sig við garðaúrgang á stað sem er opinn allan sólahringinn.

Gámurinn er í Smiðjuvegi, aftan við orkan bensínstöðina. Smellið á hlekkinn til að sjá staðsetningu gámsins:

Gámur fyrir garðaúrgang Hægt er að losa sig við garðaúrgang á stað sem er opinn allan sólahringinn

05/05/2026

Viltu vera með í að móta framtíðina í Mánalandi?

Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi leikskólakennara til að bætast í okkar öfluga hóp.

Nánar um starfið: https://jobs.50skills.com/mognum/is/42592

05/05/2026

Viltu vera með í að móta framtíðina í Mánalandi?

Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi deildarstjóra til að bætast í okkar öfluga hóp.

Nánar um starfið: https://jobs.50skills.com/mognum/is/42591

05/05/2026

Víkurskóli, Vík í Mýrdal leitar að metnaðarfullum og drífandi íþróttakennara.

Um 100% starf er að ræða í afleysingu til eins árs.

Nánar um starfið: https://jobs.50skills.com/mognum/is/42665

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Vík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Smiðjuvegur 7
Vík
870

Opening Hours

Monday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Tuesday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Wednesday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Thursday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Friday 10:00 - 12:00