29/05/2026
Þessir flottu iðkendur útskrifuðust úr Afreksakademíu ÍBV og FÍV í dag, Alexander Örn Friðriksson, Ásdís Halla Hjarðar, Birna Dís Sigurðardóttir, Birna María Unnarsdóttir, Elís Þór Aðalsteinsson, Erna Sólveig Davíðsdóttir, Ólafur Már Haraldsson og Viggó Valgeirsson.
Við óskum þeim innilega til hamingju með áfangann og vonum að félagið fái að njóta krafta þeirra um ókomna tíð ❤️
27/05/2026
Milena lék með landsliðinu í Finnlandi
Knattspyrnukonan unga Milena Mihaela Patru var í eldlínunni með íslenska U16 ára landsliðinu í Finnlandi á dögunum þar sem Ísland var ein fjögurra þjóða sem tóku þátt í UEFA þróunarmóti. Ásamt gestgjöfunum og Íslendingum voru Írar og Ungverjar að spila á mótinu.
25/05/2026
Skráning í Sumarboltaskólann er hafin á Abler 🌞⚽️☀️
20/05/2026
Lokahóf yngri flokka í handbolta verður í íþróttahúsinu á morgun 🤾♂️🤾♀️
20/05/2026
Magdalena á æfingar með U19 hjá KSÍ
Halldór Jón Sigurðsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Magdalenu Jónasdóttur í leikmannahóp til æfinga dagana 1. og 2. júní nk. Liðið æfir á AVIS vellinum í Laugardalnum.
19/05/2026
Frábærir árangur hjá 3. fl. kk í handbolta 🤾♂️ 🥳
Bikarmeistarar og 2. sæti í Íslandsmótinu 🏆🥈
2. Sæti í íslandsmóti
Drengirnir í 3. fl Léku í gær til úrslita um íslandsmeistratilinn gegn liði Vals. Leikurinn var jafn og spennandi allan tíman og vour Valsrar einu marki yfir í hálfleik 14-13.
seinni hálfleikur var einnig mjög jafn og spennandi og var staðan 25-25 þegar um 10 mín voru eftir af leiknum en þá sigur Valsrar framúr og kláruðu leikinn 33-27
Veturinn var frábær hjá 3. fl í vetur þar sem að drengirnir urðu bikarmeistar í mars, enduðu í 3. sæti í deild og 2. sæti á íslandsmótinu. Einnig léku þeir á sterku alþjóðlegu móti þar sem þeir enduðu í 5. sæti.
Mikið ef efnilegum og spennandi leikmönnum sem við eigum og er framtíðin mjög björt hjá félaginu
19/05/2026
Kristín Klara í lokahóp U19 hjá KSÍ
Halldór Jón Sigurðsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Kristínu Klöru Óskarsdóttur í leikmannahóp til þátttöku í æfingamóti sem fram fer í Svíþjóð dagana 4.-9. júní nk. Liðið æfir á Íslandi þriðjudaginn 2. júní og miðvikudaginn 3. júní áðu...
13/05/2026
Sumaræfingatafla fótboltans tekur gildi mánudaginn 8. júní ⚽️
13/05/2026
Andri, Elís, Anton, Morgan, Sigurmundur, Agnes, Klara, Tanja í lokahóp hjá HSÍ
Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev, landsliðsþjálfarar U20 karla hjá HSÍ, hafa valið Andra Erlingsson og Elís Þór Aðalsteinsson í lokahóp fyrir komandi Evrópumót sem fram fer í júlí. Hópurinn kemur saman til æfinga núna í maí og einnig áður en haldið verður út ....
08/05/2026
Við þökkum Sjálfstæðisflokknum kærlega fyrir góða heimsókn og uppbyggilegt samtal við ÍBV íþróttafélag.
Við fórum yfir starfsemi félagsins, umfang rekstrar og þá skýru framtíðarsýn sem félagið hefur unnið að.
Við komum því á framfæri hvað ÍBV íþróttafélag telur að betur megi fara til að Bæjaryfirvöld geti stutt sem best við það öfluga og metnaðarfulla barna- og unglingastarf sem félagið hefur upp á að bjóða.
Það helsta sem við bentum á var :
Íþróttamannvirkjum bæjarins er mjög illa viðhaldið.
Rekstarstyrkir Vestmannaeyjabæjar til félagsins eru of lágir.
ÍBV íþróttafélag vill stöðva fyrirhugaðar framkvæmdir við íþróttahúsið, þær framkvæmdir eru unnar án samráðs við hagaðila og engin framtíðarsýn liggur fyrir.
Frístundastyrkur, sem er styrkur til fjölskyldna hefur ekki hækkað allt kjörtímabilið og er lágur í samanburði við önnur sveitafélög.
Það er okkar trú að opið samtal og samvinna skili betri ákvörðunum til framtíðar.
Nú hafa öll framboðin sem bjóða fram til bæjarstjórnarkosninga í maí komið til samtals við félagið.
ÍBV óskar Sjálfstæðisflokknum góðs gengis í kosningunum 16 maí.