Skotfélag Vestmannaeyja

Skotfélag Vestmannaeyja

Share

Opin síða Skotfélags Vestmannaeyja. Hér munum við birta fréttir og myndir og starfi félagsins

Umhverfisstofnun 11/04/2026

það eru komnir inn tímar í verklega skotvopnakennslu fyrir ust.is
25 apríl kl12:30
9maí kl 12:30
ef einhver er í vandræðum og þessir tímar henta ekki er alltaf hægt að hafa samband við okkur og við reddum því

mbk.Hörður Snær

Umhverfisstofnun Umhverfisstofnun starfar að verndun umhverfis með tilliti til náttúru og hollustuhátta

Photos from Skotfélag Vestmannaeyja's post 23/01/2026

Í gær fór fram verðlaunahátíð ÍBV Íþróttafélags
og var valinn Skotíþróttamaður ársins 2025 Sigurbjörn Adólfsson og Adolf Þórsson fékk viðurkenningu Silfur merki ÍBV fyrir sitt framlag til íþrótta síðustu ár. feðgarnir eru vel að þessu komnir og óskum við þeim til hamingju🎉
mbk.Hörður Snær

Photos from Skotfélag Vestmannaeyja's post 03/05/2025

Í dag fór fram The Puffin Run hlaupið og stóðu félagar úr Skotfélagi Vestmannaeyja sína plikt eins og venja er á Vatnsstöð við svæðið okkar, þetta er stór og skemmtilegur viðburður sem menn sækjast í ár eftir ár og hafa gaman af, takk fyrir aðstoðina og mætingu a kæru félagar.

mbk. Hörður Snær

Photos from Skotfélag Vestmannaeyja's post 05/03/2025

Þá er þessu BR50 riðlamóti lokið. Mótið hófst um miðjan janúar og lauk í lok febrúar. 32 þáttakendur í þremur flokkum tóku þátt í þessu skemmtilega móti.
þetta eru þeir sem unnu til verðlauna í þessum flokkum.

International sporter
Hörður snær 197 1 sæti
Óli Tórs 184 2 sæti
Óli sig 172 3 sæti

Léttur Varmint.
Óli Tórs 226-x6 1 sæti
Sigurbjörn 221-x2 2 sæti
Finnur Freyr 219-x4 3 sæti

Þungur Varmint.
Addi Þórs 238-5x 1sæti
óli Sig 238-4x 2sæti
JónHögni 234-6x 3sæti

Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti í hverjum flokki, og viljum við þakka þessum fyrirtækjum fyrir þeirra framlag. En þetta eru eftirtalinn fyrirtæki. Klettur og Skipalyftan ehf.

09/01/2025

Marcin Wanecki íþróttamaður ársins hjá Skotfélagi Vestmannaeyja 2024 vel að þessu komin, hefur verið ötull að sækja PRS mótaseríuna undir merkjum félagsins

20/09/2024

Nú hefur skotvís og RLS gert með sér samning um skotvopna kennslu og sem áður sjáum við um verklega hlutan af þessu námskeiði og hef ég sett inn 2 dagsetningar 12 okt kl 12:30 og 9 Nóv kl 12:30 svo ef það eru einhverjir sem ætla sér að ná sér í skotvopnaréttindi þá er tíminn núna;) stutt í rjúpuna
mbk, Hörður Snær.

Photos from Skotfélag Vestmannaeyja's post 10/08/2024

í dag fór fram fyrsta prs 22cal mót félagsinns og vorum 4 keppendur mættir til leiks og höfðu gaman af úrslitin voru eftirfarandi, 1 Hörður, 2 Marcin,3 Cezary skemmtanagildið var upp á 11,5👌 takk fyrir þetta Marcin Wanecki

Photos from Skotfélag Vestmannaeyja's post 05/05/2024

Í gær fór fram The Puffin Run hlaupið, þar hafa félagsmenn Skotfélags Vestmannaeyja mannað vatnspóst í jaðri svæðis okkar undan farin ár, nú fengu hátt í 1400 hlauparar að njóta þess, veðrið lék við okkur, ég vil þakka öllum þeim félagsmönnum sem tóku þátt í þessu með okkur í gær og gerðu þennan dag bæði auðveldari og skemmtilegri fyrir vikið
mbk.Hörður Snær

05/05/2024

The Puffin Run

Photos from Skotfélag Vestmannaeyja's post 28/04/2024

nokkrir vaskir menn og börn mættu og plokkuðu upp einhvern haug af allskonar rusli og gæddu sér á pulsum og prinsi eftir að verki var lokið. takk fyrir mætinguna félagar🤘

07/02/2024

Í gær var verðlaunaafhenting hjá ÍBV héraðsambandi, og við eigum verðugan fulltrúa sem var heiðraður. Ólafur Sigurðsson var valinn skotmaður ársinns, held að miðað við mætingar á skotæfingar í herjólfshöll og mætingu á skotsvæðið, er Óli tengdó vel að þessari viðurkenningu kominn. Óskum Ólafi til hamingju með valið, með Ólafi á mynd er Hörður Snær Pétursson Færseth formaður skotfélags vestmannaeyja.

07/12/2023

Í dag fengum við styrk frá vestmannaeyjabæ, og styrkur þessi kemur frá verkefninu viltu hafa áhrif.
Hörður formaður tók við þessum styrk fyrir okkar hönd í dag, og þessi styrkur er ætlaður í framkvæmdir við sportingvöllinn hjá okkur.
Þessi styrkur er kr 500.000-.
Þökkum við vestmannaeyjabæ fyrir þennan styrk.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Vestmannaeyjar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Vestmannaeyjar