18/02/2026
Herjólfsferðir 2026
Orkumótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1984. Á mótinu keppir 6. flokkur karla, eldra ár, í knattspyrnu og hafa margir af bestu knattspyrnumönnum landsins tekið þátt í mótinu á sínum yngri árum.
05/01/2026
SKRÁNING ER HAFIN!
Skráning hafin á Orkumótið 2026
Það verður gerð ein stór breyting á mótinu í ár, en við hættum að nota Helgafellsvöll og fjölgum völlum á Hásteinsvelli í staðin, allir leikir verða því á sama svæðinu. Við teljum þetta vera breytingu til góðs bæði fyrir okkur mótshaldarana og fyrir gestina okkar, að...
05/12/2025
Skráning á Orkumótið 2026 hefst 5. janúar nk. á heimasíðu mótsins ww.orkumotid.is - þar er einnig hægt að sjá allar upplýsingar um mótið t.d. dagskrá, mótsgjöld ofl.
Við ætlum að fara í eina stóra breytingu á mótinu, hættum með Helgafellsvöll og fjölgum völlum á Hásteinsvelli, allir leikir verða því á sama svæðinu.
08/07/2025
SUMARMÓTIN
Þátturinn um Orkumótið er kominn inn á visi.is - skemmtilegur þáttur sem allir gestirnir okkar verða að horfa á :)
Sumarmótin: Orkumótið í Vestmannaeyjum - Vísir
Stuð og stemning var í Vestmannaeyjum um síðustu helgi þegar Orkumótið fór þar fram, eins og sjá má í þætti Sumarmótanna hér á Vísi og Sýn+. Íþróttafréttamaðurinn og samfélagsmiðlastjarnan Andri Már Eggertsson tók eldhressa keppendur og gesti tali, afraksturinn má sjá ....
02/07/2025
Hér eru allir óskilamunir sem eru hjá okkur í Týsheimilinu, ef þið kannist við eitthvað endilega sendið okkur skilaboð hérna á Facebook.
Ef þið hafið gleymt sundfötum eða haldið að þið hafið gleymt einhverju í íþróttahúsinu, þá getið þið hringt þangað og athugað 488-2400.
29/06/2025
Þá er 42. Orkumótinu lokið, en síðustu keppendurnir héldu heim á leið í morgun. Alls tóku 108 lið þátt frá 36 félögum víðs vegar af landinu eða tæplega 1100 keppendur, þjálfarar og fararstjórar.
Mótið gekk í alla staði mjög vel og viljum við þakka öllum þeim sem komu að mótinu þátttakendum, sjálfboðaliðum, fyrirtækjum og öllum bæjarbúum fyrir að hjálpa okkur að gera upplifun strákanna sem allra besta - þvílík gleði og stemmning hjá knattspyrnumönnum framtíðarinnar!
Sjáumst á Orkumótinu 2026, 25.-27. júní!!
Á myndinni er Stebbi á Grund ásamt sínu fólki, en hann hefur séð um að manna grillið í mótslok í áratugi - takk fyrir 🩷
28/06/2025
Það er ekki haldið lokahóf allavega þetta árið, en sigurvegarar fá afhenta bikara og verðlaunapeninga að úrslitaleikjum loknum, liðið sem hafnar í 2. sæti fær einnig afhentar medalíur í lok leiks. Úrvalslið mótsins er valið og þeir sem verða þess heiðurs aðnjótandi að vera í því liði fá sín verðlaun að loknum lokaleik.
https://orkumotid.is/read/2025-06-28/ekki-lengur-lokahof-a-lokadeginum/
28/06/2025
Skemmtilegt myndband frá Halldóri vini okkar 🩷
Orkumótið í eyjum júní 2025