Sleipnirsport

Sleipnirsport

Share

Glíma , Judo, BJJ, Submission Wresling, backhold

08/07/2025
17/03/2025

Glerharður kjarni

Photos from Sleipnirsport's post 29/01/2025

Sleipnir good times

13/11/2024

Æfingabúðir GLÍ fara fram í Reykholti núna um næstu helgi 15.-17. nóvember. Æfingabúðirnar eru fyrir 10 ára og eldri og öll getustig velkomin!
Þátttökugjald er 10.000,- og inn í því eru allar æfingar, gisting á svæðinu (þátttakendur þurfa að koma með dýnur og svefnpoka), glímuvarningur, aðgangur í sundlaugina og pítsahlaðborð á laugardagskvöldinu í veitingastaðnum Mika.
Skráning þarf að berast á netfangið [email protected] fyrir miðnætti fimmtudaginn 14. nóvember. Með skráningu þarf að koma fram fullt nafn, fæðingarár og félag.
Greiða þarf þátttökugjald inn á reikning GLÍ samhliða skráningu:
Kt. 570169 0179
Rnr. 0111 26 501650
Endilega deilið og bjóðið vinum.
Sjáumst um helgina!

29/10/2024

🏆 Icelandic Open 2024 - Úrslit í Glímu og Hryggspennu! 🏆

Viðburðarrík helgi að baki í íþróttahúsinu í Vogum á Vatnsleysuströnd, þar sem Icelandic Open í Glímu og Hryggspennu fór fram 26.-27. október. Mótið dró til sín fjölbreyttan hóp keppenda og áhorfenda í unglinga- og fullorðinsflokkum, og hér eru öll úrslitin:

📌 Hryggspenna – Úrslit

Unglingaflokkur -74 kg:
1️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)
2️⃣ Matthías Örn Kristjánsson (ÚÍA)
3️⃣ Hafþór Örn Axelsson (Sleipnir)
4️⃣ Þórhallur Karl Ásmundsson (ÚÍA)

+74 kg flokkur unglinga:
1️⃣ Hákon Gunnarsson (ÚÍA)
2️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)
3️⃣ Hafþór Örn Axelsson (Sleipnir)
4️⃣ Elín Eik Guðjónsdóttir (ÚÍA)

+75 kg flokkur kvenna:
1️⃣ Heiðrún Fjóla Pálsdóttir (HSK)
2️⃣ Kristín Embla Guðjónsdóttir (ÚÍA)
3️⃣ Elín Eik Guðjónsdóttir (ÚÍA) (meiddist)

+84 kg flokkur karla:
1️⃣ Hákon Gunnarsson (ÚÍA)
2️⃣ Gunnar Þórarinsson (UMSS)
3️⃣ Guðlaugur Helgi Fríðbjörnsson (Sleipnir)
4️⃣ Gústav Sæland (HSK)
5️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)

-84 kg flokkur karla:
1️⃣ Gústav Sæland (HSK)
2️⃣ Kristín Embla Guðjónsdóttir (ÚÍA)
3️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)
4️⃣ Björgvin Fannar Svansson
5️⃣ Hafþór Örn Axelsson (Sleipnir)
6️⃣ Matthías Örn Kristjánsson (ÚÍA)
7️⃣ Davíð Máni Stefánsson (Sleipnir)
8️⃣ Þórhallur Karl Ásmundsson (ÚÍA)
9️⃣ Björn Mikael Karlsson (HSK)

Opinn flokkur karla:
1️⃣ Hákon Gunnarsson (ÚÍA)
2️⃣ Gunnar Freyr Þórarinsson (UMSS)
3️⃣ Gústav Sæland (HSK)
4️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)

Opinn flokkur kvenna:
1️⃣ Heiðrún Fjóla Pálsdóttir (HSK)
2️⃣ Kristín Embla Guðjónsdóttir (ÚÍA)

📌 Glíma – Úrslit

Unglingaflokkur -74 kg:
1️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)
2️⃣ Matthías Örn Kristjánsson (ÚÍA)
3️⃣ Þórhallur Karl Ásmundsson (ÚÍA)

+74 kg flokkur unglinga:
1️⃣ Hákon Gunnarsson (ÚÍA)
2️⃣ Björgvin Fannar Svansson
3️⃣ Þórður Páll Ólafsson

+75 kg flokkur kvenna:
1️⃣ Kristín Embla Guðjónsdóttir (ÚÍA)
2️⃣ Elín Eik Guðjónsdóttir (ÚÍA) (meiddist)
3️⃣ Heiðrún Fjóla Pálsdóttir (HSK)

+84 kg flokkur karla:
1️⃣ Hákon Gunnarsson (ÚÍA)
2️⃣ Gunnar Þórarinsson (UMSS)
3️⃣ Gústav Sæland (HSK)
5️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)

-84 kg flokkur karla:
1️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)
2️⃣ Þórhallur Karl Ásmundsson
3️⃣ Gústav Sæland (HSK)
4️⃣ Matthías Örn Kristjánsson (ÚÍA)
5️⃣ Davíð Máni Stefánsson (Sleipnir)

Opinn flokkur karla:
1️⃣ Hákon Gunnarsson (ÚÍA)
2️⃣ Gústav Sæland (HSK)
3️⃣ Gunnar Þórarinsson (UMSS)
4️⃣ Benóný Kristjánsson (GFD)

Opinn flokkur kvenna:
1️⃣ Kristín Embla Guðjónsdóttir (ÚÍA)
2️⃣ Elín Eik Guðjónsdóttir (ÚÍA) (meiddist)
3️⃣ Heiðrún Fjóla Pálsdóttir (HSK)

Frábær árangur hjá öllum keppendum👏

Þökkum öllum sem mættu og fylgdust með í beinni útsendingu! 🙌 Glíman heldur áfram að vaxa og dafna sem stærsta fangbragðaíþrótt landsins!

24/10/2024

Aðalfundur Sleipnis fór fram fyrir skömmu þar sem ný stjórn var kosin. Kosning stjórnarmeðlima fór fram samkvæmt lögum félagsins og niðurstaðan er eftirfarandi:

Ný stjórn Sleipnis:

Formaður: Gnýr Elíasson
Stjórn: Bjarni Darri Sigfússon, Fíona Sigurðardóttir, Björgvin Fannar Sveinsson, Davíð Máni Stefánsson
Varastjórn: Brynjar Kristinn Guðmundsson, Pálmar Óli Högnason, Aron Guðmundsson
Til hamingju og gangi ykkur vel í störfum ykkar!

Fundargerðin kemur fljótlega á hemasíðu félagsins glimasport.com

07/10/2024

Aðalfundur íþróttafélagsins Sleipnis verður haldinn miðvikudaginn 16. október klukkan 19:30 í æfingaaðtöðu félagsins.

Dagskrá Aðalfundar Íþróttafélagsins Sleipnis
Dags.: 16.október 2024
Staðsetning: Æfingaaðstaða

Setning fundar

Formaður/eða staðgengill setur fundinn og kynnir dagskrá.
Fundarstjóri og fundarritari

Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar

Formaður kynnir ársskýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
Ársreikningar

Gjaldkeri kynnir ársreikninga félagsins fyrir síðasta ár.
Umræður og samþykkt ársreikninga.
Ákvörðun um árgjöld

Tillaga stjórnar um árgjöld næsta árs kynnt.
Umræður og atkvæðagreiðsla um árgjöld.
Lagabreytingar

Ef einhverjar tillögur um lagabreytingar hafa borist, verða þær kynntar og ræddar.
Kosning stjórnar

Kosning stjórnarmeðlima samkvæmt lögum félagsins.
Önnur mál

Umræður og afgreiðsla annarra mála sem fundinum hafa borist.
Fundarslit

Fundarstjóri lýsir fundi slitið.

23/09/2024

Mölbrotin stjórnsýsla Reykjanesbæjar

Íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, með dyggum stuðningi Íþrótta- og tómstundaráðs (ÍT-ráðs) hefur nú fengið sínu framgengt og lokað fyrir afnot Glímudeildar Njarðvíkur að bardagahöllinni á Iðavöllum. Þar með er barna- og unglingastarfi deildarinnar lokið í bili, sem hefur verið gjaldfrjáls í rúmlega 13 ár og þjálfarar starfað þar í sjálfboðavinnu. Fjölmargir hafa komið að starfi deildarinnar á þessum tíma og almenn ánægja verið með starfið. Deildin er sú stærsta sinnar tegundar hér á landi og hefur eignast fjölmarga Íslandsmeistara, Norðurlandameistara og heimsmeistara og einnig staðið fyrir glímumótum og öðrum viðburðum í Reykjanesbæ fyrir alla aldurshópa. Fyrir síðustu atlögu Íþrótta- og tómstundafulltrúa voru um 100 iðkendur á öllum aldri skráðir í deildina.

Vilja ekki lána dýnurnar

Þegar í ljós kom að glímudeildin þyrfti að rýma æfingahúsnæðið, var óskað eftir að fá að taka dýnurnar sem keyptar voru sérstaklega fyrir deildina. Þá væri hægt að halda barna- og unglingastarfinu áfram þar til annað varanlegt húsnæði fyndist. Dýnurnar eru merktar deildinni og styrktaraðilum hennar. Reykjanesbær á tvo júdóvelli (dýnusett) sem ekki eru í notkun og einn glímuvöll. Beiðni um að fá að halda dýnunum um sinn, var hafnað af Íþrótta- og tómstundafulltrúa og það staðfestir illvilja þess einstaklings í garð deildarinnar. Hann hótaði einnig að kæra deildina fyrir þjófnað, ef umræddar æfingadýnur yrðu teknar úr núverandi húsnæði við Iðavelli.

Lögreglan mætir á staðinn

Iðkendur glímudeildarinnar komu nýverið til að rýma æfingahúsnæðið og sækja hluti sem tilheyrði deildinni og eru í einkaeigu. Meðal annars þurfti að losa æfingabúnað úr loftum og af veggjum. Á meðan verið var að losa þessa hluti, sem eru úr járni og stórir og þungir, var dýnunum rúllað upp til að koma í veg fyrir skemmdir á þeim. Á meðan á þessu stóð hringdi íþrótta- og tómstundafulltrúi, í samráði við forseta bæjarstjórnar (að hans sögn), og kærði tiltektina til lögreglu. Lögreglan kom á staðinn og sagði að íþrótta og tómstundafulltrúi hafi verið að fylgjast með tiltektinni í öryggismyndavélum. Iðkendur fengu ekki að klára að losa æfingaaðstöðuna en fengu það viku seinna.

Hunsun og ófagleg afgreiðsla opinberra mála

Bæjarráð hefur ekki svarað ítrekuðum beiðnum stjórnar Glímudeildar um að fá fund til að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum. Þar af leiðandi hafa allar ákvarðanir Reykjanesbæjar byggst á einhliða málflutningi hagsmunaaðila og rógburði. Þegar lögmaður glímudeildar og Umboðsmaður Alþingis hafa óskað eftir rökstuðningi vegna stjórnsýsluákvarðana Reykjanesbæjar, hefur þeim erindum annað hvort ekki verið svarað, eða seint og illa.

Forseti bæjarstjórnar vissi ekkert – en greiddi samt atkvæði

Stjórn glímudeildarinnar átti nýlega fund með fyrrverandi forseta bæjarstjórnar, sem samþykkti fundargerð ÍT ráðs um að taka æfingahúsnæðið af glímudeildinni. Á þeim fundi játaði hún að hún vissi ekkert um málið. Sagðist ekki hafa neinar skýringar á framkomu stjórnsýslunnar gagnvart glímudeildinni og kannaðist ekkert við sjónarmið glímudeildarinnar. Að þessu sögðu veltir maður fyrir sér hvort starfsmenn og aðrir fulltrúar Reykjanesbæjar þekki almennt ekki lög um opinbera stjórnsýslu og geri sér grein fyrir sinni ábyrgð í þeim efnum?

Hagsmunatengsl og klíkuskapur

Glímudeild Njarðvíkur tilheyrði áður UMFN en óskaði síðar eftir því að verða samþykkt sem félag innan ÍRB undir nýju nafni: Íþróttafélagið Sleipnir, eftir að formaður UMFN reyndi að leysa eignir Glímudeildar til aðalstjórnar UMFN í trássi við landslög og lög UMFN. Því var hafnað á síðasta aðalfundi og útgefið að Íþróttafélagið Sleipnir yrði aldrei samþykkt því að stjórnarmenn Sleipnis hefðu verið í slæmum samskiptum við ÍT-ráð og fleiri. Þessi yfirlýsing gengur í berhögg við lög ÍRB þar sem stendur:
"3. grein.
Öll íþróttafélög í Reykjanesbæ, sem hafa íþróttir á stefnuskrá sinni, eiga rétt á að gerast aðilar að ÍRB, enda fullnægi þau þeim skilyrðum sem á hverjum tíma gilda um frjálsa íþróttastarfsemi og lögum ÍSÍ.
4. grein.
Óski félag eftir að gerast aðili að ÍRB, skal það senda stjórn ÍRB umsókn sína ásamt lögum félagsins, skýrslu um stofndag þess og ár, stjórn þess og tölu félagsmanna. Uppfylli félagið inntökuskilyrði þessara laga, öðlast það réttindi í bandalaginu eftir að umsókn þess er samþykkt. Stjórn ÍRB úrskurðar um inntöku nýs félags, en ársþing staðfestir".

Með því að því að Íþróttafélaglið Sleipnir fái að vera aðili að ÍRB, er ÍRB að brjóta sínar eigin reglur, samkvæmt ofangreindu. Þegar betur er að gáð þá er ÍRB nú að mestu skipað starfsmönnum íþróttafélags Keflavíkur og núverandi og fyrrverandi meðlimum ÍT-ráðs. Síðan eru náin fjölskyldu- og vinatengsl einnig í þeim hópi við háttsetta starfsmenn Reykjanesbæjar. Ákvarðanatökur og umfjallanir verða aldreif faglegar í svona umhverfi.

Næstu skref

Fullorðinshópur Sleipnis er kominn með æfingaaðstöðu hja vinafélagi í íþróttahúsi Bjarkar í Hafnarfirði. Æfingar á mánudögum og fimmtudögum kl. 20. allar upplýsingar verða á nýrri æfingatöflu sem kemur fram í október.
Barna- og unglingastarfið fer því miður ekki af stað fyrr en nýtt húsnæði fæst frá Reykjanesbæj eða styrktaraðilum.
Allar nánari upplýsingar um æfingar Sleipnis,

www.glimsport.com

05/09/2024

Fyrsta æfing eftir frelsið. Æfingar alla daga.

Hvítur á Leik (Gi) 2024 03/09/2024

Sælir

Verðum með mót fyrir hvít og blá belti núna í lok september
https://smoothcomp.com/en/event/19022

Síðan verður BJJMU mót helgina eftir það. Auglýsi það seinna

ATH!
Erum byrjaðir að taka við greiðslum á paypal. Þannig allt skráningar og greiðsluferlið er inn á smoothcomp. Vonum að það einfaldi hlutina fyrir alla.

Hvítur á Leik (Gi) 2024 Uppáhaldsmót allra!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Vogar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Nowhere :)
Vogar
190

Opening Hours

Monday 20:00 - 21:00
Tuesday 18:00 - 21:00
Wednesday 18:00 - 21:00
Thursday 20:00 - 21:00
Friday 18:00 - 21:00