04/08/2026
Heilsudagar í íþróttamiðstöðinni á Fjölskyldudagar Sveitarfélagsins Voga
Miðvikudaginn 12. ágúst kl. 21:00 verður Aqua Jóga með flot í sundlauginni. Laugin verður lokuð fyrir almenning til að tryggja næði og góða upplifun.
Vonumst til að sem flestir nýti tækifærið og mæti í þennan einstaka viðburð sem haldinn er í tilefni Almyrkvans 🌜🌑🌛🌙
Vinsamlegast hafið samband við Aqua Jóga til að skrá ykkur (sendi skilaboð á FB síðu þeirra) og endilega tryggið ykkur skráningu sem fyrst, plássin eru fljót að fara 😃
04/08/2026
Heilsudagar í íþróttamiðstöðinni á Fjölskyldudagar Sveitarfélagsins Voga
Þriðjudaginn 11. ágúst nk. verða gususysturnar Petra og Thelma frá Saunagus Reykjanes með Pop-up gusu í sundlauginni okkar.
Fyrri hópur kl. 18:00 - 18:30
Seinni hópur kl. 19:00 - 19:30
Skráning í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar. Einnig hægt að hringja í afgreiðsluna í síma 440-6200.
Vonum að sem flestir grípi tækifærið til að njóta einstakrar upplifunar 💦
29/07/2026
Opnunartími um verslunarmannahelgina er með hefðbundnum hætti en frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst 2026 er opið frá kl. 10:00 -16:00 😎
----
Please note that Monday, August 3, is Commerce Day, a national public holiday in Iceland. The facility is open from 10:00 to 16:00 on that day 😎
----
Verið ávallt velkomin í Íþróttamiðstöðina í Vogum. Heitt á könnunni alla daga 😃
21/07/2026
Við erum búin að safna ótrúlegu úrvali af óskilamunum frá vetri og sumri. Það er eiginlega komið á það stig að sumir hlutirnir eru farnir að líta á sig sem fastagesti í Íþróttamiðstöðinni 😄
Ef þú hefur gleymt handklæði, sundfötum, gleraugum, vatnsbrúsa, skóm eða einhverju öðru hjá okkur, þá hvetjum við þig til að kíkja við og athuga hvort það bíði þín.
Óskilamunir sem ekki verða sóttir á næstunni munu fá nýtt heimili.
Við hlökkum til að sjá ykkur og vonandi sameina sem flesta eigendur og eigur þeirra á ný!
Endilega kíkið við í frístundarýminu þar sem þessu er öllu raðað snyrtilega 😃
03/07/2026
Getur verið að einhverjir hafi tekið skápalykil með sér heim og gleymt að skila? Þetta á sérstaklega við í kvk klefum þar sem það er áberandi hvað hefur fækkað mikið.
Það er ekki til mikið af lyklum eins og við vitum flest (og það mun breytast í náinni framtíð þegar við förum í breytingar) svo það er mikilvægt að allir skili lyklum í afgreiðslu eftir noktun.
Eigið annars góða helgi og verið hjartanlega velkomin nú sem áður, hvort sem það er til að nýta sundlaugaaðstöðu, rækt eða bara kíkja við í kaffi 🥰
02/07/2026
Það er hægt að fá folfsett lánað í íþróttamiðstöðinni án endurgjalds 😃 Endilega kíkið við og prófið, fínasta aðstaða við Aragerði!
23/06/2026
Minnum á flot á morgun í tilefni Jónsmessu, frítt í sund í tilefni dagsins og opið til 22:00 🤩
✨ Slökun í sundlauginni í Vogum á Jónsmessunni
💙 Slökun í vatni með Aqua Jóga
📍 Íþróttamiðstöðin í Vogum
📅 Jónsmessa 24. júní
Á Jónsmessunótt er sagt að mörkin milli hins sýnilega og ósýnilega verði örlítið þynnri. Þetta er nótt kyrrðar, birtu og töfra.
Laugin verður hituð upp og fáið þið allan þann búnað sem þarf til að fljóta áreynslulaust í dýrmæta vatninu okkar á meðan slakandi tónlist og andrúmsloft hjálpa þér að sleppa tökunum og njóta augnabliksins.
✨ Kyrrð fyrir hugann
✨ Hvíld fyrir líkamann
✨ Næring fyrir sálina
✨ Töfrandi stund á björtustu nótt ársins
💧 Hentar öllum sem vilja slaka á og njóta.
📞 Skráning og nánari upplýsingar eru hjá Aqua Jóga
💰 Verð: 1.500 kr.
Innifalið er aðgangur í laugina og heitt seremóníu kakó.
Leyfðu vatninu að halda utan um þig á Jónsmessunótt 💙
16/06/2026
Það er lokað hjá okkur 17. júní. Gleðilegan þjóðhátíðardag 🇮🇸