Merrimack Valley Icelandics

Call Directions Website Contact the business

Merrimack Valley Icelandics Merrimack Valley Icelandics is located in Boxford, MA. [email protected]

Meet the Icelandic horses, dogs, the trainer, riding and Kripalu Yoga instructor from Iceland, Ebba Meehan.

11/01/2026

Dr. Sigríður Björnsdóttir fjallaði um velferð keppnishesta á 65. Landsþingi hestamanna og vakti athygli á áhrifum höfuðburðar, hófalengdar og keppnisfyrirkomulags á líðan hestanna.

10/31/2026

Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir hlaut heiðurskross ÍSÍ, æðstu heiðursviðurkenningu íþróttahreyfingarinnar. Viðurkenningin er veitt einstaklingum fyrir frábært, ómetanlegt og langvarandi starf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.

Frétt í athugasemd

10/28/2026

Í fyrsta sinn er hægt að hefja dýralæknanám á Íslandi. Nítján nemendur hófu nám á Hvanneyri í haust. Formaður Dýralæknafélags Íslands vonar að námið verði til þess að fleiri dýralæknar starfi á landsbyggðinni.

10/28/2026

Við heyrum í Ástu bónda í Ási II og förum um víðan völl. Allt frá trippum og ræktun – til himna og aftur til baka.

Sjá viðtal í athugasemd.

10/28/2026
10/28/2026

Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur

Tíminn líður hratt og nú eru liðin tvö ár frá því að ég tók við formennsku í Landssambandi hestamannafélaga. Landsþing nálgast og ég hef ákveðið að gefa kost á mér til áframhaldandi formennsku næstu tvö árin. Ég tók þá ákvörðun með gleði og tilhlökkun. Ég hlakka til komandi tveggja ára og vonast eftir stuðningi félagsmanna til að halda áfram því mikilvæga starfi sem fram undan er. Á tímamótum sem þessum er gagnlegt að staldra við og líta yfir farinn veg, þótt ég kjósi jafnan að nýta líðandi stund og horfa fram á veginn.

Þegar litið er til baka ber fyrst að nefna þann framúrskarandi hóp sem starfar innan LH; starfsfólkið og ekki síður þann fjölmenna hóp sjálfboðaliða sem leggur af heilindum fram tíma sinn í þágu hestafólks um allt land. Án ykkar væri ekki unnt að halda úti því umfangsmikla starfi sem fram fer innan sambandsins.

Undanfarin tvö ár hefur jafnframt starfað öflugur og samhentur hópur í stjórn. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar í nóvember 2024 ákváðum við að bæði aðal- og varastjórn skyldu taka virkan þátt í stjórnarstarfinu. Stjórnarfundir eru því fjölmennir, en fyrirkomulagið tryggir fjölbreyttari sjónarmið og öflugri þátttöku fyrir félagsmenn um land allt.

Í góðlátlegu gríni hef ég fengið það orð á mig að vera kröfuhörð, enda héldum við 31 stjórnarfund á 52 vikum á fyrsta starfsári stjórnar. Verkefnin voru mörg og brýn. Efst á baugi voru fjármál og rekstur, þar sem LH hafði verið rekið með tapi árin á undan og nauðsynlegt var að snúa þróuninni við. Það tókst strax á fyrsta ári með samstilltu átaki starfsfólks og stjórnarmanna.

Helstu verkefni tímabilsins hafa verið fjölbreytt – rétt til að tipla á því helsta:

* Fjármál og rekstur
* Stefnumótun 2026–2030
* Standa þétt með félögum í kringum landið í hagsmunabaráttu og * þá aðallega er varða skipulagsmál
* Styðja og hvetja nefndir sem starfa innan LH
* Styrktarsamningar vegna afreksstarfs
* Afreksstarf og hæfileikamótun
* Sterkari tengsl og opnara samtal við landsliðsknapa
* Alþjóðasamstarf – FEIF og NIHC (félag Íslandshestasambanda Norðurlanda)
* Samstarf við ÍSÍ, Félag íþróttafréttamanna, ráðherra og forseta Íslands
* Heimsmeistaramótið 2025 og Norðurlandamótið 2026
* Horses of Iceland
* Hagspor hestamennskunnar
* Framtíðarsýn Landsmóta

Fram undan eru fjölmörg spennandi verkefni. Við munum halda áfram að hlúa að þeirri sameiginlegu auðlind sem íslenski hesturinn er og efla um leið starf hestamennskunnar um land allt.

Ég tel að við séum á réttri leið. Við sem höfum starfað saman í stjórn og nefndum á tímabilinu 2024–2026 getum litið stolt yfir farinn veg, enda er árangurinn sýnilegur í fjölmörgum verkefnum. Þrátt fyrir þann árangur bíða okkar áfram mikilvæg verkefni. Þar ber fyrst að nefna viðvarandi baráttu fyrir stöðu og framtíð fjórðu stærstu íþróttagreinar Íslands.

Hestamannafélög um land allt verja miklum tíma í samningagerð við sveitarfélög um stuðning við íþróttaiðkendur. Vægi hestaíþrótta er mismunandi milli sveitarfélaga. Hafnarfjörður er þar til fyrirmyndar; Hestamannafélagið Sörli er skilgreint sem íþróttafélag sveitarfélagsins og situr því við sama borð og önnur félög í bænum, svo sem FH og Haukar. Það er til eftirbreytni.

Hestamannafélög standa jafnframt frammi fyrir áskorunum í skipulagsmálum sveitarfélaga og þurfa ítrekað að verja reiðleiðir og hesthúsabyggðir. Að mínu mati er sú staða óviðunandi. Þótt hestamannafélögin og LH hafi lagt ríka áherslu á þessi mál er ljóst að gera þarf enn betur. Við þurfum að standa saman og tala einni röddu. Ábyrgðin hvílir á okkur hestamönnum; félögin fylgjast náið með þróuninni og LH mun áfram standa þétt við bakið á þeim.

Það góða samstarf og samtal sem nú hefur myndast milli hagaðila um gerð skýrslu um hagspor hestamennskunnar gefur tilefni til bjartsýni. Að verkefninu standa LH, Bændasamtökin og Deild hrossabænda, Samtök ferðaþjónustunnar og Háskóli Íslands á Hólum. Með sameiginlegri sýn og skýrri málsvörn getum við styrkt stöðu hestamennskunnar til framtíðar.

Ég hlakka til að halda áfram þessari vegferð með ykkur, af krafti, samstöðu og trú á framtíð íslenskrar hestamennsku. Saman getum við byggt enn sterkara starf til heilla fyrir hestinn, fólkið og félögin um land allt.

Kópavogur í október 2026
Linda B Gunnlaugsdóttir, formaður Landssambands hestamanna

10/27/2026

Í fyrstu grein af fjórum í nýrri greinaröð Eiðfaxa, „Knapinn sem íþróttamaður“, er sjónum beint að líkamsbeitingu knapans og áhrifum hennar á hestinn.

Address

282 Main Street
Boxford, MA
01921

Opening Hours

Monday 9am - 7pm
Tuesday 9am - 7pm
Wednesday 9am - 7pm
Thursday 9am - 7pm
Friday 9am - 7pm
Saturday 9am - 7pm
Sunday 9am - 7pm

Telephone

+17815210841

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Merrimack Valley Icelandics posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Merrimack Valley Icelandics:

Shortcuts

Share

Nearby gyms & sports facilities