Sunddeild Stjörnunnar

Sunddeild Stjörnunnar

Share

Sunddeild Stjörnunnar tekur vel á móti öllum sem vilja koma og æfa sund. Við erum með sundæ

26/04/2026

STJARNAN TV ER KOMIÐ Í LOFTIÐ 📺

Nú höfum við formlega opnað fyrir Stjarnan TV, nýjan miðil sem færir Stjörnuna nær ykkur en nokkru sinni fyrr.

Þetta er Stjarnan frá nýju sjónarhorni.
Meira efni. Meiri tenging. Meiri upplifun.

Á Stjarnan TV færðu:
-Allar íþróttir félagsins á einum stað
-Barna- og unglingastarf - fylgstu með framtíðinni mótast
-Efni bak við tjöldin
-Viðtöl við iðkendur og þjálfara
-Beinar útsendingar
-Skemmtiþætti og stemningu

Þetta er vettvangur fyrir þau sem vilja fylgjast betur með og upplifa meira af félaginu okkar.

En til að þetta nái flugi þurfum við ykkur með okkur í lið.
Með því að skrá sig, horfa, deila og taka þátt byggjum við þetta upp saman.

Stjarnan TV er áskriftarmiðill, en verður opið öllum til 1. maí.
Nú er tækifæri til að kíkja inn og vera hluti af Stjarnan TV frá byrjun.

https://tv.stjarnan.is/stjarnantv

SKÍNI STJARNAN 💙

17/01/2026

UMSK mótið var í Kópavogslaug í dag þessir Stjörnusnillingar mættu frá vinstri - Ivan - Birkir - Björn Gunnar - Björgvin

05/01/2026

Æfingar hefjast í dag skv. stundaskrá allar æfingar eiga að vera komnar inn á Abler - Gleðilegt sundár

24/12/2025

Sunddeild Stjörnunnar óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári🎄

SKÍNI STJARNAN 💙

Photos from UMF Stjarnan's post 08/12/2025

Ungmennafélagið Stjarnan og Margt Smátt/PUMA framlengja samstarfssamning!🤝

Ungmennafélagið Stjarnan og Margt Smátt hafa framlengt samning sinn til næstu fjögurra ára. Margt Smátt sem er umboðsaðili PUMA á Íslandi mun halda áfram að þjónusta æfinga og keppnisfatnað félagsins þvert á félagið. Mikil ánægja hefur verið með samstarfið og horfa báðir aðilar til þess að efla það samstarf enn frekar á næstu árum.

Það er mjög ánægjulegt og mikilvægt fyrir félag eins og Stjörnuna að hafa jafn öflugan samstarfsaðila og Margt Smátt til að þjónusta æfinga – og keppnisfatnað félagsins. Félagið og Margt Smátt munu leitast við því að efla enn frekar þjónustu við forráðamenn og iðkendur og mun samstarfið verða kynnt nánar hjá hverri og einni deild á árinu 2026.

SKÍNI STJARNAN 💙

03/11/2025

👇

Stjörnukonur í samstarfi við Rotarý á Íslandi bjóða iðkendum, foreldrum og þjálfurum upp á fræðslu fyrirlesturinn "Það er pláss "

Liðsheild er mikilvæg í okkar íþróttaumhverfi og þar skiptir mestu máli að vera góður liðsfélagi. Það þurfa allir að hjálpast að og standa saman til að gera liðið betra. Erindið er fyrir alla, foreldra og iðkendur, bæði félagslega sterka einstaklinga og aðra.

Fyrirlesturinn fjallar um félagslega einangrun þann 4.nóvember í forvarnarviku Garðabæjar, í Miðgarði kl. 17:30

Allir velkomnir, hlökkum til þess að sjá ykkur.

Stjörnukonur 💙

26/10/2025
Photos from Sunddeild Stjörnunnar's post 24/06/2025

Þessir ungu menn - Björn Gunnar, Birkir, Mikael og Ivan kepptu á AMÍ fyrir norðan sl helgi. Frábærir vinir hér sem eru allir vegir færir - stóðu sig frábærlega miklar bætingar og meira að segja nokkur verðlaunasæti. Til hamingju strákar💙

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Garðabær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address

Stjörnuheimilinu Við Ásgarð
Garðabær
210