Golfklúbbur Grindavíkur

Golfklúbbur Grindavíkur

Share

Golfklúbbur Grindavíkur

06/06/2026

Hola í höggi á Húsatóftavelli!!!!!!

Árni þór fór holu í höggi á 16. braut fyrr í vikunni. 170m og notaði Árni sexuna í verkið.
Golfklúbbur Grindavikur óskar Árna til hamingju með höggið og hvetur jafnframt aðra kylfinga sem enn eiga eftir að fara holu í höggi að drífa í því. 👏👏👏🏌️‍♂️🏌️‍♂️🏌️‍♂️

03/06/2026

Úrslit úr stigamóti 3.

Flokkur 36,1-54
1. Marko Valdimar Jankovic 42p

Flokkur 36,0 og lægri

1. Rúnar Sigurjónsson 39p
2. Þórarinn Gunnlaugsson 39p
3. Haukur Guðberg Einarsson 36p

Besta skor
Helgi Dan Steinsson 69 högg

Svona er staðan á efstu mönnum eftir 3 mót.

Haukur Einarsson 74 Stig
Ágúst Pálsson 57 stig
Þórarinn Gunnlaugsson 54 stig
Rúnar Sigurjónsson 51 stig

GG

Photos from Golfklúbbur Grindavíkur's post 31/05/2026

Tilkynning - fullt er orðið í Mustad Autoline mótið á Sjómannadaginn!

84 kylfingar eru skráðir til leiks í 42 liðum, hlökkum til að taka á móti kylfingum þennan dag.

Allir gestir Sjóarans síkáta eru velkomnir að kíkja við hjá okkur þennan dag, fylgjast með mótinu af pallinum hjá okkur og næla sér í kaffi og köku í skálanum á góðu verði.

27/05/2026

Stigamót 2 - Úrslit

1. Sæti Grétar Valur Schmidt 43 punktar
2. Sæti Haukur Guðberg Einarsson 37 punktar
3. Sæti Jón Gauti Dagbjartsson 36 punktar

Besta skor án forgjafar Sigurður Helgi Hallfreðsson 80 högg

Verðlaunahafar geta vitjað vinninga á skrifstofu Golfklúbbsins.

Staðan í Stigamótaröðinni er eftirfarandi

25/05/2026

Rósa Ragnarsdóttir klúbbmeðlimur fór holu í höggi á 7undu í kvöld, notaði 8 járn.

Til hamingju með fullkomna höggið þitt Rósa 🏌️‍♀️

Photos from Golfklúbbur Grindavíkur's post 23/05/2026

Mustad Autoline Texasmót - 7. júní Sjómannadagurinn
Verðlaun veitt fyrir 3 efstu sætin.
1.verðlaun: Sigurliðið fær að launum ferð á leik í með Grimsby Town. með Njóttu ferðum.
2. Verðlaun: Vegleg verðlaun frá Titleist
3. Verðlaun: Vegleg verðlaun frá Titleist
Næstur holu á par 3 holum, Titleist boltar.
Ræst út á öllum teigum kl 09:00 mæting kl 08:00

Skráning er hafin á golfbox.
Golfklúbbur Grindavíkur og Mustad

https://tourentry.golfbox.dk/?cid=5649070

22/05/2026

Við fengum skemmtilega heimsókn nú á dögunum sem má lesa um hér í fyrsta kommenti.

21/05/2026

Stigamót 1 - Úrslit

1. Sæti Ágúst Pálsson 39 punktar
2. Sæti Leifur Guðjónsson 37 punktar
3. Sæti Bjarni Andrésson 36 punktar

Besta skor án forgjafar Ingvar Guðjónsson 79 högg

Verðlaunahafar geta vitjað vinninga á skrifstofu Golfklúbbsins.

16/05/2026

Kæru meðlimir ⛳️
Þriðjudaginn 19. Maí klukkan 20:00 bjóðum við uppá nýliðafræðslu í Golfskálanum.
Helgi Dan ætlar að leiða okkur í gegnum helstu golfreglur, vallarreglur og spilatíma.
Þá verður einnig farið yfir Golfbox, skráningu í mót og skorskráningu.

Hvetjum alla áhugasama til að mæta, Hlökkum til að sjá ykkur!

10/05/2026

***Leiðrétting: frestum fyrsta stigamóti sumarsins um viku vegna leiks Grindavíkur og Tindastóls***

Kæru félagsmenn!

SKRÁNING í Meistaramótið er HAFIN og hvetjum við félagsmenn til að skrá sig sem fyrst. Flokkaskipting er uppsett en gæti breyst, það fer eftir skráningu.

Fyrsta STIGAMÓT ársins verður eftir rúma viku eða þriðjudaginn 19. maí næstkomandi, ekki er þörf á að skrá sig sérstaklega í mótið en það þarf að skrá sig á rástíma (hægt að gera viku fyrr) og það þarf koma í skála og greiða mótsgjald fyrir hring, fá skorkort og skila því að hring loknum sama dag. Síðasti rástími til að skrá sig til leiks er kl. 19:00. Ef enginn er í skála þegar leik er lokið þá sendið þið mynd af skorkorti á [email protected] um leið og leik lýkur.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Grindavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Húsatóftir
Grindavík
240