19/05/2026
Þá er 3 og síðasta íslandsmótið hjá U12 og U14 lokið. Var það haldið í Grundarfirði og Ólafsvík.
Það var keppt í 3 flokkum í U12 og 4 flokkum i U14
Við óskum öllum sigurvegurum helgarinnar innilega til hamingju með árangurinn.👏
U12 Stúlkur
🥇Þróttur Nes 1
🥈Afturelding Rauðar
🥉Huginn bleikar
U12 strákar
🥇UMFG rauðir
🥈Þróttir Nes
🥉UMFG grænir
U12 blandað
🥇Þróttur nes mix
🥈Huginn gul
🥉UMF Víkingur
U14 A kvk
🥇HK 1
🥈KA bláar
🥉Afturelding rauðar
U14 B kvk
🥇HK svartar
🥈Fylkir
🥉Þróttur Rvk
U14 A KK
🥇KA 1
🥈UMFG gulir
🥉HK X
U14 B KK
🥇HK Y
🥈Þróttur Nes
🥉UMFG bleikir
19/05/2026
Líf og fjör í firðinum okkar um helgina💙🏐
18/05/2026
Íslandsmótið í blaki haldið í Grundarfirði og Ólafsvík Part II
18/05/2026
Íslandsmótið í blaki haldið í Grundarfirði og Ólafsvík Part I
23/04/2026
Við fengum til okkar frábæra heimsókn frá John Kessel. Hann hefur starfað sem þjálfari og leiðbeinandi fyrir USA volleyball, FIVB, NORCECA, World ParaVolley og Special Olympics. Hann býr yfir víðtækri Reynslu af þróunarstarfi og þjálfun á alþjóðavettvangi. Hann er þekktur fyrir nýstárlegar aðferðir og mikla áherslu á að byggja upp fjölbreytt blak umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að taka þátt. Hann fór yfir margt fróðlegt og skemmtilegt með krökkunum og erum við mjög þakklát fyrir að fá hann í heimsókn til okkar. Með honum voru þær Thelma Dögg Grétarsdóttir og Rósborg Halldórsdóttir. Krakkarnir voru mjög spenntir fyrir þessu og tóku vel á móti honum í dag.
Við hjá Blakdeild UMFG þökkum kærlega fyrir okkur 🏐🙌🏼🏐
17/04/2026
Helgina 10.–12. apríl fór fram úrslitakeppni 1. deildar kvenna í Laugardalshöll. Stelpurnar spiluðum tvo leiki sem féllu því miður ekki okkar megin.🏐
Í deildarkeppninni endaði liðið í þriðja sæti, sem er mjög góður árangur. Eins og fyrirliði liðsins, Anna María, bendir á hefur hún aldrei spilað jafn gott blak á sínum ferli, sem sýnir að liðið er að ná sínum besta árangri hingað til.
Við erum einnig afar stoltar af yngri flokknum okkar. Alls fengu sjö stelpur úr yngri flokkum tækifæri með meistaraflokki í vetur: Amanda Kolbrún, Fanney Lilja, Hrafney Dóra, Ellen Alexandra og Telma Dís. Oliwia og Valdís tóku einnig sín fyrstu skref með meistaraflokk. Framtíðin er sannarlega björt ✨
Við viljum sérstaklega þakka öllum sjálfboðaliðunum okkar fyrir veturinn. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt. Takk fyrir að standa vaktina við ritaraborðið, á línunni, í dómgæslu, uppsetningu á leikjum, frágang og margt fleira. Eva Kristín, Elísabet Kristín, Lilja Dóra, Unnur Þóra, Helga Sjöfn, Kristín og fleiri ❤
TAKK elsku Tómas Freyr fyrir að mæta og mynda á leikjunum í vetur 📸 Ómetanlegt!
Síðast en ekki síst viljum við þakka kærlega fyrir allan stuðninginn í vetur 🙏 Það hefur vakið athygli í blakheiminum á Íslandi hversu skemmtilegt er að sækja leiki hjá okkur, vegna frábærs stuðnings og góðrar mætingar.
Takk fyrir snilldar tímabil, það verður spennandi að sjá hvað næstu ár hafa upp á að bjóða!
Gréta Sigurðardóttir
Formaður blakdeildar UMFG
11/04/2026
Úrslitahelgi 1.deildar kvenna gengin í garð 🏐
Hverjum alla til þess að mæta á leiki helgarinnar. Undanúrslitaleikur í Laugardalshöll á laugardag kl 12:30 á móti Ými.
Hverjum stelpurnar til sigurs💪🏼✨
30/03/2026
🏐🙌🏼🏐
Gott gengi á Vormóti Keflavíkur
Um helgina fór fram vormót Keflavíkur í Garðinum. S*x lið fóru frá félaginu, þrjú lið í U12 flokki, þar af tvö stráka lið og eitt stelpulið. Þá fóru þrjú lið í U14 flokki, eitt stelpulið og tvö þriggja manna strákalið. Þess má geta að okkar litla félag var með fles...