07/06/2026
Gleðilegan sjómannadag! ⚓
Í dag verður Lyftingaskóli frá kl. 11:00–14:00 og þjónustutími frá kl. 11:00–17:00.
Í tilefni sjómannadagsins bjóðum við upp á ókeypis kajaka, klifur og kaffi fyrir gesti.
Það er veðurblíða á Hjalteyri. Hnúfubakar sjást víða á firðinum og sjómenn hafa verið duglegir að færa heim björg í bú á eyrinni um helgina.
Njótið dagsins, hafsins og samverunnar.
KFA sendir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni sjómannadagsins.
31/05/2026
☀️ Sunnudagur á Hjalteyri ☀️
🧒👧 11:00–16:00 – Lyftingaskóli
Leikur, jafnvægi og hreyfifærni með foreldrum
🔓 11:00–17:00 – Open Gym
Þrautabrautir, drop-in og fjölskylduvænt andrúmsloft.
30/05/2026
Það er rigning og hrollur hérna hjá okkur á Hjalteyjunni. En það er alltaf hlýtt og notalegt inní Verksmiðjunni.
Í dag er opið frá 11:00-17:00. Hann Bart ætlar að halda áfram með skylmingaræfingar kl 15:00.
Eigið góðan dag, og munið allir eru velkomnir 😊
24/05/2026
☀️ Hvítasunnudagur á Hjalteyri ☀️
👨👩👧👦 11:00–16:00 – Lyftingaskóli
Leikur, jafnvægi og hreyfifærni með foreldrum
🔓 11:00–17:00 – Open Gym
Þrautabrautir, drop-in og fjölskylduvænt andrúmsloft í kastalnum okkar.
Allir velkomnir
Hún Katla á stórafmæli í dag. Ef þið sjáið hana í dag verðið þið að eiginlega að syngja fyrir hana 🎤
Til hamingju með daginn 😊❤
23/05/2026
Laugardagur í Síldarkastalanum
Opið frá 11:00–17:00.
Kl. 15:00 verður Bart okkar með sýningu og kennslu á gömlum aðferðum í hreyfingu, sjálfsvörn og meðferð handgerðra miðaldaráhalda.
Kaffi á könnunni. Hreyfing í húsinu.
16/05/2026
Opið hjá okkur á Hjalteyri frá kl 11:00 - 17:00.
Í dag er síðan opnun á sýningunni SÝNI í Verksmiðjunni hjá Gústav.
Sýningin skoðar tengsl Íslands, Grænlands og Jamaíka í gegnum álframleiðslu, hráefni og orku - hvað gerist þegar náttúra, samfélög og fólk verða hluti af alþjóðlegu auðlindakerfi?
Þétt skýjað úti, en sól rís alltaf úr austri í verksmiðjunni og bjart yfir öllum hérna á Hjalteyjunni.
Eigið góðan laugardag - allir velkomnir.
14/05/2026
Uppstigningardagur hjá okkur í Kastalanum í dag.
Opið í dag frá 12:00–22:00.
Karate frá 16:30-18:00 (🔥💣🔥)
Skvísur frá 18:30-20:00 (💯💦💥)
Blankalogn og fullkomið veður fyrir kayak, klifur, kraftlyftingar, karate, kaffi og kröftuga sólargeisla bæði úr sólinni og nýju sólunum í salnum.