Golfklúbbur Kiðjabergs

Golfklúbbur Kiðjabergs

Share

Golfklúbbur Kiðjabergs var stofnaður árið 1993. Kiðjabergsvöllur er einn af bestu golfvöllum Íslands.

Golfvöllurinn er ekktur fyrir stórbrotið landslag og skemmtilegan golfvöll sem er áskorun fyrir alla kylfinga.

30/05/2026

"Eilíf fergurð" á besta skori í fyrsta opna móti GKB!
Fyrsta opna mót ársins, GKB Grand Open, fór fram á Kiðjabergsvelli í dag. Leikfyrirkomulag var betri bolti m/forgjöf. Sigurvegarar urðu "Eilíf fergurð" sem kom inn á 8 höggum undir pari. Liðið skipuðu þeir Jón Árni Bragason úr GO og Garðar Snorri Guðmundsson úr GKG.
Nánar: https://www.gkb.is/urslit-ur-gkb-grand-open-2026

25/05/2026

Skráning er ennþá opin fyrir GKB GRAND OPEN.

Veglegir vinningar frá 66°Norður ásamt fleiru. Skemmtilegt mót þar sem ræst er út á öllum teigum.

Skráning hér:
https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039 #/competition/5445143/info

21/05/2026

Kæru félagar og gestir,

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna opnun Kiðjabergsvallar! ⛳️

Frá og með 23. maí 2026 verður Kiðjabergsvöllur opinn almenningi og hlökkum við mikið til að taka á móti kylfingum fyrir komandi golfsumar.

Hægt er að bóka rástíma frá klukkan 13:00, 23. maí næstkomandi, eða að hreinsunar- og vinnudegi loknum. Við vonumst til að sjá sem flesta njóta golfs, náttúrunnar og góðrar samveru í Kiðjabergi í sumar.

ATHUGIÐ:
Við viljum jafnframt benda á að golfbílar eru ekki leyfðir að svo stöddu þar sem völlurinn er enn viðkvæmur eftir veturinn. Við biðjum alla gesti um að sýna vellinum góða umgengni, virða staðarreglur og fylgja golfsiðum.

Golfklúbbur Kiðjabergs biður kylfinga staðfesta rástímann sinn!
Kynnið ykkur málið: https://mailchi.mp/gkb/stadfestu_maetingu
QR kóði verður inn í Golfskála.

Við óskum öllum gleðilegs golfsumars og hlökkum til að sjá ykkur á vellinum! ☀️🏌️

Með bestu kveðju,
Stjórn og starfsfólk Golfklúbbs Kiðjabergs

19/05/2026

Kæru félagar,

Við minnum á vinnudaginn á Kiðjabergi næstkomandi laugardag, 23. maí frá kl. 9–12
Lóðarhafar og meðlimir Golfklúbbs Kiðjabergs standa fyrir vinnudeginum sem verður frá kl. 9–12.
Mæting er kl. 8:40, svo hægt sé að skipta niður verkefnum og hefja daginn tímanlega.
Að venju eru ýmis verk sem þarf að inna af hendi, og hvetjum við alla félagsmenn og lóðareigendur eindregið til að mæta, láta gott af sér leiða og leggja hönd á plóginn.
Að loknum störfum verður boðið upp á pylsur og með því í klúbbhúsinu – tilvalið að enda vinnudaginn á notalegu spjalli og góðum mat!
Til að fá góða tölu af mætingu endilega skrá ykkur i skráningarskjalið að neðanverðu.

https://mailchi.mp/gkb/vinnudagur-gkb-2026

13/05/2026

FRESTUN VINNUDAGS

Kæru félagar,

Við þurfum því miður að fresta vinnudegi okkar um eina viku þar sem völlurinn er viðkvæmur þessa dagana.

Vinnudagur á Kiðjabergi verður því laugardaginn 23. maí frá kl. 9–12

Lóðarhafar og meðlimir Golfklúbbs Kiðjabergs standa fyrir vinnudeginum sem verður frá kl. 9–12.

Mæting er kl. 8:40, svo hægt sé að skipta niður verkefnum og hefja daginn tímanlega.

Að venju eru ýmis verk sem þarf að inna af hendi, og hvetjum við alla félagsmenn og lóðareigendur eindregið til að mæta, láta gott af sér leiða og leggja hönd á plóginn.

Að loknum störfum verður boðið upp á pylsur og með því í klúbbhúsinu – tilvalið að enda vinnudaginn á notalegu spjalli og góðum mat!

Til að fá góða tölu af mætingu endilega skrá ykkur i skráningarskjalið að neðanverðu.

https://mailchi.mp/gkb/vinnudagur-gkb-2026

11/05/2026

Vinnudagur í Kiðjabergi – Laugardaginn 16. maí kl. 9–12

Við minnum á vinnudaginn á Kiðjabergsvelli næstkomandi laugardag 16. maí.
Lóðarhafar og meðlimir Golfklúbbs Kiðjabergs standa fyrir vinnudeginum sem verður frá kl. 9–12.
Mæting er kl. 8:40, svo hægt sé að skipta niður verkefnum og hefja daginn tímanlega.
Að venju eru ýmis verk sem þarf að inna af hendi, og hvetjum við alla félagsmenn og lóðareigendur eindregið til að mæta, láta gott af sér leiða og leggja hönd á plóginn.

Að loknum störfum verður boðið upp á pylsur og með því í klúbbhúsinu – tilvalið að enda vinnudaginn á notalegu spjalli og góðum mat!

Til að fá góða tölu af mætingu endilega skrá ykkur i skráningarskjalið að neðanverðu.

Eins og flestir vita er 16. maí kosningadagur til sveitastjórna og minnum við fólk á að kjósa.

https://mailchi.mp/gkb/vinnudagur-gkb-2026

07/05/2026

ÖNNUR UPPFÆRSLA!!!!!

Kæru félagar,

Hreinsun æfingarsvæðisins (rangeins) hefur farið fram og sáu vasklegir vallarstarfsmenn golfklúbbsins um verkið og undirbúning svæðisins fyrir komandi tímabil.

Önnur verkefni og tiltekt verða síðan unnin á vinnudegi GKB sem auglýstur verður nánar síðar.

Við hlökkum til komandi sumars og að taka á móti félagsmönnum og gestum á ný.

Með bestu kveðju,
Vallarnefnd

01/05/2026

ÍTREKUN!

Kæru félagar og gestir,

Við viljum ítreka til ykkar að golfvöllurinn er lokaður fyrir allt golfspil að svo stöddu. Þetta á sérstaklega við um notkun golfbíla, þar sem völlurinn og undirlagið er enn viðkvæmur eftir veturinn.

Við biðjum ykkur vinsamlega að virða lokunina og forðast alla umferð um völlinn þar til hann verður formlega opnaður.

Markmið okkar er að vernda ástand vallarins svo hann verði sem best undirbúinn fyrir komandi tímabil.

Við munum tilkynna um opnun um leið og aðstæður leyfa.

Við þökkum kærlega fyrir skilning og samvinnu.

Með bestu kveðju,
Vallarstarfsmenn

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Selfoss?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Kiðjaberg
Selfoss
805