21/04/2026
Núna höfum við stjórn Kraftlyftingafélags Akraness tekið yfir rekstur og utanumhald Lyftingadeildar Akraness (fyrir ólympískar lyftingar).
Þau munu deila aðstöðunni með okkur í Íþróttahúsinu að Vesturgötu, sem styttist í að við fáum afhenta.
Viljum hvetja þá sem hafa verið virkir iðkendur í lyftingadeildinni að setja sig í samband við Kristínu Þórhalls., formann Kraftlyftingafélags Akraness 🏋️
14/04/2026
Þó að við séum kannski sein með fréttirnar að þá vildum við halda því til haga hér á síðunni okkar að Kristín Þórhallsdóttir varð Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum 21. mars síðastliðinn. Mótið fór fram á Möltu.
Kristín keppti í -84 kg opnum flokki kvenna en setti samt sem áður heimsmet í hnébeygju og samanlögðu í master 1 flokki (40-49 ára) og Evrópumet í master 1 í réttstöðulyftu.
Þyngstu lyftur Kristínar voru:
Hnébeygja: 225 kg
Bekkpressa: 117,5 kg
Réttstöðulyfta: 225 kg
Samanlagt: 567,5 kg 🥇
Við óskum Kristínu til hamingju með Evrópumeistaratitilinn og öll metin 👏
Helgi Jón Sigurðsson keppti einnig á sama móti í -120 kg opnum flokki karla.
Hans þyngstu lyftur voru:
Hnébeygja: 305 kg
Bekkpressa: 192,5 kg
Réttstöðulyfta: 300 kg
Samanlagt: 797,5 kg
22/03/2026
Kristín okkar Evrópumeistari 👏
Dýralæknirinn og kraftlyftingarkonan Kristín Þórhallsdóttir gerði sér lítið fyrir og varð Evrópumeistari í -84 kg flokki á Evrópumótinu í St. Julians á Möltu í dag.
23/12/2025
Kristín Þórhallsdóttir okkar er kraftlyftingakona ársins 👏
Kraftlyftingafólk ársins 2025
Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands hefur valið Kristínu Þórhallsdóttur og Guðfinn Snæ Magnússon kraftlyftingafólk ársins 2025.
Kristín keppir í -84 kg flokki og er í Kraftlyftingafélagi Akraness. Þetta er í þriðja skiptið sem Kristín hlýtur þennan titil. Á árinu náði Kristín 4. sæti í samanlögðum árangri á Evrópumeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum eftir hörkubaráttu um bronsið. Á mótinu tók hún 3. sætið í hnébeygju. Kristín varð Íslandsmeistari í klassískum kraftlyftingum á árinu og var þar hæst á stigum yfir bæði kvenna- og karlaflokk.
Guðfinnur keppir í kraftlyftingum með búnaði í +120 kg og er félagi í kraftlyftingadeild Breiðabliks. Þetta er í annað sinn sem Guðfinnur hreppir þennan titil. Á árinu tók Guðfinnur þátt í bæði Evrópumeistaramótinu og Heimsmeistaramótinu. Á Evrópumeistaramótinu tók Guðfinnur silfrið í samanlögðu auk þess að fá silfur í hnébeygju og brons í bekkpressu. Á Heimsmeistaramótinu varð Guðfinnur í 7. sæti og tók þar nýtt glæsilegt Íslandsmet í hnébeygju.
Helstu afrek ársins hjá Kristínu:
Stigahæsta konan í klassískum kraftlyftingum árið 2025 með 107,86 IPF GL stig
Evrópumeistaramótið í klassískum kraftlyftingum
4.sæti í samanlögðu – 527,5 kg
Bronsverðlaun í hnébeygju – 202,5 kg
Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum
1.sæti í samanlögðu – 570,5 kg
Íslandsmet í bekkpressu (þrílyftumót) – 125,5 kg
Stigahæst yfir bæði kvenna -og karlaflokki – 107,86 IPF GL stig
Menningarbikarinn í bekkpressu
Í klassík: 1.sæti – 128 kg
Íslandsmet í bekkpressu – 128 kg
Helstu afrek ársins hjá Guðfinni:
Stigahæsti karlinn í kraftlyftingum með búnaði árið 2025 með 93,21 IPF GL stig
Heimsmeistaramótið í kraftlyftingum með búnaði
7. sæti í samanlögðu – 1075 kg
Íslandsmet í hnébeygju – 440 kg
Evrópumeistaramótið í kraftlyftingum með búnaði
2. sæti í samanlögðu – 1030 kg
Silfurverðlaun í hnébeygju – 420 kg
Bronsverðlaun í bekkpressu – 310 kg
Menningarbikarinn í bekkpressu
Með búnaði: 1.sæti – 320 kg / Í klassík: 1.sæti – 185 kg
12/12/2025
Um síðustu helgi keppti okkar maður, Helgi Jón Sigurðsson, á EM ungmenna í klassískum kraftlyftingum en mótið fór fram í Druskininkai, Litháen.
Mótið var síðasta mót Helga í ungmennaflokki en þess má geta að hann á nú þegar bæði Íslandsmet og lágmörk fyrir árið 2026 á stærstu alþjóðlegu mótin í opnum flokki.
Það verður því spennandi að fylgjast með Helga takast á við þau landliðsverkefni á nýju ári.
Helgi átti ágætt mót á EM ungmenna. Hann keppti í -120 kg flokki karla og náði 5/9 gildum lyftum. Hann náði þannig ekki að skila öllu sínu þennan keppnisdag og á því feyki nóg inni.
Stærsta afrekið var Íslandsmet í réttstöðulyftu og samanlögðu en bæði Íslandsmetin eru hvoru tveggja met í ungmennaflokki og í opnum flokki.
Þyngstu lyftur Helga á mótinu voru:
Hnébeygja: 307,5 kg
Bekkpressa: 185 kg
Réttstöðulyfta: 320 kg 🇮🇸
Sananlagt: 812,5 kg 🇮🇸 og 94,8 IPF GL stig
Með árangrinum hafnaði hann í 9. sæti í flokknum.
Við óskum Helga til hamingju með árangurinn og glæsilegu Íslandsmetin 🇮🇸👏
03/12/2025
Þann 23. nóvember s.l. hélt Kraftlyftingafélag Akraness Íslandsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum. Mótið var haldið í Íþróttahúsinu að Vesturgötu. Skráning keppenda á mótið var góð og mótahald gekk afar vel. Viljum við nýta tækifærið og þakka þeim fyrir sem komu og hjálpuðu okkur með uppsetningu á mótinu, flutning á búnaði milli bygginga, stangarvörslu og frágang eftir mótið. Viljum einnig þakka Hreysti fyrir gjafir fyrir þrjá stigahæstu keppendurna í karla- og kvennaflokki 🤝
Jafnframt átti félagið einn keppanda á mótinu, hann Kára Rafn Karlsson. Kári keppti í +120 kg M1 flokki karla og varð annar í sínum flokki. Kári tvíbætti Íslandsmetið í hnébeygju í sínum flokki og náði einnig Íslandsmeti í réttstöðulyftu sem var þó slegið stuttu síðar í æsispennandi keppni.
Þyngstu lyftur Kára voru:
Hnébeygja: 242,5 kg
Bekkpressa: 140 kg
Réttstöðulyfta: 255,5 kg
Samanlagt: 638 kg sem gáfu 72,8 IPF GL stig. Með þeim árangri varð Kári þriðji stigahæsti keppandi mótsins í karlaflokki. Við óskum Kára til hamingju með árangurinn 👏
21/10/2025
Byrjendamót í kraftlyftingum og dómarapróf fór fram síðast liðna helgi. Tveir keppendur tóku þátt á byrjendamótinu.
Hjörtur Elías Ágústsson, fæddur 2009, keppti í -83 kg flokki karla.
Hans bestu lyftur á mótinu voru:
Hnébeygja: 145 kg
Bekkpressa: 82,5 kg
Réttstöðulyfta: 160 kg
Samanlagt: 387,5 kg og 54,6 GL IPF stig
Það færði honum 2. sætið í þyngdarflokknum.
Kristbergur Jónsson keppti í +120 kg flokki karla. Kristbergur náði því miður ekki gildri lyftu í hnébeygju og fékk því engan samanlagðan árangur skráðan. Hans þyngsta lyfta í bekkpressu var 82,5 kg og í réttstöðulyftu 142,5 kg.
06/10/2025
slandsmeistaramót í klassískum kraftlyftingum fór fram í íþróttahúsinu Digranesi s.l. laugardag og átti félagið þar tvo keppendur.
Kristín Þórhallsdóttir keppti í -84 kg opnum flokki kvenna. Kristín sigraði bæði flokkinn og var jafnframt stigahæsti keppandi mótsins og því Íslandsmeistari kvenna 2025.
Kristín náði 8/9 lyftum gildum og hennar þyngstu lyftur voru:
Hnébeygja: 215 kg
Bekkpressa: 125,5 kg Ísl. met í opnum flokki.
Réttstöðulyfta: 230 kg
Samanlagt: 570,5 kg sem gefa 107,9 GL IPF stig.
Með árangrinum er Kristín komin með lágmörk á bæði EM og HM 2026 sem verða hennar næstu landsliðsverkefni.
Margar af lyftum Kristínar voru einnig Íslandsmet í masterflokki 1.
Arnar Gaui Björnsson mætti til leiks í -83 kg flokki karla.
Því miður gekk það ekki hjá Arnari að fá gilda lyftu í hnébeygju og því fékk hann engan samanlagðan árangur skráðan.
Þyngsti bekkur hjá honum var 155 kg og þyngsta réttstöðulyftan 260 kg.
13/09/2025
Helgi Jón Sigurðsson frá Kraftlyftingafélagi Akraness gerði góða ferð til Costa Rica á dögunum þar sem hann keppti á HM ungmenna í klassískum kraftlyftingum.
Helgi, sem er á sínu síðasta ári í ungmennaflokki, keppti þar í -120 kg flokki karla.
Hann náði þar að bæta samanlagðan árangur sinn um 15 kg og setti þar með Íslandsmet í opnum flokki og tryggði sér jafnframt HM lágmark í opnum flokki.
Bestu lyftur Helga á mótinu voru:
Hnébeygja: 307,5 kg (7,5 kg bæting)
Bekkpressa: 195 kg (10 kg bæting)
Réttstöðulyfta: 307,5 kg
Samanlagt: 810 kg - Ísl.met í -120 opnum flokki karla
Við erum ótrúlega stolt af Helga og óskum honum til hamingju með frábæran árangur á mótinu 👏