03/11/2026
Bryndís Rún Þórólfsdóttir, leikjahæsti leikmaður kvennaliðs ÍA frá upphafi leggur skóna á hilluna 💛
Bryndís Rún tilkynnti í vikunni að hún mun leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir 13 ár í meistaraflokki. Bryndís Rún er fædd árið 1997, uppalin skagakona og spilaði alls 270 leiki fyrir félagið og skoraði 39 mörk. Einnig spilaði Bryndís alls 7 yngri landsleiki og skoraði 1 mark.
Bryndís var fyrirliði liðsins frá árinu 2019 út tímabilið 2025 en hún eignaðist stúlku í októbermánuði árið 2025 og var því fjarri síðustu tvö tímabil en var þó alltaf tryggur stuðningsmaður á meðan orlofinu stóð og studdi vel við okkar konur.
Bryndís býr yfir miklum hæfileikum sem knattspyrnukona, er yfirveguð, mikill leiðtogi og kraftmikill leikmaður. Hún dreif sínar konur vel áfram á vellinum og spilaði alltaf með hjartanu. Bryndís kemur frá mikilli fótboltafjölskyldu og fékk þann heiður að spila með móður sinni, Áslaugu Rögnu Ákadóttur í lok hennar ferils. Bryndís fékk einnig að spila með systur sinni, Birnu Rún sem er leikmaður meistaraflokks í dag og litlu frænku, henni Sunnu Rún sem leikur með liði Breiðabliks.
Við eigum Bryndísi margt að þakka en hún hefur einnig verið stór partur af þjálfun og uppeldi ungra leikmanna hjá félaginu, bæði í hlutverki fyrirliða, þjálfara og í nokkur ár skólastjóri knattspyrnuskólans.
Við óskum Bryndísi Rún innilega til hamingju með frábæran feril 💛🖤