Fimleikadeild KA

Fimleikadeild KA

Share

Gymnastic club in Akureyri, Iceland. Með tilkomu nýrrar aðstöðu til fimleikaiðkunnar tvöfaldaðist iðkendafjöldi félagsins á skömmum tíma og fór í 800 iðkendur.

Fimleikafélag Akureyrar var stofnað árið 2004, undanfari félagsins var Fimleikaráð Akureyrar. í desember 2024 sameinaðist félagið KA (Fimleikadeild KA). Fim.KA hefur aðsetur í íþróttamiðstöðinni við Giljaskóla, en þar er að finna sérútbúinn fimleikasal sem tekin var í notkun haustið 2010. Áður hafði félagið æfingaaðstöðu í Íþróttahúsi Glerárskóla. Haustið 2024 voru rúmlega 400 iðkendur skráðir hj

05/06/2026

Við leitum af hópfimleikaþjálfurum til þess að bætast við frábæra þjálfara teymið okkar !

Photos from Fimleikadeild KA's post 04/05/2026

Þann 25. apríl síðastliðinn fóru elstu iðkendur okkar á Vormót eldri flokka.

Alls kepptu fyrir hönd KA fjögur lið í þremur flokkum.

Bæði lið í 1.flokki/meistaraflokk (H1) komust á verðlaunapall í stökkfimi; KA gular enduðu í 2. sæti og KA bláar í 3. sæti.

2. flokkur (H2) hafnaði í 4. sæti og 3. flokkur (H3) í 5. sæti.

Frammistaða liðanna var félaginu til mikils sóma og sýndu iðkendurnir bæði mikinn metnað, góða liðsheild og baráttuvilja á mótinu. Vegna mikilla breytinga hjá félaginu á undanförnum misserum viljum við sérstaklega hrósa iðkendum og þjálfurum deildarinnar, ásamt þeim sem hafa lagt sitt af mörkum við að byggja upp öflugt starf á ný.

Sjá : https://www.ka.is/fimleikar/frettir/frabaert-arangur-a-vormoti-eldri-flokka

Photos from Fimleikadeild KA's post 04/05/2026

Yngri flokkarnir okkar – 5. flokkur, KKY og 4. flokkur – sóttu Fimleikafélagið Gerplu heim um helgina.
Þar sem Iceland Classic í hópfimleikum var haldið í fyrsta sinn 🤸‍♀️

Helgin einkenndist af frábærum framförum, mikilli seiglu og sterkri liðsheild 💙 Iðkendur hafa tekist á við miklar breytingar undanfarið og það var virkilega ánægjulegt að sjá hversu vel þau hafa nýtt tækifærið til að vaxa, bæði sem einstaklingar og lið.

💙 4. flokkur Bláar – unnu gull í fjölþraut, ásamt gullverðlaunum á trampólíni og dýnu 🥇
💛 4. flokkur Gular – tryggði sér 4 sætið á mótinu. Stelpurnar stóðu sig ótrúlega vel, sýndu mikinn styrk og samheldni og eiga fullt hrós skilið fyrir frammistöðuna.
💙 5. flokkur – enduðu í 3. sæti í heildina og fengu verðlaun fyrir sitt besta áhald, trampólín 🥉
💙 KKY – hafnaði í 3. sæti á gólfi, trampólíni og dýnu 🥉

Við erum gríðarlega stolt af öllum iðkendunum okkar og þjálfurum – vinnusemi, gleði og liðsheild skín í gegn 💙💛

Umsjónarmaður yfir FIM-leikjaskóla 2026 14/04/2026

Okkur vantar umsjónarmann til að hafa yfirumsjón yfir FIM-leikjaskólanum okkar vinsæla í sumar !

Umsjónarmaður yfir FIM-leikjaskóla 2026 Fimleikadeild KA auglýsir eftir umsjónarmanni til að hafa yfirumsjón yfir fimleikjaskólanum okkar vinsæla sem haldin er í júní fyrir krakka á aldrinum 6 -

15/03/2026

4 flokkur tók þátt á Huppumóti í dag 🐄

Besta áhald
KA gular 💛 - dýna.
KA bláar 💙 - dans.

09/02/2026

Langar þig að hreyfa þig á öðruvísi og skemmtilegan hátt?
Við erum að prófa trampólínhóp fyrir fullorðna – engin reynsla nauðsynleg, bara vilji til að prófa eitthvað nýtt 💪👇

Fyrir hvern?
• Fyrir fullorðna
• Hvort sem þú hefur aldrei æft fimleika eða langar bara að læra eitthvað nýtt.
• Fyrir þau sem vilja hreyfa sig, styrkjast og byggja upp sjálfstraust, og síðast en ekki síst, skáka börnunum sínum á trampólíninu 😊
Æfingatímar
• Miðvikudagar kl. 17:30 – 19:00
Staðsetning
• Fimleikahúsið við Giljaskóla
Hvað er gert á æfingum?
• Grunn- og framhaldsæfingar á trampólíni
• Jafnvægi, styrkur og líkamsvitund
• Öryggi, gleði og áskoranir við hæfi hvers og eins
• Skemmtileg og uppbyggileg þjálfun í góðum hópi
• Allar æfingar eru einstaklingsmiðaðar

Komdu og prófaðu án skuldbindingar 11. febrúar!
Allir velkomnir – mæta í þægilegum aðsniðnum íþróttafötum án rennilása og vera með íþróttasokka með sér og vera með bros á vör!

Frekari upplýsingar: á https://www.ka.is/fimleikar/frettir/nyjir-hopar-fyrir-trampolin-unnendur eða [email protected]

KA | Fimleikar 13/01/2026

Vorönn 2026 farin af stað !
Opið er fyrir skráningar í krílahópa og grunnhópa.
Ef það eru einhverjar spurningar er hægt að senda póst á [email protected]

skráning fer fram hér :

KA | Fimleikar Finndu námskeið í vefverslun KA. Keyrt áfram af Abler

Photos from Fimleikadeild KA's post 19/12/2025
Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Akureyri