Sælar kæru GÁ-konur ⛳️
Við minnum á kvennatímann mán. 8. Júní ⛳️ kl. 17-19
Bjóðum sérstaklega allar sem eru að byrja í golfi velkomnar, tökum vel á móti ykkur! 🤗❤️
- Skráið rástíma í Golfbox:
- undir mótaskrá/Kvennatími
Munið að skrá alla mánudagsbirdies í fuglahúsið 🐥⛳️
Hlökkum til að sjá ykkur ♥️
Golfklúbbur Álftaness
Golfklúbbur Álftaness var stofnaður 14. maí 2002.
03/06/2026
Sælar kæru GÁ konur 💃❤️⛳️
BIRDIES 🐥🐥Munið eftir að skrá alla birdies í fína fuglahúsið okkar 🐥🐣🦆🐔🐧🐦🪿🐥🐣🦉🦅
Þið skráið dagsetningu, leikmann og ritari staðfestir.
Svo drögum við úr fuglum á kvennagolfmótinu okkar í lok ágúst svo nú er um að gera að vera duglegar að spila og skrá alla BIRDIES í fína fuglahúsið inni í skála ⛳️ Hlökkum til að sjá ykkur á vellinum ♥️
🌞⛳ Þriðja stigamótið á morgun! ⛳🌞
Á morgun fer fram þriðja stigamót sumarsins og veðurspáin er mjög góð. Það stefnir í frábæran dag á vellinum og því tilvalið að mæta og taka þátt í skemmtilegu móti og góðum félagsskap.
Við hvetjum alla félagsmenn, jafnt vana sem nýja kylfinga, til að skrá sig og vera með. Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegra verður mótið.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest á morgun!
Kveðja,
Mótanefnd GÁ 🏌️♀️🏌️♂️
Jæja frábæru GÁ konur 💃💃 það er komin rétt rúmlega full skráning í Texas Scramble vinkonu kvennatímann okkar á mánudaginn kemur 😍.
Takk allar fyrir frábærar móttökur 🥰 þetta verður æðislega gaman saman! Hlökkum til að sjá ykkur í fordrykk kl. 16:30 🥂 og hefjum svo spilið allar á sama tíma kl. rúmlega 17.
27/05/2026
Sælar kæru GÁ konur ⛳️ ♥️
Næsta mánudag 1. júní verður Texas scramble í kvennatímanum. Þetta verður bara létt og ljúft kvöld fyrir félagskonur til að hrista sig saman fyrir sumarið!
Við ætlum að mæta kl. 16:30 í smá fordrykk og byrja svo að spila 17/17:15. Við ræsum út á öllum holum á sama tíma, spilum 9 holur og borðum svo saman pizzu. Þátttaka kostar kr. 3.500 á konu, greitt við mætingu og innifalinn er fordrykkur og pizza.
Þið veljið ykkur eina vinkonu til að spila með og skráið nöfn beggja í komment á þessa færslu, eða bara einar og veljið vinkonu á staðnum og kynnist þannig nýjum konum 😍💃 Ath. þið skráið ykkur ekki í Golfbox. Forgjöf skiptir engu máli, engir vinningar í boði, bara skemmtun. Endilega skráið þátttöku hér að neðan.
Hlökkum til að sjá ykkur á mánudaginn 💃 ⛳️
Kvennanefnd GÁ.
27/05/2026
Á sólríkum sumardegi þann 25 maí (alltaf gott veður á Álftanesi) stóð hann Þórarinn Þórðarsson á 3 teig; hjartað sló hratt, höggið var mjúkt, boltinn sveif fullkomlega, lenti, rúllaði og hvarf beint í holuna. HOLA Í HÖGGI. Þögn, síðan gleði, hlátur og ógleymanleg stund með vinum á vellinum, allir fögnuðu hátt. Innilega til hamingju 🤩
26/05/2026
Kæru félagsmenn,
Við viljum minna á að í dag er síðasti dagurinn til að panta golfpeysur með lógói GÁ á sérstöku kynningarverði.
Um er að ræða einstaklega fallegar og vandaðar peysur úr 50% merinóull og 50% akrýl, með svokölluðu wind resistant / wind blocking fóðri sem hentar einstaklega vel á golfvellinum við íslenskar aðstæður.
Hægt er að koma , máta og kaupa þessar glæsilegu peysur í golfskálanum okkar. Pöntun fer fram á staðnum og við skráningu þarf jafnframt að greiða fyrir pöntunina.
Afhendingartími er áætlaður um 3–4 vikur þar sem peysurnar eru sérmerktar og koma beint frá framleiðanda. Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem við bjóðum merktan fatnað fyrir félagsmenn viljum við fagna því með sérstöku kynningarverði – eingöngu í þetta eina skipti.
Verð: 18.900 kr.
Sama verð gildir fyrir konur og karla.
Við hlökkum til að sjá sem flesta í nýjum og glæsilegum klúbbapeysum á vellinum í sumar.
Golfkveðja,
Kæru félagar.
Önnur lota af stigamóti GÁ fer fram á morgun. Það var frábær mæting í síðasta mót og fer sumarið vel af stað!
Hvetjum alla til að vera með :)
Sjáumst á vellinum⛳️
Mótanefnd
25/05/2026
Opna hvítasunnumót Golfklúbbs Álftaness 🏌️♀️
Kæru golfvinir,
Við viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir mætingu og þátttöku í Opna hvítasunnumóti Golfklúbbs Álftaness! Það var frábært að sjá svona fjölda keppendur og gott andrúmsloft á meðan á móti stóð. Við vonum að allir hafi notið dagsins!
🏆 Punktakeppni – Úrslit
🥇 1. Ágúst Pálsson – 43 punktar | 50.000 kr gjafabréf
🥈 2. Erla Hanna Hannesdóttir – 41 punktar | 35.000 kr gjafabréf
🥉 3. Eva Diljá Arnþórsdóttir – 40 punktar | 25.000 kr gjafabréf
4. Guðrún Anna Kjartansdóttir – 40 punktar | 15.000 kr gjafabréf
5. Baldur Sigurbjörn Ingason – 40 punktar | 10.000 kr gjafabréf
⛳ Höggleikur – Úrslit
👩 Sigurvegari kvenna: Eydís Inga Einarsdóttir – 70 högg | 15.000 kr gjafabréf
👨 Sigurvegari karla: Kjartan Matthías Antonsson – 69 högg | 15.000 kr gjafabréf
🎯 Námdarverðlaun
1. hola: Sigurður G. Thoroddsen – 1,25 m | 10.000 kr gjafabréf
3. hola: Einar Georgsson – 1,31 m | 10.000 kr gjafabréf
7. hola: Victor Dan – 0,51 m | 10.000 kr gjafabréf
óskir til allra sigurvegara! 🎉 Við hlökkum til að sjá ykkur á næsta móti.
Kveðja,
Golfklúbbur Álftaness
23/05/2026
Opna Hvítasunnumótið núna á mánudaginn, annan í hvítasunnu!
Nú þegar eru 63 skráðir og aðeins um 30 laus pláss eftir í mótið. Við hvetjum alla sem eiga eftir að skrá sig að gera það sem fyrst því það eru ekki mörg laus holl eftir.
Eigið góða hvítasunnuhelgi!
Bestu kveðjur,
Mótanefnd
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Þórukot
Garðabær
225
Opening Hours
| Monday | 08:00 - 22:00 |
| Tuesday | 08:00 - 22:00 |
| Wednesday | 08:00 - 22:00 |
| Thursday | 08:00 - 22:00 |
| Friday | 08:00 - 22:00 |
| Saturday | 10:00 - 22:00 |
| Sunday | 10:00 - 22:00 |