24/07/2026
Tilbúin til afhendingar fyrir þá sem áttu pantað! ⛳️☀️
ES-M12-3 golfskutlurnar eru komnar og tilbúnar til afhendingar strax. Það verður varla betri tímasetning miðað við veðurspána – fullkomið að komast út á völl. 🏌️♂️
Aðeins eitt ES-M12-3 tæki er eftir á lager og það verða engin fleiri tæki pöntuð á þessu ári. Þegar síðasta tækið selst er uppselt fram á næsta tímabil.
Hafðu samband eða tryggðu þér síðasta eintakið áður en það klárast.
12/07/2026
Áætluð lending 17. júlí! ⛳️
Seinasta sending þetta árið er áætluð til Íslands 17. júlí og takmarkað magn verður í boði það sem eftir lifir tímabilsins.
Ef þú vilt tryggja þér tæki geturðu farið inn á www.eswing.is og valið „Staðfesting“. Með því tryggir þú þér eintak úr næstu sendingu.
Við hlökkum til að afhenda næstu tæki og horfum með mikilli tilhlökkun til næsta golfsumars. Takk fyrir stuðninginn! 💚🏌️
09/07/2026
NÝR AUKAHLUTUR Á LEIÐINNI – Grófari dekk fyrir ES-M12-3 🚜⛳
Við höfum fengið margar fyrirspurnir frá golfurum sem spila á völlum þar sem er mikið af brekkum, blautu grasi eða erfiðari undirlagi.
Þess vegna erum við að bæta við grófari dekkjum fyrir ES-M12-3, sem eru hönnuð til að veita betra grip við krefjandi aðstæður.
✅ Betra grip í blautu grasi
✅ Henta vel á brattari og grófari völlum
✅ Fyrir þá sem vilja hámarka drifgetu tækisins
Hefðbundnu dekkin eru áfram frábær kostur á flestum golfvöllum þar sem þau eru hönnuð með það í huga að fara vel með grasið. Þessi nýju dekk eru hins vegar ætluð þeim sem þurfa meira grip við erfiðari aðstæður.
Dekkin verða fáanleg sem aukahlutur og einnig verður hægt að panta ES-M12-3 með þessum dekkjum uppsettum.
Ef þú telur að þessi dekk henti þínum golfvelli eða notkun, sendu okkur skilaboð – við veitum ráðgjöf um hvaða lausn hentar best.
ESWING Ísland 🇮🇸
14/06/2026
Til hamingju Kristján með nýja ES-1388! ⛳️
Í dag afhentum við Kristjáni síðasta ES-1388 tækið úr núverandi lager. Við þökkum honum kærlega fyrir traustið og hlökkum til að heyra hvernig tækið reynist á golfvellinum í sumar.
Við höfum verið virkilega ánægð með viðtökurnar sem tækin hafa fengið og nú eru bæði:
✅ ES-1388 golfskutlan uppseld
✅ ES-M12-3 golfskutlan uppseld
✅ ES-T3 Follow Me golfkerran uppseld
🚢 Ný sending er væntanleg í lok júní, en magnið verður takmarkað. Ef þú ert að hugsa um að tryggja þér tæki fyrir sumarið er gott að hafa samband tímanlega.
ESWING tækin hafa komið mörgum golfurum skemmtilega á óvart og sýnt að það er hægt að njóta golfhringsins með meiri orku, meiri þægindum og meiri ánægju.
Takk fyrir frábærar viðtökur og stuðninginn sem við höfum fengið frá íslenskum golfurum. Við hlökkum til að sjá enn fleiri ESWING tæki á golfvöllum landsins í sumar. ☀️🏌️♂️
📍 Kynntu þér tækin á www.eswing.is
12/06/2026
Fyrsta sending uppseld! en önnur á leiðinni
Viðtökurnar hafa farið fram úr öllum væntingum og fyrsta sending af ESWING golf skutlunum er nú uppseld.
Næsta sending er væntanleg í lok mánaðar, en athugið að magnið verður takmarkað.
ESWING golf skutlurnar hafa komið mörgum á óvart með þægindum, afli, stöðugleika og því hversu skemmtilegt þær gera golfið. Hvort sem þú vilt spara orkuna, ganga meira eða einfaldlega njóta leiksins betur, þá er ESWING lausnin sem sífellt fleiri golfarar eru að uppgötva.
📦 Takmarkað magn í næstu sendingu
⛳ Afhending í lok mánaðar
🌐 Kynntu þér tækin nánar á www.eswing.is
ESWING Ísland
Meiri orka. Betra golf.
ESWING Iceland | Golf scooter, golf bílar og rafmagnskerrur
Golf scooter, golf bílar og golf rafmagnskerrur frá ESWING Iceland – þægilegar og umhverfisvænar lausnir fyrir golfvelli og golfara.